Undirbúa viðbrögð eftir fall WOW air

Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ harma að WOW air hafi hætt starfsemi. Bæjarráð Reykjanesbæjar segir ljóst að áfallið muni hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tíma. Suðurnesjabær fylgist grannt með gangi mála og undirbýr viðbrögð.

Öryggisvörður í Leifsstöð
Auglýsing

Bæj­ar­yf­ir­völd í Suð­ur­nesjabæ og Reykja­nesbæ harma þá nið­ur­stöðu að WOW a­ir hafi hætt starf­semi. Í frétta­til­kynn­ing­um frá bæj­ar­yf­ir­völd­unum segir að ljóst sé að þetta áfall muni hafa sam­fé­lags­leg áhrif þar sem mik­ill fjöldi íbúa sveit­ar­fé­lag­anna tveggja störf­uðu hjá WOW air eða í fyr­ir­tækjum sem veittu flug­fé­lag­inu beina eða óbeina þjón­ustu. Stjórn­enda­hóp­ur ­Suð­ur­nesja­bæjar hefur fundað um málið og und­ir­býr við­brögð og aðgerðir vegna máls­ins.

Fyr­ir­tæki sem veitt­u WOW a­ir ­þjón­ustu þurfa að draga saman starf­semi sína

Í frétta­til­kynn­ingu frá Suð­ur­nesja­bæ, Sand­gerði og Garður mynda sveit­ar­fé­lagið Suð­ur­nesja­bæ, ­segir að afleið­ingar gjald­þrots WOW a­ir ­séu að miklu leyti óljós­ar enn­þá en hins vegar sé ljóst að áhrifa þessa muni gæta víða í þjóð­fé­lag­inu og hafa áhrif á efna­hags­mál þjóð­ar­inn­ar. 

Þá segir að þótt ekki liggi fyrir hver bein áhrif verða á Suð­ur­nesjabæ og íbú­a sveit­ar­fé­lags­ins þá megi reikna með því að þau verði nokk­ur. Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar og fjöl­mörg þjón­ustu­fyr­ir­tæki á flug­stöðv­ar­svæð­in­u eru ­stað­sett í Suð­ur­nesjabæ og fjöldi íbúa sveit­ar­fé­lags­ins starfa hjá þeim fyr­ir­tækj­um. Þá megi reikna með­ því að fall WOW air muni hafa áhrif á starf­semi ann­arra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­ækja, þó þær upp­lýs­ingar liggi ekki fyr­ir. Auk þess hafi allt ­starfs­fólk WOW a­ir misst sín störf og segir í til­kynn­ing­unni að fram hafi komið að ein­stök fyr­ir­tæki sem hafa veittu flug­fé­lag­inu beina og óbeina þjón­ustu þurfi að draga sam­an­ ­starf­sem­i sína og því muni vænt­an­lega fylgja upp­sagnir starfs­fólks. 

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að Suð­ur­nesja­bær fylgist náið með­ fram­vind­u ­mála. Magnús Stef­áns­son, bæj­ar­stjóri Suð­ur­nesja­bæjar ásamt for­ystu­mönnum bæj­ar­stjórnar og bæj­ar­ráðs hafa verið í sam­skipt­u­m við ýmsa aðila sem málum tengjast, meðal ann­ars til að meta aðstæður og leggja á ráðin um við­brögð. „­Suð­ur­nesja­bær beinir því til allra hlut­að­eig­andi að hugað sé að vel­ferð og hags­munum allra þeirra sem stöðvun starf­sem­i WOW a­ir hefur áhrif á, hvort sem um er að ræða starfs­fólk og fjöl­skyldur þeirra eða fyr­ir­tæki,“ segir að lokum í til­kynn­ing­unni

Ljóst að þetta áfall muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif á Reykja­nesbæ

Bæj­ar­ráð Reykja­nes­bæjar sendi einnig frá sér bókun vegna WOW a­ir í gær. Þar kemur fram að bæj­ar­ráðið harmi að starf­sem­i WOW a­ir hafi verið stöðv­uð. Þá segir að ljóst sé að þetta áfall muni hafa mikil sam­fé­lags­leg áhrif til skamms tíma, ekki síst fyrir Reykja­nesbæ þar sem mikil fjöldi starfs­manna býr. Þá segir að bæj­ar­ráðið leggi áherslu á að hugað sé að vel­ferð og hags­munum allra starfs­manna og fyr­ir­tækja sem þetta mun hafa áhrif á. 

Má búast við fleiri upp­sögn­um 

Jón­ína Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mannauðs­sviðs WOW a­ir, sagði að 900 til 1.000 manns missa vinn­una hjá WOW a­ir, í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær. Gróf­lega séu þetta 200 flug­menn, 400 flug­lið­ar, 50 flug­virkjar og starfs­fólk í Kefla­vík og höf­uð­stöðv­un­um. Í des­em­ber ­sagði flug­fé­lagið upp 110 fast­ráðnum starfs­mönnum og verk­tökum og laus­ráðnum starfs­mönn­um, alls um 350 manns. 

Unnur Sverr­is­dótt­ir. for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV í gær að aldrei hafi jafn­margir misst vinn­una í einu líkt og í gær. Þá er talið að störfum fækki hjá þjón­ustu­að­ilum flug­fé­lags­ins sem og störfum hjá fjölda ­ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja ­sem bygg­t hafi af­komu sína að hluta á far­þegum sem komu með­ WOW. ­Sem dæmi má nefna að 59 manns var sagt upp hjá Kynn­is­ferðum í gær.

Vinnu­mála­stofnun vakti athygli á því í gær að  þeir sem störf­uðu hjá WOW a­ir ­­geti sótt um atvinn­u­­leys­is­bætur á heima­­síðu stofn­un­­ar­inn­­ar. Stofnun hvetur fólk til að hefja umsókn­­ar­­ferlið sem fyrst þar sem atvinn­u­­leys­is­bætur eru greiddar frá þeim deg­i ­­sem umsókn berst. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent