Lægstu húsnæðislánavextir komnir niður í 1,77 prósent

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur haldið sig við það viðmið að láta verðtryggð lánakjör þróast í takt við ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks. Lífeyrissjóður verzlunarmanna hætti því í sumar. Í kjölfarið hafa vextir Almenna lækkað enn frekar.

Allir þurfa að eiga heima einhversstaðar. Nú er ódýrara en nokkru sinni fyrr að taka húsnæðislán á Íslandi.
Allir þurfa að eiga heima einhversstaðar. Nú er ódýrara en nokkru sinni fyrr að taka húsnæðislán á Íslandi.
Auglýsing

Lægstu verð­tryggðu breyti­legu vextir sem hægt er að fá vegna töku hús­næð­is­lána eru nú 1,77 pró­sent, hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðnum eftir að hann lækk­aði vexti sína nýver­ið. 

Lægstu óverð­tryggðu vext­irnir sem í boði eru nú eru hjá Birtu líf­eyr­is­sjóði, þar sem þeir eru 4,6 pró­sent. 

Í báðum til­fellum er um lægstu vexti hvors lána­forms fyrir sig sem íslenskum lán­tak­endum hefur staðið til boða. 

Því halda vextir sem standa lán­tak­endum á Íslandi til boða áfram að lækk­a. 

Það hafa meg­in­vextir Seðla­banka Íslands, oft kall­aðir stýri­vext­ir, einnig gert en þeir eru nú 3,5 pró­sent og hafa aldrei verið lægri. 

Annar fylgir skulda­bréfa­flokki, hinn ekki

Vaxta­breyt­ingar á breyti­legum verð­tryggðum lánum hjá Almenna líf­eyr­is­sjóðn­um, sem býður sjóðs­fé­lögum sínum upp á lán fyrir allt að 70 pró­sent af kaup­verði á hús­næði, eru ákveðnar 15. hvers mán­að­ar. Vext­irnir taka mið af með­al­á­vöxtun á skulda­bréfa­flokki Íbúð­ar­lána­sjóðs HFF150434 að við­bættu 0,75 pró­sent álag­i.   

Auglýsing
Lífeyrissjóður verzl­un­ar­manna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins sem hefur verið leið­andi á meðal líf­eyr­is­sjóða í end­ur­komu þeirra á hús­næð­is­lána­mark­að, var með sama fyr­ir­komu­lag. Þ.e. vextir lána hans voru ákvarð­aðir í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­­ar­­kröfu sama skulda­bréfa­flokks og hjá Almenna, að við­bættu álagi. Á und­an­­förnum árum hafa við­­skipti með þau bréf dreg­ist veru­­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­­ar­krafan hefur dreg­ist mikið sam­­an.

Afleið­ing þess var sú að vextir Líf­eyr­is­­sjóðs verzl­un­ar­manna lækk­uðu mjög mikið á skömmum tíma. Í lok maí voru þeir orðnir 2,06 pró­sent. 

Þá ákvað stjórn sjóðs­ins að breyta því hvernig vextir yrðu ákvarð­að­ir. Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa skulda­bréfa­flokks­ins myndi stýra vaxta­stíg­inu var ákveðið að stjórn sjóðs­ins myndu ein­fald­lega ákveða þá. Þeir voru í kjöl­farið hækk­aðir í 2,26 pró­sent og þar eru þeir í dag. 

Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur ekki breytt sinni aðferð­ar­fræði. Í dag eru verð­tryggði vextir sem sjóðs­fé­lagar í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna geta fengið tæp­lega 28 pró­sent hærri en vext­irnir sem sjóðs­fé­lögum Almenna bjóð­ast.

Ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna hafði áhrif. VR, sem skipar fjóra af átta stjórn­ar­mönnum í sjóðn­um, ákvað að skipta þeim öllum út fyrir nýja og bar fyrir sig trún­að­ar­brest vegna vaxta­hækk­un­ar­inn­ar. 

Lands­bank­inn í sér­flokki á meðal banka

Við­skipta­bank­arnir hafa lengi kvartað yfir því að vera ekki sam­keppn­is­hæfir við líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að hús­næðis­út­lán. Þar bera þeir aðal­lega fyrir sig að bönkum sé gert að greiða sér­tæka skatta og gjöld sem líf­eyr­is­sjóðum er ekki gert að greiða. Sá sem bítur mest er hinn svo­kall­aði banka­skatt­ur. Nú liggur hins vegar fyrir að fyrri áform um að lækka banka­skatt­inn á næsta ári hefur verið frestað til 2021 vegna sam­dráttar í efna­hags­líf­in­u. 

Sá við­skipta­banki sem kemst næst því að gera keppt við líf­eyr­is­sjóð­ina í boð­legum kjörum er Lands­bank­inn. Verð­tryggðir breyti­legir vextir hans vegna lána upp að 70 pró­sent af kaup­verði eru nú 3,25 pró­sent. Það eru 84 pró­sent hærri vextir en Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður upp á. 

Auglýsing
Landsbankinn hefur hins vegar verið að bæta kjör á verð­tryggðum lánum með föstum vöxt­um, en þá þarf við­kom­andi að binda sig í 60 mán­uði, eða fimm ár, við þá vexti óháð því hvernig aðrar aðstæður breyt­ast. Við síð­ustu vaxta­breyt­ingu hjá Lands­bank­an­um, sem varð í síð­ustu viku, fóru slíkir vextir hjá bank­anum niður fyrir þrjú pró­sent í fyrsta skipt­ið, ef miðað er við 70 pró­sent lán­töku, og eru nú 2,96 pró­sent. Það eru skap­leg­ustu föstu verð­tryggðu vextir sem í boði eru á íslenska mark­aðn­um. 

Birta leiðir í óverð­tryggðu

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna býður enn upp á skástu föstu óverð­tryggðu vext­ina, en þeir eru 5,14 pró­sent hjá sjóðnum ef lán­taki er til­bú­inn að festa sig í þrjú ár. 

Þegar kemur að breyti­legum óverð­tryggðum lánum þá býður líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta upp á lang­bestu kjörin fyrir sína sjóðs­fé­laga. Þeir geta fengið óverð­tryggt lán á 4,6 pró­sent vöxtum en sá bögg­ull fylgir skamm­rifi að Birta lánar ein­ungis fyrir 65 pró­sent af kaup­verði að hámarki. 

Lands­bank­inn kemur þar á eftir með 5,48 pró­sent breyti­lega óverð­tryggða vexti og Gildi þar skammt á eftir með 5,51 pró­sent (vext­irnir eru 5,4 pró­sent upp að 60 pró­sent láns­hlut­falli en síðan þarf að taka við­bót­ar­lán á 6,15 pró­sent vöxtum til að ná 70 pró­sent hlut­fall­i). Því eru óverð­tryggðir breyti­legir vextir Lands­bank­ans rúm­lega 19 pró­sent hærri en hjá Birt­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar