Viðbúið er að mikil endurnýjun verði á Alþingi Íslendinga eftir næstu kosningar. Miðað við skoðanakönnun sem Fréttablaðið birti í dag munu 23 sitjandi þingmenn tapa þingsætum sínum. Auk þess hafa þrír þingmenn sem mælast inni á þingi, miðað við setu þeirra á framboðslistum fyrir síðustu kosningar, tilkynnt að þeir ætli ekki að bjóða sig aftur fram. Það eru Einar K. Guðfinnsson, Ögmundur Jónasson og Katrín Júlíusdóttir.
Ef allir aðrir þingmenn sem sóttust eftir kjöri 2013 myndu bjóða sig aftur fram í sömu sætum og þá í kosningunum í haust þá myndu einungis 37 þeirra ná kjöri. Alls myndu því 26 nýir þingmenn setjast á þing. Það myndi þýða að 41,3 prósent þingheims myndi endurnýjast.
Vert er þó að taka fram að stjórnmálaflokkarnir eiga eftir að raða á framboðslista sína og enn á eftir að tilkynna formlega um hvenær næsti kjördagur verður.
Framsókn myndu tapa 14 þingmönnum
Það eru margar áhugaverðar vendingar sem hægt er að lesa úr þeim breytingum sem eru yfirvofandi. Framsóknarflokkurinn er til að mynda við það að missa 14 þingmenn samkvæmt könnuninni. Fer úr 19 þingmönnum í fimm. Flokkurinn fengi einungis einn þingmann í Norðvesturkjördæmi, sem er sögulega sterkt vígi flokksins. Miðað við framboðslista 2013 yrði sá Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Það þýðir að Ásmundur Einar Daðason, þingflokksformaður flokksins, Elsa Lára Arnardóttir og Jóhanna M. Sigmundsdóttir myndu tapa þingsætum sínum.
Flokkurinn myndi ekki síður bíða afhroð í Suðurkjördæmi. Þar er hann nú með fjóra þingmenn en fengi einn kjörinn ef kosið yrði í dag. Sigurður Ingi Jóhannsson forstætisráðherra myndi einn ná kjöri fyrir flokkinn þar. Þau Silja Dögg Gunnarsdóttir, Haraldur Einarsson og Páll Jóhann Pálsson - sem hefur reyndar þegar sagt að hann muni ekki fara aftur fram – myndu ekki ná inn á þing.
Hrunið í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur yrði algjört. 2013 fékk Framsókn tvo þingmenn í hvoru þeirra og var um að ræða mesta kosningasigur flokksins i höfuðborginni frá upphafi. Vigdís Hauksdóttir og Karl Garðarsson – þingmenn í Reykjavík suður – og Frosti Sigurjónsson og Sigrún Magnúsdóttir – þingmenn í Reykjavík norður – myndu missa sæti sín. Sigrún hefur reyndar þegar sagt opinberlega að hún sækist ekki eftir endurkjöri, Karl hefur enn ekki ákveðið sig og Vigdís er ekkert byrjuð að pæla í framboði. Frosti ætlar hins vegar fram og mikið er rætt um að Lilja Alfreðsdóttir, sem gerð var að utanríkisráðherra fyrir skemmstu, hefur verið orðuð við framboð í Reykjavík. Hún hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún bjóði sig fram til þingmennsku.
Framsókn vann líka mikinn sigur í Kraganum í síðustu kosningum. Eygló Harðardóttir, oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi, myndi halda sæti sínu ef kosið yrði í dag en yrði eini þingmaður hans þar. Það þýðir að Willum Þór Þórsson og Þorsteinn Sæmundsson, sem báðir ætla að bjóða sig aftur fram, myndu ekki ná kjöri.
Í Norðausturkjördæmi, kjördæmi flokksformannsins, myndi Framsóknarflokkurinn missa tvo þingmenn. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson myndu halda þingsætum sínum en Líneik Anna Sævarsdóttir og Þórunn Egilsdóttir féllu af þingi. Af þessum fjórum hafa þrír sagt að þeir ætli fram. Einungis Sigmundur Davíð á eftir að svara til um það og fer væntanlega að styttast í að hann greini frá áformum sínum.
Tveir formannsframbjóðendur næðu ekki inn
Þeir flokkar sem skilgreinast sem jafnaðarmannaflokkar virðast ekki eiga mikið erindi í íslenskri pólitík um þessar mundir, að minnsta kosti ef marka er skoðanakannanir. Hver slík á fætur annarri sýnir að Björt Framtíð nái ekki inn manni á þing og að Samfylkingin nái að bæta metið í lágu fylgi sem flokkurinn setti 2013. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins myndi Björt framtíð tapa öllum sex þingmönnum sínum og Samfylkingin fara úr níu þingmönnum í sex.
Þeir þingmenn Bjartrar framtíðar sem hverfa myndu af Alþingi eru Óttarr Proppé, formaður flokksins, Páll Valur Björnsson, Björt Ólafsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall og Brynhildur Pétursdóttir. Hin þrjú fyrstnefndu hafa öll tilkynnt að þau muni fara aftur fram í komandi kosningum en hinn helmingur þingflokksins hefur enn ekki ákveðið sig.
Staðan hjá Samfylkingunni er einnig athyglisverð. Samanlagt fylgi þeirra flokka sem bjuggu til Samfylkinguna var 37,8 prósent í síðustu kosningunum áður en hún var mynduð. Flokkurinn beið algjört afhroð í kosningunum 2013 þegar hann fékk 12,9 prósent fylgi, heilum 16,9 prósentum minna en í kosningunum 2009. Það er skellur sem á sér vart hliðstæðu í íslenskri stjórnmálasögu. Flokkurinn virðist ekki vera að fara að spyrna sér upp frá þessum botni. Þvert á móti dalar fylgið áfram og mælist nú 8,3 prósent.
Það er líka athyglisvert að skoða hvaða þingmenn flokksins það eru sem myndu missa þingsæti. Í þeim þriggja manna hópi eru nefnilega tveir sem gefa kost á sér í formannskjöri Samfylkingarinnar sem fram fer í næsta mánuði, þau Oddný Harðardóttir og Helgi Hjörvar. Auk þeirra myndi Valgerður Bjarnadóttir detta út að óbreyttu. Katrín Júlíusdóttir myndi halda sæti sínu á þingi – hún er annar þingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi – en Katrín hefur þegar sagt að hún muni ekki sækjast eftir endurkjöri. Næstur á eftir henni á lista 2013 var enn einn formannsframbjóðandinn, Magnús Orri Schram. Sitjandi formaðurinn Árni Páll Árnason, sem mun einnig sækjast eftir endurkjöri í júní, myndi halda þingsæti sínu.
Píratar margfaldast
Þeir flokkar sem bæta við sig þingsætum eru þrír. Þar ber auðvitað fyrst að nefna Pírata. Þingflokkur þeirra færi úr þremur þingmönnum í 22 ef kosið væri í dag og flokkurinn yrði stærstur á þingi. Alls segjast 31,8 prósent kjósenda að þeir myndu kjósa flokkinn í dag en 5,1 prósent kusu hann í síðustu kosningum.
Allir sitjandi þingmenn Pírata myndu halda sæti sínu. Í Suðvesturkjördæmi myndu þeir Björn Leví Gunnarsson, Hákon Einar Júlíusson og Árni Þór Þorgeirsson ná kjöri ásamt Birgittu Jónsdóttur, oddvita Pírata þar.
Í Suðurkjördæmi er flokkurinn með engan þingmann en fengi fjóra ef kosið yrði í dag. Þeir Smári McCarthy, Halldór Berg Harðarson, Björn Þór Jóhannesson og Svafar Helgason skipuðu þessi fjögur sæti í síðustu kosningum.
Píratar myndu fá fimm þingmenn í hvoru Reykjavíkurkjördæminu og yrðu langstærsti flokkurinn í höfuðborginni. Í dag er Ásta Guðrún Helgadóttir eini þingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður eftir að Jón Þór Ólafsson steig til hliðar á miðju kjörtímabili. Í næstu sætum á eftir henni á síðasta framboðslista voru Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Sigríður Fossberg Thorlacius, Arnaldur Sigurðarson og Birkir Fannar Einarsson. Þau eru öll um þrítugt.
Í Reykjavík norður er Helgi Hrafn Gunnarsson eini þingmaður flokksins. Við myndu bætast Halldóra Mogensen, Bjarni Rúnar Einarsson, Salvör K. Gissurardóttir og Þórður Sveinsson.
Píratar fengu engan mann í Norðausturkjördæmi árið 2013 en myndu fá tvo ef kosið yrði í dag. Þeir yrðu Aðalheiður Ámundadóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Pírata, og Þórgnýr Thoroddsen.
Sjálfstæðisflokkurinn í sókn
Sjálfstæðisflokkurinn myndi einnig vinna að minnsta kosti varnarsigur ef kosið yrði í dag. Flokkurinn myndi bæta við sig tveimur þingmönnum frá síðustu kosningum sem verður að teljast afar ásættanlegur árangur miðað við ágjöfina sem flokkurinn hefur fengið á kjörtímabilinu. Fjórir ráðherrar flokksins hafa tengst spillingarmálum. Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér sem innanríkisráðherra vegna lekamálsins, Illugi Gunnarsson er laskaður eftir Orku Energy-málið og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ólöf Nordal, varaformaður hans, voru bæði í Panamaskjölunum. Samt mælist flokkurinn með 29,9 prósent fylgi sem er meira en hann fékk í síðustu tveimur kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda öllum sínum 19 þingmönnum inni. Til viðbótar myndu tveir nýir setjast á þing. Einn kæm úr Norðausturkjördæmi en hinn úr norðvesturkjördæmi. Samkvæmt framboðslista 2013 yrði það Ásta Kristín Sigurjónsdóttir. Beint á eftir henni er Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Hinn yrði, samkvæmt lista, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir frá Tálknafirði. Þar sem Einar K. Guðfinnsson ætlar að hætta þá myndi Sigurður Örn Ágústsson, sem tekið hefur sæti sem varaþingmaður á þessu kjörtímabili og vakið eftirtekt, einnig ná kjöri.
Álfheiður næst inn
Vinstri græn myndu halda öllum sínum þingmönnum og bæta við sig tveimur, einum í Suðurkjördæmi og einum í Reykjavík suður. Flokkurinn myndi fá 14 prósent atkvæða ef kosið yrði í dag en fékk 10,9 prósent í síðustu kosningum. Álfheiður Ingadóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, yrði næst inn í Reykjavík suður samkvæmt framboðslista 2013 og þar á eftir kæmi Ingimar Karl Helgason blaðamaður.
Vinstri græn myndu fá einn þingmann í Suðurkjördæmi ef kosið yrði í dag. Miðað við lista flokksins fyrir síðustu kosningar yrði það Arndís Soffía Sigurðardóttir.