Þúsund milljarða dala innviðauppbygging í Bandaríkjunum

Gríðarlegar framkvæmdir á vegum hins opinbera í Bandaríkjunum munu fara fram á næstu misserum nái helsta stefnumál Donalds Trumps í efnahagsmálum fram að ganga.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Auglýsing

Óhætt er að segja að Don­ald J. Trump Banda­ríkja­for­seti ætli sér að standa við stóru orðin um að byggja inn­viði Banda­ríkj­anna upp að nýju en hann hyggst óska eftir fjár­heim­ild frá þing­inu upp á eitt þús­und millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 106 þús­und millj­örðum króna, til að styrkja inn­viði lands­ins, svo sem vegi og lest­ar­sam­göng­ur. 

Upp­hæðin er risa­vax­in, jafn­vel á mæli­kvarða Banda­ríkj­anna. Þetta er upp­hæð sem nemur um ríf­lega 331 þús­und krónum á hvern Banda­ríkja­manna. Hlut­falls­lega, fært niður á íslenskan veru­leika, væri um að ræða áætlun upp á 109 millj­arða fram­kvæmd­ir. 

Lík­lega verður þetta ekki auð­sótt hjá Trump ef marka má reynslu for­vera hans, Baracks Obama, því líkt og Trump ætlar sér nú, þá reyndi Obama ítrekað að fá sam­þykktar auknar fjár­heim­ildir til inn­viða­fram­kvæmda, meðal ann­ars í vegi og lest­ar­sam­göng­ur, líkt og Trump hefur hug á því að gera nú. 

Auglýsing

Repúblikanar stöðv­uðu þessar beiðnir ítrek­að, og var þó um að ræða aðeins brot af þess­ari upp­hæð sem Trump hyggst fá fram nú. Nú er hins vegar öldin önnur og meiri líkur en minni á að Repúblikanar muni standa með for­set­anum þegar kemur að þessu stefnu­máli.

Sam­hliða þessu verður 10 pró­sent útgjalda­aukn­ing til her­mála, eða um sem nemur 54 millj­örðum Banda­ríkja­dala. Á móti þess­ari gríð­ar­legu útgjalda­aukn­ingu hyggst Trump skera niður í öllum öðrum mála­flokk­um, einkum og sér í lagi allri opin­beru félags- og heil­brigð­is­þjón­ust­u. 

Í stefnu­ræðu sinni í lok febr­úar sagði hann rík­is­sjóð Banda­ríkj­anna hafa eytt sex þús­und millj­örðum Banda­ríkj­anna í stríðs­rekstur í mið­aust­ur­lönd­um, og það væri óásætt­an­legt. „Fyrir þá upp­hæð hefðum við getað end­ur­nýjað alla inn­viði tvisvar, jafn­vel þrisvar,“ sagði Trump. 

Nýj­ustu hag­tölur í Banda­ríkj­unum sýna áfram­hald­andi efna­hags­bata en í síð­asta mán­uði voru sköpuð 298 þús­und ný störf í land­inu, en flestar spár höfðu gert ráð fyrir um 200 þús­und nýjum störf­um. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiErlent
None