25 ára Reykjanesbær stendur betur en nokkru sinni fyrr
Reykjanesbær var fyrir nokkrum árum skuldsettasta sveitarfélag landsins og skuldir þess námu um 250 prósent af reglulegum tekjum þess. Á örfáum árum hefur orðið mikil viðsnúningur og í dag, þegar sveitarfélagið fagnar 25 ára afmæli, er skuldastaðan komin undir lögboðið viðmið.
Reykjanesbær varð til fyrir nákvæmlega aldarfjórðungi síðan, 11. júní 1994, þegar bæjarfélögin Keflavík, Njarðvík og Hafnir sameinuðust undir því nafni. Sveitarfélagið er í dag fjórða stærsta sveitarfélag landsins með 19.020 íbúa, eftir að hafa nýverið tekið fram úr Akureyri sem lengi hefur vermt það sæti. Íbúar höfuðstaðar Norðurlands voru, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, 18.950 í lok mars síðastliðins.
Ferðalag þessa sveitarfélags síðustu 25 árin hefur verið mikil rússíbanareið. Stórir vinnustaðir hafa lokað með tilheyrandi búsifjum, tilraunir til viðbragðs mistekist hrapalega, endurreisn átt sér stað og henni hafa fylgt ýmis konar ný vandamál.
Þá vakti nafnabreytingin sjálf upp hörð viðbrögð hjá hluta íbúa, sem skilgreina sig margir hverjir enn sem Keflvíkinga, Njarðvíkinga eða Hafnarbúa. Tónlistarmaðurinn Rúnar Júlíusson heitinn, einn ástsælasti sonur Keflavíkur, hótaði því meðal annars að flytja úr sveitarfélaginu ef breytingin gengi í gegn. Af því varð þó ekki og hann bjó þar til æviloka.
Herinn fór og tilraunir mistókust
Það hafa skipst á skin og skúrir í Reykjanesbæ frá því að sveitarfélagið varð til, sérstaklega á síðustu árum. Árið 2006 hvarf Bandaríkjaher frá landinu og þar með lokaði stærsti vinnustaður þess sem tryggði Reykjanesbæ auk þess margháttaðar tekjur.
Til að bregðast við þeirri stöðu hófu stjórnmálamenn, meðal annars í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, að beita sér fyrir uppbyggingu iðnaðarsvæðis í Helguvík. Samhliða gekkst Reykjanesbær í ábyrgð fyrir milljarða króna uppbyggingu hafnar á svæðinu. Hugmyndin var sú að höfnin myndi síðar skila sveitarfélaginu miklum tekjum þegar stóriðjufyrirtæki hæfu starfsemi sína þar. Þá var lagt í átak við að fjölda íbúum sveitarfélagsins með ódýrum lóðaútdeilingum.
Íbúum í Reykjanesbæ fjölgaði um 30 prósent á árunum 2005 til 2009. Það var líka ákveðið að selja allar verðmætustu eignir sveitarfélagsins, þar á meðal eignarhlutinn í HS Orku. Á þessu tímabili, 2003 til 2014, skilaði var A-hluti Reykjanesbæjar rekinn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.
Gripið til neyðaraðgerða
Samandregið þá fór áætlunin um viðbragð við brotthvarfi hersins ekki eins og lagt var upp með. Þess í stað endaði Reykjanesbær sem eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins og rekstur þess árum saman var afleitur. Á tímabilinu 2003 til 2014 var A-hluti Reykjanesbæjar rekinn í tapi öll árin utan eins, það var árið 2010.
Vegna þessa þurfti sveitarfélagið meðal annars að leggja auknar skattbyrðar á íbúa sína.
Þessi staða varð meðal annars til þess að Sjálfstæðisflokkurinn missti hreinan meirihluta sinn í kosningunum 2014. Nýr meirihluti Samfylkingar, Beinnar leiðar og Frjáls afls tók við og réð Kjartan Már Kjartansson sem bæjarstjóra.
Verkefnið sem sveitarfélagið stóð frammi fyrir á þessum tíma var gríðarlega umfangsmikið. Reykjanesbær var skuldsettasta sveitarfélag landsins. Skuldir þess voru tæplega 41 milljarður króna í lok árs 2014, eða rúmlega 250 prósent af reglulegum tekjum sveitarfélagsins en samkvæmt sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi árið 2012 var leyfilegt skuldahlutfall að hámarki 150 prósent. Skuldastaða Reykjanesbæjar var því beinleiðis í andstöðu við lög.
