Vextir ættu að lækka en hafa ekki gert það ennþá

bankar_island.jpg
Auglýsing

Sé mið tekið af ávöxt­un­ar­kröfu á skulda­bréfa­mark­aði, þá má ­bú­ast við tölu­verðum vaxta­lækk­unum á óverð­tryggðum og verð­tryggðum hús­næð­is­lán­um á næst­unni, það er þeim sem eru með breyti­lega vexti. Í kjöl­far lækk­unar á meg­in­vöxtum Seðla­banka Íslands, úr 5,75 pró­sent í 5,25 pró­sent, og síðan hækk­un á láns­hæf­is­ein­kunn, þá hefur vaxta­á­lag lækkað á mark­aði.

Mikil vaxta­lækkun og lægri greiðslu­byrði

Sé mið tekið af algengu við­miði líf­eyr­is­sjóða, þegar kemur að hús­næð­is­lánum með breyti­lega vexti á óverð­tryggðum lán­um, þá gætu vextir far­ið ­niður í 5,75 pró­sent en þeir eru nú 6,75 pró­sent, sé miðað við stöðu mála og við­mið hjá Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna.

Eins og sést á þessari mynd af Keldan.is, þá hefur vaxtaálag lækkað nokkuð á skuldabréfamarkaði.Sama má segja um breyti­lega vexti verð­tryggðra lána, en þeir ­gætu lækkað niður fyrir þrjú pró­sent, ef miðað er við stöðu mála á skulda­bréfa­mark­aði nú. Breyti­legir vextir á verð­tryggðum lánum eru víð­ast hvar ­svip­að­ir, á bil­inu 3,65 til 3,9 pró­sent. Sé miðað við Líf­eyr­is­sóð verzl­un­ar­manna, þá eru breyti­legir vextir nú 3,86 pró­sent, sam­kvæmt vef ­sjóðs­ins, en eins og áður segir þá gætu vext­irnir lækkað tölu­vert á næst­unni.

Auglýsing

Þetta skiptir almenn­ing miklu máli, en þýða betri vaxta­kjör lægri greiðslu­byrði á lán­um, sem þýðir að meira verður eftir í vasa lands­manna um hver mán­að­ar­mót.

Góðar verð­bólgu­horfur

Verð­bólgu­horfur eru góðar í augna­blik­inu, en verð­bólga ­mælist nú 0,9 pró­sent. Í meira en tvö ár hefur verð­bólga verið undir 2,5 pró­sent og hefur kaup­máttur launa auk­ist veru­lega, einkum á und­an­förnu ári. Sam­tals ­nemur aukn­ingin yfir 11 pró­sent­um, sem er með hröð­ustu aukn­ingu kaup­máttar frá­ því mæl­ingar hófust.

Hvað gera bank­arn­ir?

Bank­arn­ir, sem eru með lang­sam­lega mestu mark­aðs­hlut­deild á í­búða­lána­mark­aði, hafa ekki ennþá lækkað vexti á íbúða­lán­um. Lands­bank­inn og Ís­lands­banki eru í eigu rík­is­ins, og eru með sam­bæri­lega vexti á hús­næð­is­lán­um, og það sama má segja um Arion banka. Vextir bank­anna eru þó umtals­vert hærri en líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða.

Lands­bank­inn býður 3,65 pró­sent breyti­lega vexti á verð­tryggðum lán­um, en 6,75 pró­sent á breyti­legum óverð­tryggðum lán­um.

Íslands­banki býður 6,75 pró­sent breyti­lega vexti á ó­verð­tryggðum lán­um, en bestu vextir á verð­tryggðum lánum eru 3,85 pró­sent. Arion ­banki býður svo lægst 7,05 pró­sent vexti á óverð­tryggðum lán­um, og 3,65 pró­sent á verð­tryggðum lán­um.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa að und­an­förnu aukið mark­aðs­hlut­deild sína á íbúða­lána­mark­aði, enda virð­ast nýir lán­takar horfa meira til þeirra vegna hag­stæðra vaxta­kjara. 

Líf­eyr­is­­sjóð­irn­ir lán­uðu rúm­­lega 38 millj­­arða króna til íslenskra heim­ila á fyrri helm­ing­i árs­ins, sam­­kvæmt tölum frá Seðla­­banka Íslands­ sem birt­ust í fyrri hluta ágúst­mán­að­ar. Líf­eyr­is­­sjóð­irnir hafa aukið hlut­­deild sína á íbúða­lána­­mark­að­i veru­­lega und­an­farin mis­s­eri, eftir að nokkrir stórir líf­eyr­is­­sjóðir hófu að bjóða allt að 75% íbúða­lán og óverð­­tryggð lán. 

Til sam­an­­burðar námu lán líf­eyr­is­­sjóð­anna til heim­ila rétt tæp­­lega fimm millj­­örðum króna á sama tíma­bili í fyrra, áður en líf­eyr­is­­sjóð­irnir hófu í raun þessa inn­­reið sína á íbúða­lána­­mark­að­inn. Á seinni helm­ingi árs­ins 2015 voru veitt lán fyrir 16,7 millj­­arða króna, og útlánin hafa hækkað jafnt og þétt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None