Þrír ráðherrar og forseti Alþingis í fallhættu
Þingsætaspáin reiknar líkur fyrir alla frambjóðendur. Hverjir eru öruggir og hverjir eru í fallhættu? Meira hér.
Ráðherrarnir Benedikt Jóhannesson, Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé auk Unnar Brár Konráðsdóttur, forseta Alþingis, munu að öllum líkindum ekki ná kjöri ef marka má nýja þingsætaspá Kjarnans.
Í þingsætaspánni eru reiknaðar líkur fyrir hvern frambjóðenda á öllum listum á því að ná kjöri í Alþingiskosningunum, byggðar á fyrirliggjandi gögnum um fylgi stjórnmálaflokka og sögulega útkomu kosninga.
Uppfærða þingsætaspá má finna í kosningaspá Kjarnans ásamt nýjustu kosningaspánni hverju sinni.
Björt framtíð úti í 80% tilvika
Kosningaspáin á landsvísu sýnir að 80 prósent líkur eru á að Björt framtíð fái ekki mann kjörinn á Alþingi miðað við nýjustu niðurstöður nýjustu kosningaspárinnar. Fylgi Bjartrar framtíðar hefur verið að minnka að undanförnu og um leið hafa líkurnar á því að flokkurinn falli af þingi vaxið.
Björt Ólafsdóttir, oddviti Bjartar framtíðar í Suðvesturkjördæmi og umhverfisráðherra, á besta möguleika á að ná kjöri ef rýnt er í kjördæmagögnin hér að neðan. Björt var kjörin í 13 prósent tilvika í sýndarkosningum kosningaspárinnar. Óttarr Proppé, formaður flokksins og heilbrigðisráðherra, hefur aðeins átta prósent líkur á því að ná kjöri í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Þriðji ráðherrann sem á litla möguleika á að ná kjöri er Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra og fyrrverandi formaður Viðreisnar. Hann leiðir lista flokksins í Norðausturkjördæmi og hefur 21 prósent líkur á því að ná kjöri miðað við niðurstöðu þingsætaspárinnar.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, er í fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún náði kjöri í aðeins 13 prósent tilvika í 100.000 sýndarkosningum þingsætaspárinnar. Unnur Brá var í sama sæti í kosningunum í fyrra og náði kjöri.
- 5%Arngrímur Viðar Ásgeirsson
- 0%Halla Björk Reynisdóttir
- 0%Hörður Finnbogason
- 77%Þórunn Egilsdóttir
- 18%Líneik Anna Sævarsdóttir
- 1%Þórarinn Ingi Pétusson
- 21%Benedikt Jóhannesson
- 1%Hildur Betty Kristjánsdóttir
- 0%Jens Hilmarsson
- 100%Kristján Þór Júlíusson
- 87%Njáll Trausti Friðbertsson
- 27%Valgerður Gunnarsdóttir
- 1%Arnbjörg Sveinsdóttir
- 25%Halldór Gunnarsson
- 1%Pétur Einarsson
- 0%Ástrún Lilja Sveinbjörnsdóttir
- 92%Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
- 36%Anna Kolbrún Árnadóttir
- 2%Þorgrímur Sigmundsson
- 49%Einar Aðalsteinn Brynjólfsson
- 4%Guðrún Ágústa Þórdísardóttir
- 0%Hrafndís Bára Einarsdóttir
- 92%Logi Már Einarsson
- 33%Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
- 2%María Hjálmarsdóttir
- 100%Steingrímur Jóhann Sigfússon
- 100%Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
- 90%Ingibjörg Þórðardóttir
- 35%Edward H. Huijbens
- 3%Óli Halldórsson
- 0%Kristín Sigurgeirsdóttir
- 0%Elín Matthildur Kristinsdóttir
- 4%Guðlaug Kristjánsdóttir
- 79%Ásmundur Einar Daðason
- 14%Halla Signý Kristjánsdóttir
- 0%Stefán Vagn Stefánsson
- 23%Gylfi Ólafsson
- 0%Lee Ann Maginnis
- 0%Haraldur Sæmundsson
- 100%Haraldur Benediktsson
- 84%Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
- 17%Teitur Björn Einarsson
- 19%Magnús Þór Hafsteinsson
- 0%Hjördís Heiða Ásmundsdóttir
- 0%Júlíus Ragnar Pétursson