Fjárfestingarnar sem ráðist hafði verið í skiluðu mun minna til baka er vonir stóðu til um. Skuldir vegna hafnaruppbyggingarinnar voru orðar 7,5 milljarðar króna árið 2015. Margir þeirra sem fengu lóðir í sveitarfélaginu stóðu ekki undir þeirri skuldbindingu og Íbúðalánasjóður tók yfir húsin þeirra. Alls voru rúmlega 40 prósent allra eigna sem Íbúðalánasjóður hélt á árið 2015 á Suðurnesjum. Á því ári voru 17 prósent íbúa á svæðinu í alvarlegum vanskilum sem var hæsta hlutfall vanskila á landinu. Langtímaatvinnuleysi var líka mikið vandamál í sveitarfélaginu.
Ráðist í „Sóknina“
Til að bregðast við þessu var ráðist í aðgerðaráætlun til átta ára, sem kallaðist „Sóknin“. Helst markmið hennar var að ná skuldahlutfallinu niður fyrir 150 prósent fyrir árið 2021. Í þessu átaki fólst að íbúar þurftu að bera auknar burðar. Lagt var aukaálag ofan á hámarksútsvar, fasteignaskattar hækkaðir, föst yfirvinna bæjarstarfsmanna lögð af, ökutækjastyrkir aflagðir, fagsviðum fækkað og ýmsum millistjórnendum sagt upp störfum.
Í hálkunni milli jóla og nýárs 2014 var íbúum boðið að koma og sækja sand til að dreifa á stéttina hjá sér. Það voru ekki til bæjarstarfsmenn til að sinna því viðviki.
Í febrúar 2015 skrifaði nýr bæjarstjóri, Kjartan Már, grein þar sem hann lýsti veruleikanum sem blasti við. Þar sagði meðal annars: „Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar er graf alvarleg. Sú staðreynd hefur legið fyrir um nokkurt skeið. Samt eru ótrúlega margir sem halda ennþá að þetta sé bara pólitískur skollaleikur með það að markmiði að láta stöðuna líta verr út en hún raunverulega er. Það er fjarri lagi.[...]Samt hitti ég fólk af og til sem heldur hinu gagnstæða fram og trúir því að þetta sé allt í plati. „Var nú nauðsynlegt að hækka útsvarið? Var nauðsynlegt að hækka fasteignaskattinn?
Var nauðsynlegt að draga saman og hagræða í rekstri? Var nú nauðsynlegt að segja upp fastri yfirvinnu? Var nú nauðsynlegt að segja upp föstum aksturstyrkjum? Var nauðsynlegt að fækka fagsviðum? Var nú nauðsynlegt að segja upp öllum framkvæmdastjórunum? Var nú nauðsynlegt að gera samning við innanríkisráðuneytið? Var nú nauðsynlegt að …….“ Öllum spurningum í þessum dúr er bara hægt að svara á einn veg; „Já, það var bráðnauðsynlegt að taka þessar ákvarðanir þótt erfiðar væru.“
Kjartan sagði ennfremur að komið sé að ögurstundu og það hafi einfaldlega ekki verið hægt að bíða lengur og sjá hvort ástandið myndi lagast. Það þurfi að grípa til aðgerða og það hafi veirð gert. Skuldir Reykjanesbæjar séu allt of háar og að það þurfi að greiða þær niður.„Það gerum við ekki nema með því að eiga rekstrarafgang á hverju ári sem nota má til þess að greiða niður skuldir og því þurfum við að halda gríðarlega vel á spilunum á næstu 8 árum að minnsta kosti. Allir sem halda öðru fram eru í afneitun og á villigötum.“
Ný uppbygging
Á þessum tíma var þó lífsmark í atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Tilraunir til að byggja álver í Helguvík reyndust með öllu óraunhæfur og hafa verið sleggnar af. Þá fór uppbygging kísilvera í Helguvík illa og mikill þrýstingur er á það meðal íbúa að slík fái einfaldlega ekki a starfa á svæðinu. En gagnver voru risin, líftæknifyrirtæki voru með starfsemi í pípunum og svo var auðvitað að eiga sér stað fordæmalaus vöxtur í ferðaþjónustu þar sem Keflavíkurflugvöllur lék lykilhlutverk.
Næstu ár voru sveitarfélaginu góð. Atvinnuleysið nánast hvarf, íbúum sveitarfélagsins fjölgaði mest allra á landinu, fasteignaverð hækkaði gríðarlega og tekjur sveitarfélagsins jukust skarpt. Störfin sem urðu til voru flest tengd ferðaþjónustu, enda fjölgaði ferðamönnum úr hálfri milljón í 2,3 milljónir á sjö árum.
Á sama tímabili fjölgaði íbúum sveitarfélagsins mjög hratt. Um mitt ár 2011, þegar ástandið var nokkuð hart í Reykjanesbæ, bjuggu þar 13.990 manns. Þar af voru 1.230 erlendir ríkisborgarar. Í lok mars síðastliðins voru íbúar sveitarfélagsins orðnir 19.020 og hafði þar með fjölgað um 5.030 á nokkrum árum. Alls var 93 prósent aukningarinnar tilkomin vegna fjölgunar á erlendum ríkisborgurum sveitarfélagsins. Þeir voru 8,8 prósent íbúa þess 2011 en 24,5 prósent þeirra í lok mars síðastliðins.
Þegar síðasti ársreikningur Reykjanesbæjar var afgreiddur í bæjarstjórn í maí 20198 var niðurstaða hans sú besta sem sést hefur í sögu sveitarfélagsins. Skuldaviðmið samstæðu sveitarfélagsins var komin niður í 137,29 prósent, og þar með undir lögboðið 150 prósent viðmið.
Fá milljarða vegna sölu á HS Orku
Reykjanesbær fékk síðan enn einar gleðifréttirnar stuttu síðar, þegar gengið var frá sölu á hlut Fjárfestingarsjóðsins ORK í HS Orku til félags í eigu íslenskra lífeyrissjóða.
Í ágúst 2012 seldi Reykjanesbær nefnilega skuldabréf sem sveitarfélagið eignaðist við sölu á hlut þess í HS Orku til Geysis Green Energy. Kaupandinn var áðurnefndur sjóður, ORK, sem rekinn var af Virðingu, sem síðar gekk í gegnum nokkrar sameiningar og er nú hluti af Kviku banka. Sjóðurinn var fjármagnaður af lífeyrissjóðum og fagfjárfestum.
Heimildir Kjarnans herma að kaupverðið hafi verið 8,8 milljarðar króna. Reykjanesbær á rétt á því að fá rúmlega fjóra milljarða króna til viðbótar við það sem sveitarfélagið fékk þegar það seldi skuldabréfið upphaflega. Þeim verður öllum ráðstafað til niðurgreiðslu skulda.
Fall WOW air hefur mikil áhrif
Það hafa þó einnig teiknast upp nýjar áskoranir. Við fall WOW air í lok mars sagði bæjarráð Reykjanesbæjar ljóst að áfallið muni hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tíma. Það sé einkum vegna þess hversu mikill fjöldi íbúa hafi starfað hjá WOW air eða í fyrirtækjum sem veitti WOW air bæði beina og óbeina þjónustu.
Í mars 2019 voru 709 manns atvinnulausir í Reykjanesbæ, eða 6,7 prósent, miðað við 330 manns í mars 2018, eða 3,1 prósent, miðað við tölur Vinnumálastofnunar. Fjöldinn nær þó ekki fjölda atvinnulausra árið 2011 þegar 1190 manns voru atvinnulausir í Reykjanesbæ.
Mun fleiri karlar eru atvinnulausir en konur, eða 421 karl á móti 288 konum og flestir þeirra eru á aldrinum 25-29 ára. Flestir atvinnulausra í Reykjanesbæ hafa grunnskóla sem hæstu menntun, eða 371 manns, þar á eftir koma háskólamenntaðir eða 127 manns. Flestir atvinnulausra eru íslenskir ríkisborgarar, það er 319 manns, en Pólverjar koma fast á eftir með 287 manns.
En við blasir að staða hins 25 ára gamla sveitarfélags er betri nú en nokkru sinni í sögu þess.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars