Kosningar ekki ákveðnar fyrr en þing er hafið á ný

Engin dagsetning fyrir kosningar verður ákveðin fyrr en þing verður hafið á ný. Framsóknarmenn vilja ekki ákveða dagsetningu fyrr en mál eru afgreidd. Frumvarp um afnám verðtryggingar er væntanlegt. Sigmundur Davíð ætlar að halda áfram.

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur ekki viljað ákveða tiltekna dagsetningu fyrir komandi kosningar þar til yfirsýn fæst um þá daga sem framundan eru á Alþingi í ágúst.
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur ekki viljað ákveða tiltekna dagsetningu fyrir komandi kosningar þar til yfirsýn fæst um þá daga sem framundan eru á Alþingi í ágúst.
Auglýsing

Engin dag­setn­ing verður ákveðin fyrir kom­andi kosn­ingar fyrr en Alþingi kemur saman á ný í ágúst og vinna verður hafin við þau mál sem þarf að afgreiða. Stór mál eins og búvöru­samn­ing­arn­ir, LÍN, afnám gjald­eyr­is­hafta og verð­trygg­ingar bíða þing­manna eftir sum­ar­frí og erfitt er að gera sér grein fyrir því hvernig þau munu vinn­ast. Rík­is­stjórnin mun leggja fram frum­varp um afnám verð­trygg­ingar fljót­lega eftir að þing kemur saman á ný. Þetta herma heim­ildir Kjarn­ans. 

Áfram stefnt að kosn­ingum í haust

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir stefna báðir að því að flýta kosn­ingum en menn eru tregir til þess að ákveða dag­setn­ingu þar sem afgreiðslu mála er for­gangs­raðað ofar. Með öðrum orð­um; fyrst þarf að afgreiða þau mál sem þarf að klára, svo verður gengið til kosn­inga. Alþingi kemur saman á ný þann 15. ágúst og gerir dag­skráin ráð fyrir 13 þing­fund­ar­dög­um, að Eld­hús­deg­inum með­töld­um. Dag­setn­ingin 22. októ­ber hefur verið nefnd og sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans stefna allir flokk­ar, að Fram­sókn­ar­flokk­inum und­an­skild­um, að þeirri dag­setn­ingu. Þá ber að taka fram að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins,  hefur ítrekað sagst vilja kjósa í haust, þó að hann hafi ekki getað nefnt ákveðna dag­setn­ingu. Línan innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hall­ast mun meira í átt að kosn­ingum í októ­ber. 

Línur að skýr­ast á list­unum

Yfir tíu flokkar stefna að því að bjóða fram til Alþing­is. Listar VG og Pírata í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eru til­bún­ir, en víða verða líka haldin próf­kjör og hefur fjöldi fólks til­kynnt um fram­boð fyrir hina ýmsu flokka. Sem dæmi má nefna Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, rit­ara Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, aðstoð­ar­mann inn­an­rík­is­ráð­herra, Björn Val Gísla­son, vara­for­mann VG, og Gunnar Hrafn Jóns­son, frétta­mann á RÚV, og ætlar hann á lista fyrir Pírata. 

Auglýsing

Sviðið opið fyrir Lilju

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er að missa nokkra fyr­ir­ferð­ar­mikla þing­menn frá borði eftir þetta kjör­tíma­bil. Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefnd­ar, Sig­rún Magn­ús­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, og Páll Jóhann Páls­son eru öll að hætta á þingi. Með þessu opn­ast sviðið fyrir Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra til að gefa kost á sér í odd­vita­sæti í Reykja­vík, en það er alls óvíst hvort hún láti af því verða. 

Vig­dís segir í við­tali við DV í dag að það sé mik­ill fengur fyrir flokk­inn að hafa fengið Lilju. Það þurfi engan snill­ing í mark­aðs­málum til að sjá að það væri best fyrir flokk­inn ef hún sjálf mundi leiða Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Lilja Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norð­ur.  

„En ég mun auð­vitað ekki gefa kost á mér svo að hún gæti valið sitt kjör­dæmi ef hún hefur áhuga,“ segir Vig­dís í DV. 

Ekki lægra fylgi hjá Fram­sókn síðan í hrun­inu

Fram­sókn hefur verið að berj­ast í bökkum und­an­farin miss­eri og hefur fylgið hríð­fallið af flokknum í hverri skoð­ana­könn­un­inni á fætur annarri. Síð­ast í gær mæld­ist flokk­ur­inn í könnun MMR með 6,4 pró­senta fylgi og hefur það ekki verið eins lágt síðan í des­em­ber 2008. Flokk­ur­inn tap­aði fimm pró­sentu­stigum milli kann­anna. 

Sig­mundur heldur áfram

Kjör­dæma­sam­band Fram­sókn­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík óskaði í vik­unni eftir fram­boðum á lista flokks­ins og á fólk að skila inn fram­boðum í síð­asta lagi föstu­dag­inn 12. ágúst. Til stendur að halda mið­stjórn­ar­fund hjá flokknum í ágúst, en á þeim fundi verður síðan boðað til flokks­þings og er hægt að gera það með til­tölu­lega skömmum fyr­ir­vara. Á flokks­þingi verður kosið um nýja for­ystu, en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, mun að öllum lík­indum gefa kost á sér þar til end­ur­kjörs sem for­mað­ur.

Um þetta segir Vig­dís í DV að ef Sig­mundur fer fram og geldur afhroð sé sú staða skýr, sem og ef hann vinni stór­sig­ur. Hún studdi Hösk­uld Þór­halls­son í for­manns­kjör­inu 2009. Þá segir hún líka að ef Lilja færi í for­manns­fram­boð og Sig­mundur hætti mundi hún styðja hana. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None