- 88%Bergþór Ólason
- 18%Sigurður Páll Jónsson
- 0%Jón Þór Þorvaldsson
- 50%Eva Pandora Baldursdóttir
- 2%Gunnar I. Guðmundsson
- 0%Rannveig Ernudóttir
- 87%Guðjón S. Brjánsson
- 16%Arna Lára Jónsdóttir
- 0%Jónína Björg Magnúsdóttir
- 100%Lilja Rafney Magnúsdóttir
- 83%Bjarni Jónsson
- 15%Rúnar Gíslason
- 6%Jasmina Crnac
- 0%Arnbjörn Ólafsson
- 0%Valgerður Björk Pálsdóttir
- 77%Sigurður Ingi Jóhannsson
- 19%Silja Dögg Gunnarsdóttir
- 1%Ásgerður K. Gylfadóttir
- 28%Jóna Sólveig Elínardóttir
- 1%Arnar Páll Guðmundsson
- 0%Stefanía Sigurðardóttir
- 100%Páll Magnússon
- 98%Ásmundur Friðriksson
- 65%Vilhjálmur Árnason
- 13%Unnur Brá Konráðsdóttir
- 33%Karl Gauti Hjaltason
- 3%Heiða Rós Hauksdóttir
- 0%Guðmundur Borgþórsson
- 90%Birgir Þórarinsson
- 33%Elvar Eyvindsson
- 2%Sólveig Guðjónsdóttir
- 75%Smári McCarty
- 16%Álfheiður Eymarsdóttir
- 0%Fanný Þórsdóttir
- 95%Oddný G. Harðardóttir
- 46%Njörður Sigurðsson
- 4%Arna Ír Gunnarsdóttir
- 99%Ari Trausti Guðmundsson
- 77%Heiða Guðný Ásgeirsdóttir
- 19%Daníel E. Arnarsson
- 1%Dagný Alda Steinsdóttir
- 9%Óttarr Proppé
- 1%Auður Kolbrá Birgisdóttir
- 0%Sunna Jóhannsdóttir
- 32%Lárus Sigurður Lárusson
- 2%Kjartan Þór Ragnarsson
- 0%Tanja Rún Kristmannsdóttir
- 54%Þorsteinn Víglundsson
- 10%Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
- 0%Páll Rafnar Þorsteinsson
- 100%Guðlaugur Þór Þórðarson
- 88%Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
- 35%Birgir Ármannsson
- 4%Albert Guðmundsson
- 37%Ólafur Ísleifsson
- 6%Kolbrún Baldursdóttir
- 0%Svanberg Hreinsson
- 64%Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir
- 11%Guðlaugur G. Sverrisson
- 0%Sólveig Bjarney Daníelsdóttir
- 93%Helgi Hrafn Gunnarsson
- 54%Halldóra Mogensen
- 7%Gunnar Hrafn Jónsson
- 98%Helga Vala Helgadóttir
- 66%Páll Valur Björnsson
- 12%Eva H. Baldursdóttir
- 100%Katrín Jakobsdóttir
- 100%Steinunn Þóra Árnadóttir
- 84%Andrés Ingi Jónsson
- 28%Halla Gunnarsdóttir
- 8%Nicole Leigh Mosty
- 1%Hörður Ágústsson
- 0%Starri Reynisson
- 38%Lilja Dögg Alfreðsdóttir
- 4%Alex B. Stefánsson
- 0%Birgir Örn Guðjónsson
- 55%Hanna Katrín Friðriksson
- 11%Pawel Bartoszek
- 0%Dóra Sif Tynes
- 100%Sigríður Á. Andersen
- 96%Brynjar Níelsson
- 53%Hildur Sverrisdóttir
- 9%Bessí Jóhannsdóttir
- 37%Inga Sæland
- 6%Guðmundur Sævar Sævarsson
- 0%Linda Mjöll Gunnarsdóttir
- 67%Þorsteinn B. Sæmundsson
- 12%Valgerður Sveinsdóttir
- 0%Baldur Borgþórsson
- 90%Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
- 41%Björn Leví Gunnarsson
- 4%Olga Cilia
- 98%Ágúst Ólafur Ágústsson
- 64%Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
- 11%Einar Kárason
- 100%Svandís Svavarsdóttir
- 99%Kolbeinn Óttarsson Proppé
- 75%Orri Páll Jóhannsson
- 19%Eydís Blöndal
- 13%Björt Ólafsdóttir
- 2%Karólína Helga Símonardóttir
- 0%Halldór Jörgensson
- 60%Willum Þór Þórsson
- 18%Kristbjörg Þórisdóttir
- 2%Linda Hrönn Þórisdóttir
- 66%Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
- 26%Jón Steindór Valdimarsson
- 3%Sigríður María Egilsdóttir
- 100%Bjarni Benediktsson
- 100%Bryndís Haraldsdóttir
- 92%Jón Gunnarsson
- 55%Óli Björn Kárason
- 36%Guðmundur Ingi Kristinsson
- 9%Jónína Björk Óskarsdóttir
- 1%Edith Alvarsdóttir
- 79%Gunnar Bragi Sveinsson
- 31%Una María Óskarsdóttir
- 4%Kolfinna Jóhannesdóttir
- 86%Jón Þór Ólafsson
- 44%Oktavía Hrund Jónsdóttir
