Sífellt fleiri styðja Vinstri græn
Vinstri græn eru nú með 26,1 prósent fylgi miðað við kosningaspána og eru að ná forskoti á Sjálfstæðisflokkinn. Samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins eru með minnstan stuðning allra framboða sem mælast í könnunum.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð nýtur sífellt meiri stuðnings meðal almennings, ef marka má kosningaspá Baldurs Héðinssonar og Kjarnans sem unnin var um helgina. Flokkurinn, með Katrínu Jakobsdóttur í fararbroddi, nýtur nú stuðnings 26,1 prósent kjósenda í kosningaspánni.
Eins og í síðustu Kosningaspám mælist Sjálfstæðisflokkurinn næst stærsta stjórnmálaaflið á Íslandi með 23,6 prósent stuðning. Það er litlu meira en flokkur Bjarna Benediktssonar mældist með fyrir helgi. Samanlagt styðja um það bil 49 prósent kjósenda annan þessara flokka.
Á miðjunni – ef svo má að orði komast – hafa einnig orðið nokkrar vendingar síðan kosningaspáin var gerð síðast. Samfylkingin er nú að öllum líkindum með 9,1 prósent fylgi, meira en Flokkur fólksins sem nýtur stuðnings 8,6 prósent kjósenda.
Stuðningur við framboð 1. október 2017
Mældur stuðningur við stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Alþingiskosningunum næstkomandi, miðað við kosningaspána.
Stuðningur við Pírata minnkar einnig, og er 10,5 prósent. Sífellt færri styðja Pírata miðað við kosningaspána, en síðan ríkisstjórnin féll 15. september síðastliðinn hefur stuðningur við Pírata minnkað í hvert sinn sem kosningaspáin hefur verið gerð.
Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn
Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var mældur í fyrsta sinn í kosningaspánni 28. september og var stuðningur við framboð hans þá 7,1 prósent. Eins og útskýrt var á þessum vettvangi á laugardaginn þá var mælingin á framboði hans sú óáreiðanlegasta vegna þess að aðeins ein könnun hafði mælt stuðning við framboð hans.
Í nýjustu kosningaspánni mældu allar þrjár kannanirnar sem spáin byggir á Miðflokkinn og því er útreikningur á stuðningi við framboð hans jafn áreiðanlegt og allra hinna framboðanna í kosningaspánni. Miðflokkurinn mælist með 6,1 prósent stuðning.
Framsóknarflokkurinn virðist enn líða fyrir klofninginn og fylgi við flokkinn minnkar enn og mælist nú 7,8 prósent. Það er minna en Framsóknarflokkurinn hefur mælst með nokkru sinni í kosningaspánni. Fyrsta kosningaspáin fyrir Alþingiskosningar var unnin 20. janúar 2016.
Samanlagt er stuðningur við Framsóknarflokkinn og Miðflokkinn 13,9 prósent. Það er hins vegar mun meira en Framsóknarflokkurinn hefur mælst með síðan kosningaspáin var fyrst unnin fyrir Alþingiskosningar. Stuðningurinn var mestur 1. apríl 2016, áður en Panamaskjölin skóku íslensk stjórnmál, þegar Framsóknarflokkur Sigmundar Davíðs mælist með 12,3 prósent.
Þróun stuðnings við stjórnmálaflokka í kosningaspánni
Mældur stuðningur við stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Alþingiskosningunum næstkomandi, miðað við kosningaspána.
Afhroð stjórnarflokka
Stjórnmálaflokkar hafa fæstir riðið feitum hesti frá kosningum eftir að hafa starfað með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Sagan virðist ætla að endurtaka sig í ár því Viðreisn og Björt framtíð mælast enn með mjög lítið fylgi.
Viðreisn mælist með 4,4 prósent fylgi í kosningaspánni, minna en flokkurinn hefur haft síðan 2. júní 2016. Björt framtíð rekur lestina í kosningaspánni með 3,8 prósent.
Það er ágæt þumalputtaregla að miða við að flokkur þurfi að fá fimm prósent atkvæða í kosningum á landsvísu til þess að ná kjöri. Það gæti hins vegar verið svo að flokkur fái mun meira fylgi í einu kjördæmi umfram önnur og náð kjöri þannig, þrátt fyrir lítið fylgi á landsvísu.
Kannanir til grundvallar kosningaspá
Nýjasta kosningaspáin byggir á niðurstöðum þriggja skoðanakannana. Þær eru eftirfarandi:
- Skoðanakönnun MMR 26. – 28. september (vægi 35,1%)
- Þjóðarpúls Gallup 15. – 28. september (vægi 35,0%)
- Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25. – 28. september (vægi 29,9%)
Hvað er kosningaspáin?
Fyrir hverjar kosningar um allan heim birta fjölmiðlar gríðarlegt magn af upplýsingum. Þessar upplýsingar eru oftar en ekki tölfræðilegar, byggðar á skoðanakönnunum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upplifir stjórnmálin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórnmálafræðingar og fjölmiðlar keppast svo við að túlka niðurstöðurnar og veita almenningi enn meiri upplýsingar um stöðuna í heimi stjórnmálanna.
Allar þessar kannanir og allar mögulegar túlkanir á niðurstöðum þeirra kunna að vera ruglandi fyrir hinn almenna neytanda. Einn kannar skoðanir fólks yfir ákveðið tímabil og annar kannar sömu skoðanir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könnunin er nákvæmari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vandinn er að hinn almenni kjósandi hefur ekki forsendur til að meta áreiðanleika hverrar könnunar.
Þar kemur kosningaspáin til sögunnar.
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Niðurstöður spálíkansins eru svo birtar hér á Kjarnanum reglulega í aðdraganda kosninga.
Til útskýringar má segja að vægi kannana er gefið eftir því hversu næmur könnunaraðilinn og aðferðir hans eru á raunverulegar hreyfingar í samfélaginu. Kosningar eru auðvitað eini mælikvarðinn á það hversu vel könnunaraðilum tekst upp svo miðað er við söguleg gögn og þau borin saman við kosningaúrslit til að ákvarða áreiðanleika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könnunin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.
Kjarninn birti Kosningaspá Baldurs fyrst í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2014 og reyndist sú tilraun vel. Á vefnum kosningaspá.is má lesa niðurstöður þeirrar spár og hvernig vægi kannana var í takt við frávik kannana miðað við kosningaúrslitin.
Kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar er nú keyrð í aðdraganda Alþingiskosninga 28. október í annað sinn. Kosningaspáin fékk mikla athygli fyrir síðustu Alþingiskosningar 2016, ekki síst fyrir þingsætaspána þar sem spáð var um hvaða frambjóðendur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neðan.
Í nýjustu kosningaspánni hverju sinni eru nýjustu kannanir könnunaraðila vegnar eftir áreiðanleika. Fylgi einstakra framboða er svo fundið með vegnu meðaltali úr þeim könnunum sem liggja til grundvallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að verulegu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könnunar fyrir sig er metið út frá fyrirfram gefnum forsendum, eins og stærð úrtaks, fjölda svarenda, lengd könnunartímabils og áreiðanleika könnunaraðila. Áreiðanleiki könnunaraðila byggir á því hversu nærri kannanirnar hafa komist niðurstöðum kosninga á undanförnum árum.
Þær kannanir sem teknar eru gildar í kosningaspánni verða að uppfylla lágmarks skilyrði tölfræðilegrar aðferðafræði. Þar er litið til stærðar úrtaksins, fjölda svarenda, könnunartímabils og þess hvort úrtakið standist kröfur til að reynast marktækt, svo fátt eitt sé nefnt.