Fyrir hálfum mánuði ætlaði færeyska sjónvarpið, Kringvarp Føroya að senda út frétt um fund sem haldinn var í Þórshöfn 11. nóvember sl. en lögbann var sett á útsendingu fréttarinnar, að kröfu færeysku landsstjórnarinnar.
Mikil leynd hvíldi yfir fundi þessum en hann sátu Feng Tie, sendiherra Kína í Danmörku, Bárður Nielsen, lögmaður Færeyja, Jørgen Niclasen, fjármálaráðherra færeysku landstjórnarinnar og einn ráðuneytisstjóri. Sendiherrann hafði óskað eftir fundinum og gagngert komið til Þórshafnar af því tilefni.
Nokkrum dögum seinna komust fréttamenn Kringvarpsins á snoðir um fund þennan, fyrir tilviljun. Út af fyrir sig er það hvorki óleyfilegt né óeðlilegt að sendiherrann hitti færeyska ráðamenn en það var fundarefnið sem valdið hefur uppnámi í Færeyjum og Danmörku.
Lögbannið og hótun sendiherrans
Eins og áður var nefnt var það færeyska landstjórnin sem krafðist lögbannsins. Lögum samkvæmt fór lögbannskrafan fyrir dómara sem staðfesti að lögbannið stæði þangað til dæmt verði í málinu, sá málarekstur getur tekið nokkra mánuði.
Þrátt fyrir lögbannið hefur innihald fréttarinnar lekið út. Færeyskir og danskir fjölmiðlar hafa birt orðrétt samtal yfirmanns ráðuneytis utanríkismála í Færeyjum og færeyska utanríkisráðherrans, þar sem sá fyrrnefndi greindi ráðherranum frá „leynifundinum“. Hvorugur vissi að samtalið væri tekið upp, og reyndar vissi fréttamaður sjónvarpsins ekki um upptökuna fyrr en eftir á.
Samkvæmt frásögn ráðuneytisstjórans, sem var viðstaddur „leynifundinn“, greindi kínverski sendiherrann lögmanninum og fjármálaráðherranum frá því að samningur færeyska símafélagsins, Føroya Tele við kínverska fjarskiptafyrirtækið Huawei myndi opna „allar dyr“ varðandi viðskiptasamning (frihandelsaftale) Færeyja og Kína. Ráðuneytisstjórinn sagði að ekki hefði farið á milli mála að í orðum sendiherrans hefði falist hótun. Hótun um að ef ekki yrði samið við Huawei um lagningu 5G háhraðanets í Færeyjum yrði ekki gerður viðskiptasamningur milli þjóðanna. Það var þessi frásögn ráðuneytisstjórans sem færeyska sjónvarpið ætlaði að greina frá. Fréttaþulurinn sagði frá lögbanninu í upphafi fréttatímans, en ekki efni fréttarinnar.
Hér er rétt að geta þess að lagning 5G háhraðanets stendur fyrir dyrum í Færeyjum en Huawei annaðist bæði uppsetningu og rekstur 4G netsins sem 5G á að leysa af hólmi. Færeyingar hafa árum saman unnið að því að ná sérstökum viðskiptasamningi við Kína og hann yrði þeim mjög mikilvægur, ekki síst vegna útflutnings á laxi.
Kínverski sendiherrann neitar hótunum
Í tölvupósti frá Feng Tie sendiherra til fréttastofu danska útvarpsins neitar hann algjörlega að hafa haft uppi hótanir á fundi sínum með færeyskum ráðmönnum. Fundurinn hafi snúist um samskipti landanna. Bárður Nielsen lögmaður Færeyja, sem sat „leynifundinn“ segist ekki hafa túlkað orð sendiherrans sem hótun. Sendiherrann segir ennfremur í tölvupóstinum að ásakanir um hótanir megi rekja til Bandaríkjamanna.
Þar vísar hann til viðtala og greinaskrifa bandaríska sendiherrans í Danmörku. Carla Sands sendiherra hefur í viðtölum og blaðagreinum lýst áhyggjum vegna hugsanlegs fjarskiptasamnings Færeyinga við Huawei. Fyrirtækinu, eins og öllum kínverskum fyrirtækjum, sé skylt að hlýða fyrirskipunum kínverskra stjórnvalda. Færeyskir þingmenn hafa, sumir hverjir, túlkað orð sendiherrans sem hótun og íhlutun í færeysk málefni. Færeyska landsstjórnin hefur lagt áherslu á að allar ákvarðanir varðandi 5G háhraðanetið sé í höndum færeyska símafélagsins.
Þingmenn ósáttir við afskipti kínverska sendiherrans
Fréttirnar af „leynifundinum“ hafa ekki farið framhjá dönskum þingmönnum. Málið var rætt á fundi utanríkismálanefndar danska þingsins, Folketinget sl. fimmtudag. Jeppe Kofod utanríkisráðherra sagði þar að ákvörðun um 5G háhraðanetið væri algjörlega í höndum Færeyinga sjálfra. Lars Løkke Rasmussen fyrrverandi forsætisráðherra, sem á sæti í nefndinni, sagði í viðtali að hugsanlegur samningur við Huawei um 5G háhraðanet í Færeyjum, sé ekki bara venjulegur viðskiptasamningur „við erum ekki að tala um samning um innkaup a gúmmískóm“. 5G geti snúist um öryggis- og varnarmál og þess vegna geti danska ríkisstjórnin ekki yppt öxlum og sagt að þetta sé einkamál Færeyinga.
Fleiri nefndarmenn töluðu á svipuðum nótum og sögðust telja samning um 5G flokkast undir utanríkis- og varnarmál og þar með væri það ekki einkamál Færeyinga. Naser Khader þingmaður Íhaldsflokksins sagði ríka ástæðu til að hafa áhyggjur af hótunum sendiherrans og benti í því sambandi á Afríku þar sem Kínverjar notað yfirburði til að ná sínu fram. Søren Espersen talsmaður Danska þjóðarflokksins í utanríkismálum segir að ekki þurfi að velkjast í vafa um hvað kínverski sendiherrann meinti með orðum sínum.
„Þetta er þrýstingur frá Kínverjum og það er ekki í fyrsta skipti sem þeir blanda saman viðskiptum og pólitík“. Og bætti við „við eigum ekki að láta hótanir frá kommúnista Kína yfir okkur ganga, réttast væri að skila þeim pöndunum sem þeir lánuðu okkur“. Þarna vísaði þingmaðurinn til tveggja panda sem Kínverjar lánuðu Dýragarðinum í Kaupmannahöfn en pöndurnar komu til Danmerkur í apríl á þessu ári. Søren Espersen gagnrýndi á sínum tíma þennan „vináttuvott“ eins og hann kallaði lánið á pöndunum. „Það að Kínverjar láni Dönum pöndurnar merkir að Danir hafi samþykkt utanríkisstefnu Kínverja“ sagði þingmaðurinn.
Ekki er ljóst hvenær ákveðið verður hvaða fyrirtæki mun annast uppsetningu og rekstur 5G háhraðanetsins í Færeyjum.