- 8%Dóra Björt Guðjónsdóttir
- 99%Guðmundur Andri Thorsson
- 80%Margrét Tryggvadóttir
- 32%Adda María Jóhannsdóttir
- 4%Finnur Beck
- 99%Rósa Björk Brynjólfsdóttir
- 85%Ólafur Þór Gunnarsson
- 38%Una Hildardóttir
- 7%Fjölnir Sæmundsson
100.000 sýndarkosningar búa að baki
Þingsætaspáin er byggð á reiknilíkani Baldurs Héðinssonar og Stefáns Inga Valdimarssonar. Í stuttu máli er aðferðafræðin sú að fylgi framboða í skoðanakönnunum er talin líklegasta niðurstaða kosninga að viðbættri óvissu sem byggir á sögulegu fráviki kannana frá kosningaúrslitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/vanmeta fylgi flokks í einu kjördæmi og að ofmeta/vanmeta fylgi flokksins í öðrum kjördæmum. Frávikið frá líklegustu niðurstöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjördæma. Ef frávikið er neikvætt í einu kjördæmi fyrir ákveðinn flokk aukast líkurnar á að það sé sömuleiðis neikvætt í öðrum kjördæmum.
Reiknilíkanið hermir 100.000 „sýndarkosningar“ og úthlutar kjördæma- og jöfnunarsætum út frá niðurstöðunum. Líkur frambjóðanda á að ná kjöri er þess vegna hlutfall „sýndarkosninga“ þar sem frambjóðandinn nær kjöri.
Nánar má lesa um aðferðafræði Kosningaspárinnar í kosningamiðstöð Kjarnans.
Tökum ímyndað framboð X-listans í Norðvesturkjördæmi sem dæmi: Framboðið mælist með 20 prósent fylgi. Í flestum „sýndarkosningunum“ fær X-listinn 2 þingmenn en þó kemur fyrir að fylgið í kjördæminu dreifist þannig að niðurstaðan er aðeins einn þingmaður. Sömuleiðis kemur fyrir að X-listinn fær þrjá þingmenn í kjördæminu og í örfáum tilvikum eru fjórir þingmenn í höfn.
Ef skoðað er í hversu mörgum „sýndarkosningum“ hver frambjóðandi komst inn sem hlutfall af heildarfjölda fást líkurnar á að sá frambjóðandi nái kjöri. Sem dæmi, hafi frambjóðandinn í 2. sæti X-listans í Norðvesturkjördæmi náð kjöri í 90.000 af 100.000 „sýndarkosningum“ þá reiknast líkurnar á því að hann nái kjöri í Alþingiskosningunum 90 prósent.
Skoðanakannanir í aðdraganda Alþingiskosninga 2009 og 2013 voru notaðar til að sannprófa þingsætaspánna, þar sem spáin er borin saman við endanlega úthlutun þingsæta. Þingsætaspáin var jafnframt birt í fyrsta sinn í aðdraganda Alþingiskosninga 2016.
Þingmannaspáin sem birtist hér styðst við kjördæmagögn úr þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 16. til 19. október. Kjördæmafylgistölur flokkanna úr þjóðmálakönnuninni eru aðlagaðar að fylgistölum á landsvísu í nýjustu kosningaspá.
Sjálfstæðisflokkurinn tekur forystu
Í nýjustu kosningaspánni er Sjálfstæðisflokkurinn aftur orðinn vinsælasta stjórnmálaafl á landsvísu með 23,6 prósent fylgi. Vinstri græn, sem hafa verið stærsti flokkurinn í skoðanakönnunum síðan ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar féll 15. september 2017, er með 22,1 prósent fylgi.
Samfylkingin er þriðja stærsta stjórnmálaaflið í kosningaspánni með 14,2 prósent fylgi. Miðflokkurinn er að slíta sig frá Pírötum og er nú með 10,5 prósent stuðning miðað við 9,3 prósent stuðning við Pírata.
Framsóknarflokkurinn er með 7,7 prósent stuðning í nýjustu kosningaspánni, tveimur prósentustigum meira en Viðreisn sem dalar örlítið síðan í síðustu kosningaspá og er með 5,7 prósent nú.
Flokkur fólksins og Björt framtíð reka lestina í kosningaspánni. Flokkur Ingu Sæland er með 4,4 prósent stuðning og Björt framtíð er með 1,5 prósent á landsvísu.