Eðlisbreyting á akstursgreiðslum til þingmanna eftir að þær voru gerðar opinberar
Greiðslur til þingmanna vegna aksturs hafa dregist verulega saman eftir að ákveðið var að birta þær á vef Alþingis. Í ár nema greiðslur vegna notkunar eigin bifreiðar 14 prósent af því sem þær námu árið 2017. Sá sem fékk hæstu endurgreiðslurnar á því ári hefur ekki fengið eina krónu í endurgreiðslu vegna eigin bifreiðar í ár.
Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2019 fengu þingmenn landsins alls tæplega 2,4 milljónir króna endurgreiddar frá Alþingi vegna aksturs eigin bifreiða. Ef endurgreiðslur verða sambærilega næstu fimm mánuði ársins munu heildargreiðslur vegna aksturs eigin bifreiða verða um 4,1 milljón króna á þessu ári.
Alls hafa þingmenn síðan til viðbótar leigt sér bílaleigubíla fyrir 11,1 milljónir króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og fengið um 1,8 milljón króna endurgreiddar vegna eldsneytiskostnaðar, greiðslna vegna notkunar á jarðgöngum og töku leigubíla. Framreiknað má búast við því að heildarkostnaður þingmanna vegna aksturs verði um 26,1 milljón króna.
Allt árið 2018 námu greiðslur vegna notkunar á eigin bifreiðum 8,4 milljónum króna og því ættu þær að óbreyttu að helmingast milli ára. Þá notuðu þingmenn líka bílaleigubíla fyrir alls 19,3 milljónir króna og fengu endurgreiðslur vegna eldsneytis, jarðganga og leigubíla upp á tæplega 3,2 milljónir króna. Samanlagt var því kostnaðurinn í fyrra 30,7 milljónir króna.
Þegar notkunin er borin saman við árið 2017, þegar endurgreiðslur úr opinberum sjóðum vegna notkunar þingmanna á eigin bifreiðum námu samtals 29,6 milljónum króna, þá hefur orðið eðlisbreyting. Væntar greiðslur í ár eru um 14 prósent af því sem var endurgreitt í vasa þingmanna vegna kostnaðar sem varð til við notkun á eigin bifreiðum á því ári. Þá námu meðalgreiðslur á mánuði 2,4 miljónum króna, sem er sama upphæð og þingmenn hafa krafist endurgreiðslu á frá byrjun árs og út júlímánuð 2019.
Þetta má sjá í tölum um greiðslur til þingmanna sem birtar eru á vef Alþingis.
Gegnsæi skilar sér
Þegar kostnaður vegna bílaleigubíla, eldsneytis, jarðganga og leigubíla er talinn með var kostnaðurinn vegna aksturs þingmanna á árinu 2017 alls 42,7 milljónir króna. Kostnaðurinn hefur því dregist saman, í krónum talið og án tillits til verðbólgu, um tæplega 40 prósent.
Vert að taka fram að árið 2017 var ansi sérstakt. Þá voru einungis 66 þingfundardagar og 14 dagar teknir frá undir nefndarfundi. Ástæðan var vegna stjórnarmyndunarviðræðna eftir kosningarnar 2016, sem drógust inn á árið 2017, stjórnarslita í september 2017 og svo kosninga í október 2017, sem leiddu í kjölfarið til nýrra stjórnarmyndunarviðræðna sem lauk ekki fyrr en 30. nóvember það ár. Til viðbótar fór þingmenn í jólafrí, páskafrí og langt sumarfrí. Þeir unnu því ekki mikið á árinu 2017.
Því er ljóst að í kjölfar mikillar umfjöllunar fjölmiðla um aksturskostnað Alþingismanna, sem var opinberaður í fyrsta sinn í byrjun árs í fyrra, þá hefur endurgreiðslubeiðnum þingmanna vegna notkunar á eigin bílum fækkað verulega. Raunar hefur allur kostnaður vegna aksturs þingmanna dregist umtalsvert saman.
Þetta má sjá í upplýsingum um laun og kostnaðargreiðslur þingmanna sem birtar eru á vef Alþingis.
Almenningi neitað um upplýsingar árum saman
Fjölmiðlar reyndu árum saman að fá upplýsingar um hvaða þingmenn fái endurgreiðslu vegna aksturs, en án árangurs. Kjarninn fjallaði til að mynda um málið í fréttaskýringu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þingmenn hefðu fengið endurgreiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upplýsingar um hvaða þingmenn var að ræða. Þær upplýsingar þóttu þá sem nú of persónulegar.
Í byrjun febrúar 2018 svaraði forseti Alþingis fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Píratar, um aksturskostnað.
Í svari forseta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þingmenn sem fengu hæstu skattlausu endurgreiðslurnar þáðu á síðustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í tölunum mátti þó sjá að fjórir þingmenn sem þáðu hæstu endurgreiðslurnar fengu samtals 14 milljónir króna, eða tæplega helming allra endurgreiðslna vegna aksturs.
Reiði þegar greiðslur voru opinberaðar
Upplýsingarnar vöktu upp mikla reiði og ásakanir um mögulega sjálftöku þingmanna. Í kjölfarið varð það krafa þings, þjóðar og fjölmiðla að allar greiðslur vegna aksturs yrðu gerðar opinberar og að þær yrðu persónugreinanlegar. Þá varð það einnig krafa að allar aðrar greiðslur sem þingmenn fá vegna starfa sinna yrðu gerðar opinberar, sundurliðaðar og mörg ár aftur í tímann. Hvort sem um væri að ræða húsnæðisstyrk, greiðslur vegna flugs eða kostnaður vegna bílaleigubíla. Allt ætti að koma upp á borðið.
Forsætisnefnd ákvað að bregðast við og allar upplýsingar um kostnað sem fylgir störfum þingmanna er nú birtur mánaðarlega. Auk þess var ákvæði í reglum um þingfarakostnað, sem fjallar um bílaleigubíla, gert skýrara til að tryggja að slíkir séu frekar teknir en að þingmenn séu að nota eigin bifreiðar. Breytingarnar náðu einkum til þingmanna sem falla undir svokallaðan heimanakstur, þ.e. akstur til og frá heimili daglega um þingtímann. Það eru þingmenn sem búa í nágrenni Reykjavíkur (á Suðurnesjum, Vesturlandi, Árnessýslu o.s.frv.). Akstur á eigin bifreiðum, sem kemur til endurgreiðslu, varð eftir breytingarnar bundinn hámarki við 15.000 km. Eftir þann kílómetrafjölda á skrifstofa Alþingis láta umræddum þingmanni í té bílaleigubíl.
Ásmundur fékk hæstu greiðslurnar
Sá þingmaður sem þáð hafði hæstu greiðslurnar vegna aksturs var Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Samkvæmt svari forseta hafði hann keyrt alls 47.644 kílómetra á árinu 2017 og fengið rúmlega 4,6 milljónir króna endurgreitt vegna þessa. Frá 2013 og út árið 2017 námu endurgreiðslur til Ásmundar alls 23,5 milljónum króna vegna notkunar hans á eigin bifreið.
Í lok nóvember 2018 endurgreiddi Ásmundur skrifstofu Alþingis 178 þúsund krónur vegna ferða sem honum hafði verið endurgreiddar á árinu áður. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tvímælis að blanda saman ferðum mínum um kjördæmið og ferðum á sama tíma með tökufólki ÍNN.“
Frá því að akstursmálið var opinberað í byrjun árs 2018 hafa orðið stakkaskipti á akstursgreiðslum til Ásmundar. Í fyrra fékk hann samtals endurgreiddar 684 þúsund krónur vegna notkunar á eigin bifreið auk þess sem kostnaður vegna leigu á bílaleigubílum var tæplega 1,2 milljónir króna. Þá nam eldsneytiskostnaður 639 þúsund krónum og aksturkostnaður Ásmundar því samtals rétt yfir 2,5 milljónum króna. Greiðslur til hans vegna aksturs nánast helminguðust milli ára.
Hættur að nota eigin bifreið
Í ár hefur dregið enn meira úr endurgreiðslum til Ásmundar. Raunar hefur hann ekki fengið eina krónu endurgreidda vegna notkunar á eigin bifreið. Kostnaður vegna bílaleigubíla og eldsneytis, sem hann hefur fengið greiddan úr opinberum sjóðum, nemur samtals tæplega 1,4 milljónum króna vegna fyrstu sjö mánaða ársins 2019. Haldi notkun Ásmundar áfram með sama hætti má ætla að árlegur akstur hans muni kosta skattgreiðendur um 2,4 milljónir króna.
Hann er sem stendur í öðru sæti yfir þá þingmenn sem hafa fengið hæstu endurgreiðslurnar vegna aksturs á árinu. Fyrir ofan hann er samflokksmaður hans Vilhjálmur Árnason, en greiðslur vegna bílaleigubíla og eldsneytis til hans fram til júlíloka 2019 námu samtals rúmlega 1,5 milljón króna.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars