ÁTVR greinir ekki á milli munntóbaks og neftóbaks

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins framleiðir grófkornað neftóbak. Kannanir sýna að langflestir nota það sem munntóbak. Samkvæmt lögum er neftóbak löglegt en munntóbak ólöglegt. Enn eitt sölumetið var sett í fyrra.

neftobak_800_030214.jpg
Auglýsing

Áfeng­is- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR) treystir sér ekki lengur til að greina á milli munn­tó­baks og nef­tó­baks og hefur leitað leið­bein­inga hjá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu um hvernig eigi að greina á milli. Kann­anir sýna  að nef­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og sel­ur, oft kall­aður „Rudd­i“, er í yfir­gnæf­andi til­vika tekið í munn og að not­endum þess séu að stórum hluta ungt fólk. Sala á munn­tó­baki er ólög­leg en sala á nef­tó­baki er lög­leg.

Í árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2016 fjallar for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar, Ívar J. Arndal, um þetta mál og segir að ÁTVR treysti sér ekki lengur til þess að greina á milli þess hvort tóbakið sem stofn­unin fram­leiðir sem nef­tó­bak sé slíkt eða munn­tó­bak. Sala á nef­tó­baki fram­leiddu af ÁTVR hefur stór­auk­ist á und­an­förnum árum.

Árið 2000 seld­ust ríf­­lega 10 tonn af nef­tó­baki, en síðan þá hefur salan auk­ist jafnt og þétt. Eina und­an­­tekn­ingin er að salan minn­k­aði árin 2012 og 2013 áður en hún jókst á ný. ÁTVR segir að salan hafi dreg­ist lít­il­­lega saman þessi ár eftir að tóbaks­­­gjald á nef­tó­bak var tvö­­fald­að. Salan fór niður í 27,6 tonn árið 2013 en hefur svo auk­ist mikið á ný. Í fyrra seld­ust um 40 tonn af nef­tó­baki, sem er sölu­met. Fyrra met var sett árið 2015 þegar 36,1 tonn seld­ust.

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fín­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leiðir hefur verið í nán­­­­ast ein­ok­un­­­­ar­­­­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­­­­boð, eða nota nef­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leið­ir, hinn svo­­­­kall­aða „Rudda“, sem munn­tó­bak.

Auglýsing
Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­­ar, bæði vegna hækk­­­­unar á tóbaks­­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­­spurn­­­­ar. Tóbaks­­­­­­­gjald á nef­tó­bak hækk­­­­aði til að mynda um 100 pró­­­­sent 1. jan­úar 2013.

Við síð­ustu fjár­laga­gerð skil­aði for­stjóri ÁTVR umsögn til efna­hags- og við­skipta­nefndar þar sem hann lagði til að tóbaks­gjald yrði hækkað um 55,2-69 pró­sent.  Til­­gang­­ur­inn væri að sam­ræma tóbaks­­gjald, en í þágild­andi lögum væri það svo að nef­tó­bak og annað tóbak bæri tals­vert lægra tóbaks­­­gjald en sígar­ettur og vind­l­ing­­ar. Það hafi verið umtals­vert mis­­ræmi í gjald­­töku eftir tóbak­s­teg­undum allt frá því að tóbaks­­gjaldið var tekið upp árið 2001.

Þetta var sam­þykkt og gert er ráð fyrir að hækkun á tóbaks­gjald­inu skili rík­is­sjóði um hálfum millj­arði króna í við­bót­ar­tekjur í ár.

Við þessa breyt­ingu hækk­aði hefð­bundið verð fyrir dós af nef­tó­baki fram­leiddu af ÁTVR úr 1.463 krónum í 2.352 krón­ur, eða um 889 krón­ur.

Miklar tekjur af sölu á rík­is­fram­leiddu tóbaki

Tekjur ÁTVR af sölu tóbaks dróg­ust í heild saman í fyrra. Þær voru tveimur pró­sentum lægri en árið 2015 eða alls 9,3 millj­arðar króna. Þar munar mestu um að sala á sígar­ettum dróst saman um 6,1 pró­sent og á vindlum um 7,5 pró­sent.

Sala á nef­tó­baki hélt hins veg­ar, líkt og áður sagði, áfram að aukast og jókst sam­tals um 10,7 pró­sent á árinu. Salan skil­aði alls 827,6 millj­ónum króna í kass­ann í fyrra án virð­is­auka­skatts. Árið 2015 var selt rík­is­fram­leitt tóbak fyrir 748 millj­ónir króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar