Sífellt fleiri styðja Vinstri græn

Vinstri græn eru nú með 26,1 prósent fylgi miðað við kosningaspána og eru að ná forskoti á Sjálfstæðisflokkinn. Samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins eru með minnstan stuðning allra framboða sem mælast í könnunum.

Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð nýtur sífellt meiri stuðn­ings meðal almenn­ings, ef marka má kosn­inga­spá Bald­urs Héð­ins­sonar og Kjarn­ans sem unnin var um helg­ina. Flokk­ur­inn, með Katrínu Jak­obs­dóttur í far­ar­broddi, nýtur nú stuðn­ings 26,1 pró­sent kjós­enda í kosn­inga­spánni.

Eins og í síð­ustu Kosn­inga­spám mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn næst stærsta stjórn­mála­aflið á Íslandi með 23,6 pró­sent stuðn­ing. Það er litlu meira en flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar mæld­ist með fyrir helgi. Sam­an­lagt styðja um það bil 49 pró­sent kjós­enda annan þess­ara flokka.

Á miðj­unni – ef svo má að orði kom­ast – hafa einnig orðið nokkrar vend­ingar síðan kosn­inga­spáin var gerð síð­ast. Sam­fylk­ingin er nú að öllum lík­indum með 9,1 pró­sent fylgi, meira en Flokkur fólks­ins sem nýtur stuðn­ings 8,6 pró­sent kjós­enda.

Stuðningur við framboð 1. október 2017

Mældur stuðningur við stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Alþingiskosningunum næstkomandi, miðað við kosningaspána.

Stuðn­ingur við Pírata minnkar einnig, og er 10,5 pró­sent. Sífellt færri styðja Pírata miðað við kosn­inga­spána, en síðan rík­is­stjórnin féll 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hefur stuðn­ingur við Pírata minnkað í hvert sinn sem kosn­inga­spáin hefur verið gerð.

Mið­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

Mið­flokkur Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar var mældur í fyrsta sinn í kosn­inga­spánni 28. sept­em­ber og var stuðn­ingur við fram­boð hans þá 7,1 pró­sent. Eins og útskýrt var á þessum vett­vangi á laug­ar­dag­inn þá var mæl­ingin á fram­boði hans sú óáreið­an­leg­asta vegna þess að aðeins ein könnun hafði mælt stuðn­ing við fram­boð hans.

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mældu allar þrjár kann­an­irnar sem spáin byggir á Mið­flokk­inn og því er útreikn­ingur á stuðn­ingi við fram­boð hans jafn áreið­an­legt og allra hinna fram­boð­anna í kosn­inga­spánni. Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,1 pró­sent stuðn­ing.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist enn líða fyrir klofn­ing­inn og fylgi við flokk­inn minnkar enn og mælist nú 7,8 pró­sent. Það er minna en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mælst með nokkru sinni í kosn­inga­spánni. Fyrsta kosn­inga­spáin fyrir Alþing­is­kosn­ingar var unnin 20. jan­úar 2016.

Sam­an­lagt er stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn og Mið­flokk­inn 13,9 pró­sent. Það er hins vegar mun meira en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mælst með síðan kosn­inga­spáin var fyrst unnin fyrir Alþing­is­kosn­ing­ar. Stuðn­ing­ur­inn var mestur 1. apríl 2016, áður en Panama­skjölin skóku íslensk stjórn­mál, þegar Fram­sókn­ar­flokkur Sig­mundar Dav­íðs mælist með 12,3 pró­sent.

Þróun stuðnings við stjórnmálaflokka í kosningaspánni

Mældur stuðningur við stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Alþingiskosningunum næstkomandi, miðað við kosningaspána.

A B C D F M P S V Aðrir

Afhroð stjórn­ar­flokka

Stjórn­mála­flokkar hafa fæstir riðið feitum hesti frá kosn­ingum eftir að hafa starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn. Sagan virð­ist ætla að end­ur­taka sig í ár því Við­reisn og Björt fram­tíð mæl­ast enn með mjög lítið fylgi.

Við­reisn mælist með 4,4 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni, minna en flokk­ur­inn hefur haft síðan 2. júní 2016. Björt fram­tíð rekur lest­ina í kosn­inga­spánni með 3,8 pró­sent.

Það er ágæt þum­al­putta­regla að miða við að flokkur þurfi að fá fimm pró­sent atkvæða í kosn­ingum á lands­vísu til þess að ná kjöri. Það gæti hins vegar verið svo að flokkur fái mun meira fylgi í einu kjör­dæmi umfram önnur og náð kjöri þannig, þrátt fyrir lítið fylgi á lands­vísu.

Kann­anir til grund­vallar kosn­inga­spá

Nýjasta kosn­inga­spáin byggir á nið­ur­stöðum þriggja skoð­ana­kann­ana. Þær eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 35,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 15. – 28. sept­em­ber (vægi 35,0%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 25. – 28. sept­em­ber (vægi 29,9%)

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Til útskýr­ingar má segja að vægi kann­ana er gefið eftir því hversu næmur könn­un­ar­að­il­inn og aðferðir hans eru á raun­veru­legar hreyf­ingar í sam­fé­lag­inu. Kosn­ingar eru auð­vitað eini mæli­kvarð­inn á það hversu vel könn­un­ar­að­ilum tekst upp svo miðað er við sögu­leg gögn og þau borin saman við kosn­inga­úr­slit til að ákvarða áreið­an­leika. Þá skiptir máli hversu langt er liðið síðan könn­unin var gerð og hversu margir tóku þátt í henni.

Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrst í aðdrag­anda sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­a 2014 og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­inga­úr­slit­in.

Kosn­­­inga­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar er nú keyrð í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga 28. októ­ber í annað sinn. Kosn­inga­spáin fékk mikla athygli fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar 2016, ekki síst fyrir þing­sæta­spána þar sem spáð var um hvaða fram­bjóð­endur myndu ná kjöri. Nánar um það hér að neð­an.

Í nýj­­­ustu kosn­­­inga­­­spánni hverju sinni eru nýj­ustu kann­anir könn­un­ar­að­ila vegnar eftir áreið­an­leika. Fylgi ein­stakra fram­boða er svo fundið með vegnu með­al­tali úr þeim könn­unum sem liggja til grund­vallar hverri spá fyrir sig. Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Sil­ver. Um það má lesa hér. Vægi hverrar könn­unar fyrir sig er metið út frá fyr­ir­fram gefnum for­send­um, eins og stærð úrtaks, fjölda svar­enda, lengd könn­un­ar­tíma­bils og áreið­an­leika könn­un­ar­að­ila. Áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila byggir á því hversu nærri kann­an­irnar hafa kom­ist nið­ur­stöðum kosn­inga á und­an­förnum árum.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnBirgir Þór Harðarson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar