Bætist í hóp nýrra þingframbjóðenda nær daglega

Fjöldi nýrra frambjóðanda hyggst bjóða sig fram í komandi Alþingiskosningum. Helmingur sitjandi flokka heldur prófkjör og helmingur stillir upp. Fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar íhugar framboð fyrir Samfylkingu.

Þó að enn sé ekki komin fram dagsetning fyrir kosningar koma reglulega fram ný nöfn sem vilja gefa kost á sér til þings á næsta kjörtímabili.
Þó að enn sé ekki komin fram dagsetning fyrir kosningar koma reglulega fram ný nöfn sem vilja gefa kost á sér til þings á næsta kjörtímabili.
Auglýsing

Ný and­lit spretta nú fram nær dag­lega sem vilja bjóða fram krafta sína í kom­andi Alþing­is­kosn­ing­um. Helm­ingur sitj­andi flokka heldur próf­kjör; Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Sam­fylk­ing og Pírat­ar. Hinir flokk­arn­ir; Fram­sókn­ar­flokk­ur, Vinstri græn og Björt fram­tíð, stilla upp á lista.

Mar­grét og Sema íhuga fram­boð fyrir Sam­fylk­ingu

Tölu­verð óvissa ríkir í kring um fram­boð Sam­fylk­ing­ar­fólks, en flokk­ur­inn heldur próf­kjör í byrjun sept­em­ber. Hvorki Árni Páll Árna­son, fyrr­ver­andi for­mað­ur, né Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður hafa gefið upp hvort þeir ætli að gefa kost á sér áfram í næstu kosn­ing­um.

Þær Sema Erla Serdar, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Kópa­vogi, og Mar­grét Tryggva­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­inn­ar, hafa báðar verið orð­aðar við fram­boð fyrir flokk­inn. Mar­grét segir í sam­tali við Kjarn­ann að ekk­ert sé ákveðið í þeim efn­um. „Ég er enn að hugsa málið og get ekk­ert stað­fest eins og staðan er í dag,“ segir hún. Sema segir að vissu­lega sé verið að skoða fram­boðs­mál. 

Auglýsing

„Ég er ekki til­búin að taka neina ákvörðun eins og er, en greini frá henni lík­lega á næstu dög­um.“ 

Magnús Orri Schram, fyrr­ver­andi þing­maður og for­manns­fram­bjóð­andi, ætlar ekki að gefa kost á sér til Alþing­is.

Margir vilja vera Píratar

Nú standa yfir próf­kjör Pírata á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­landi. Fram­boðs­listi flokks­ins er afar lang­ur, nærri 140 manns, þar af eru yfir 100 í höf­uð­borg­ar­kjör­dæmi. Meðal þeirra sem bjóða sig fram í próf­kjöri Pírata eru Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður Hreyf­ing­ar­inn­ar, Gunnar Hrafn Jóns­son, fyrr­ver­andi frétta­maður á RÚV, Erna Ýr Öldu­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður fram­kvæmda­ráðs flokks­ins, Seth Sharp skemmti­kraft­ur, Heimir Örn Hólmars­son for­seta­fram­bjóð­andi, og Jón Þór Ólafs­son, fyrr­ver­andi þing­mað­ur.

Árni John­sen vill aftur á þing

Próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram um ­mán­aða­mót­in ágúst sept­em­ber. Meðal þeirra sem ætla að gefa kost á sér eru Árn­i John­sen, fyrr­ver­andi þing­mað­ur, Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra, Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, rit­ari flokks­ins.

Nokkrir sjálf­stæð­is­menn hverfa af þingi eftir þetta kjör­tíma­bil, meðal ann­ars Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir þing­flokks­for­maður og Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is. Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyj­um, var að hugsa málið varð­andi þing­fram­boð en hann hefur nú ákveðið að gefa ekki kost á sér.

Upp­still­inga­nefndir að störfum

Eins og áður segir eru upp­still­ing­ar­nefndir að störfum í flestum kjör­dæmum fyr­ir­ Fram­sókn­ar­flokk­inn, Vinstri græn og Bjarta fram­tíð. Listar verða kynntir með haustinu, en fram­boðs­listi VG í Norð­aust­ur­kjör­dæmi er til­bú­inn og leiðir Stein­grím­ur J. Sig­fús­son þann hóp. Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, segir vinnan við upp­still­ing­una ganga vel.

„Það gengur ágæt­lega að manna listana þó að það sé skrýtið að biðja fólk um að taka þátt í kosn­ingum sem maður veit í raun ekki hvenær verða,“ segir hann. „En við göngum út frá því að þær verði í októ­ber, eins og aðr­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None