Erlendir ríkisborgarar orðnir 23 prósent íbúa í Reykjanesbæ

Erlendum ríkisborgurum heldur áfram að fjölga á Íslandi. Án komu þeirra myndi íbúum landsins fækka. Mjög mismunandi hvar þeir setjast að. Í Reykjanesbæ voru erlendir ríkisborgarar 8,6 prósent íbúa í lok árs 2011. Nú eru þeir 23 prósent þeirra.

Sá mikli uppgangur sem á sér stað á Íslandi útheimtir mikið af nýju vinnuafli. Það vinnuafl þarf að sækja erlendis.
Sá mikli uppgangur sem á sér stað á Íslandi útheimtir mikið af nýju vinnuafli. Það vinnuafl þarf að sækja erlendis.
Auglýsing

Öll fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018, og vel rúm­lega það, má rekja til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Þeir eru nú orðnir 41.280 tals­ins og hefur fjölgað um 3.328 frá ára­mót­um, eða um 8,7 pró­sent. Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nes­bæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Alls eru Íslend­ingar nú 353.070 tals­ins. Erlendir rík­is­borg­arar eru tæp­lega tólf pró­sent af íbúum lands­ins. Þetta kemur fram í nýbirtum mann­fjölda­tölum Hag­stofu Íslands sem sýna stöð­una í lok júní síð­ast­lið­ins.

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 97 pró­sent frá lokum árs 2011. Það þýðir að fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á sex og hálfu ári. Þeir hafa aldrei verið fleiri og fjölgun þeirra hefur aldrei verið hrað­ari en á síð­ustu 18 mán­uð­um.

Auglýsing

Fjölgar hratt í Reykja­vík

Um síð­ustu ára­mót bjuggu 23.200 erlendir rík­is­borg­arar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar af bjuggu 15.640 í Reykja­vík. Til sam­an­burðar bjuggu 330 á Sel­tjarn­ar­nesi en 640 í Garða­bæ.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 hefur erlendum rík­is­borg­urum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað um 1.910 og eru nú 25.110. Það þýðir að 57 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem setj­ast hér að flytja á höf­uð­borg­ar­svæð­ið.

Flestir nýju íbú­anna setj­ast enda að í Reykja­vík, en á fyrri helm­ingi árs­ins fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum í höf­uð­borg­inni um 1.370. Útlend­ingum fjölg­aði ekk­ert á meðal íbúa Sel­tjarn­ar­ness og Garða­bæjar á sama tíma­bili.

Frá lokum árs 2011 hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa innan marka Reykja­víkur fjölgað um 54 pró­sent. Þeir eru nú 13,4 pró­sent þeirra 127.220 íbúa sem búa í höf­uð­borg­inni. Fyrir sex og hálfu ári síðan voru þeir átta pró­sent íbúa henn­ar.

Næstum fjórði hver erlendur

Sú aukn­ing kemst þó ekki nálægt því sem er að eiga sér stað í Reykja­nes­bæ. Þar hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 17 pró­sent það sem af er árinu 2018. Þeir voru 3.650 um ára­mót en eru nú 4.270.

Ástæðan er fyrst og síð­ast sú aukna þörf á vinnu­afli sem aukin umsvif í kringum alþjóða­flug­völl­inn útheimtir, en nýbirtar tölur sýna að ferða­menn sem heim­sóttu Ísland voru 2,7 millj­ónir í fyrra. Árið 2010 voru þeir um hálf millj­ón.

Þessi staða hefur gert það að verkum að breyt­ing­arnar á sam­setn­ingu íbúa í Reykja­nesbæ hafa orðið meiri en áður hefur þekkst í íslensku sam­fé­lagi. Í lok árs 2011 bjuggu þar 1.220 erlendir rík­is­borg­arar og voru 8,6 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í dag búa 18.510 manns í Reykja­nesbæ og erlendir rík­is­borg­arar þar eru, líkt og áður sagði, 4.270. Því eru 23 pró­sent íbúa Reykja­nes­bæjar erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það hlut­fall var 20 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar