Ásmundur keyrði fyrir rúmlega 320 þúsund krónur á mánuði
Ásmundur Friðriksson var, enn og aftur, sá þingmaður sem keyrði mest allra í fyrra. Alls kostaði akstur Ásmundar skattgreiðendur 3,8 milljónir króna, sem er 52 prósent meira en kostnaður þess sem keyrði næst mest. Alls nema akstursgreiðslur til Ásmundar frá því að hann settist á þing árið 2013 29,2 milljónum króna.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, er sá þingmaður sem keyrir mest allra miðað við þann aksturskostnað sem Alþingi greiðir þingmönnum. Alls keyrði Ásmundur bílaleigubíla, og tók eldsneyti fyrir, um 3,8 milljónir króna á árinu 2019. Það þýðir að Ásmundur keyrði fyrir rúmlega 320 þúsund krónur að meðaltali í fyrra.
Sá munur var á akstri Ásmundar í fyrra að hann fór allur fram á bílaleigubílum, en á síðustu árum hafði hann að mestu keyrt um landið á eigin bifreið og fengið kostnað vegna þess endurgreiddan frá Alþingi. Frá því að Ásmundur settist á þing árið 2013 hefur samanlagður aksturskostnaður hans verið 29,2 milljónir króna.
Mestur var hann árið 2014, þegar Ásmundur fékk alls um 5,4 milljónir króna endurgreiddar vegna keyrslu á eigin bifreið, eða 450 þúsund krónur á mánuði.
Eftir að akstursgreiðslur til þingmanna voru loks opinberaðar í fyrsta sinn snemma árs 2018, eftir að fjölmiðlar höfðu kallað eftir þeim árum saman, kom sérstaka Ásmundar í akstri í ljós og var mikið gagnrýnd. Í kjölfarið dró Ásmundur mikið úr akstrinum og nam endurgreiddur kostnaður hans á árinu 2018 2,5 milljónum króna. Það er lægsta upphæð sem Ásmundur hefur fengið endurgreidda vegna aksturs frá því að hann settist á þing. Þorri hans fór auk þess fram á bílaleigubíl, ekki bifreið Ásmundar, líkt og skrifstofa Alþingis hafði beðið þingmenn um að gera.
Í fyrra jókst aksturskostnaðurinn síðan til muna og var 3,5 milljónir króna. Það er 52 prósent hærri upphæð en keyrsla Ásmundar kostaði árið áður.
Fjórir kosta meira en tvær milljónir á mánuði
Alþingi birti um helgina upplýsingar um kostnað sem þingmenn fá greiddan fyrir desembermánuði, og þar af leiðandi var hægt að sjá hversu mikið féll til allt árið 2019.
Líkt og áður sagði kostaði akstur Ásmundar langmest, eins og svo oft áður. Þeir sem koma næst honum eru Birgir Þórarinsson, þingflokkur Miðflokksins, sem keyrði fyrir 2,6 milljónir króna í fyrra, og samflokksmaður hans Vilhjálmur Árnason, sem keyrði fyrir 2,5 milljónir króna í fyrra. Birgir keyrði því fyrir um 216 þúsund krónur á mánuði að meðaltali og Vilhjálmur fyrir um 208 þúsund krónur á mánuði. Akstur Ásmundar kostaði því 48 prósent meira en akstur Birgis og 52 prósent.
Einn þingmaður til keyrði fyrir meira en tvær milljónir króna í fyrra, Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann kostaði 2,4 milljónir króna á árinu, eða um 200 þúsund krónur að meðaltali á mánuði.
Alls keyrðu tólf þingmenn það mikið að kostnaður vegna akstursgreiðslna þingsins til þeirra fór yfir eina milljón króna. Hægt er að sjá lista yfir þá hér að neðan:
Tólf þingmenn fengu meira en milljón krónur greiddar í aksturskostnað:
- Ásmundur Friðriksson 3,8 milljónir króna
- Birgir Þórarinsson 2,6 milljónir króna
- Vilhjálmur Árnason 2,5 milljónir króna
- Haraldur Benediktsson 2,4 milljónir króna
- Sigurður Páll Jónsson 1,8 milljónir króna
- Guðjón S. Brjánsson 1,8 milljónir króna
- Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 1,8 milljónir króna
- Lilja Rafney Magnúsdóttir 1,5 milljónir króna
- Líneik Anna Sævarsdóttir 1,3 milljónir króna
- Halla Signý Kristjánsdóttir 1,2 milljón króna
- Páll Magnússon 1,1 milljónir króna
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir 1,1 milljón króna
Allskyns viðbætur ofan á þingfarakaup
Aksturgreiðslurnar koma til viðbótar við hefðbundnar launagreiðslur og ýmsar aðrar kostnaðargreiðslur, en venjulegur þingmaður fær 1,1 milljón króna í laun á mánuði. Auk þess getur þingmaður sem gegnir formennsku eða varaformennsku í fengið álag ofan á þingfarakaupið. Í tilfelli formanns nemur það 165 þúsund krónum á mánuði. Þá fá landsbyggðarþingmenn húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslu, álag á húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslu, fastan greiddan ferðakostnað í kjördæmi og fastan starfskostnað.
Fyrir ímyndaðan þingmann í Suðurkjördæmi, sem liggur að höfuðborginni, sem gegni formennsku í nefnd gæti þetta þýtt að mánaðarlegar launagreiðslur upp á rúmlega 1,5 milljónir króna. Til viðbótar er ýmis starfskostnaður endurgreiddur auk þess síma- og netkostnaður er greiddur. Ofan á þetta er allur ferðakostnaður innan lands og utan greiddur af þinginu, þar með talið áðurnefndur aksturskostnaður.
Allt í allt getur þingmaður því haft nálægt tvær milljónir króna í tekjur af þingmennsku á mánuði ef hann er duglegur við að keyra um.
Nota bílaleigubíla meira en áður
Alls nam aksturskostnaður þingmanna 31,1 milljón króna í fyrra. Allt árið 2018 var kostnaðurinn 30,7 milljónir króna. Því var hann mjög svipaður bæði árin.
Mesta breytingin sem orðið hefur síðastliðin ár er að þingmenn keyra nú mun meira á bílaleigubílum en áður. Sú tilhneiging hefur stökkbreyst eftir að akstursgreiðslurnar voru opinberaðar í fyrsta sinn í byrjun árs 2018.
Þar áður tíðkaðist það á meðal þingmanna að fá endurgreitt svokallað akstursgjald vegna notkunar á eigin bifreið. Það er greitt samkvæmt akstursdagbók þar sem þingmenn halda utan um allan akstur á sínum eigin bifreiðum. Ferðakostnaðarnefnd, sem heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið, ákveður aksturgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana. Gjaldið skiptist í almennt gjald, sérstakt gjald og svokallað torfærugjald. Almenna gjaldið á við akstur á malbikuðum vegum innanbæjar og utan, sérstaka gjaldið á við akstur á malarvegum utanbæjar og torfærugjaldið miðast við akstur við sérstaklega erfiðar aðstæður, gjarnan utan vega og einungis jeppafært.
Grunnur akstursgjaldsins skiptist í fastan kostnað og breytilegan kostnað. Í föstum kostnaði voru afskriftir, skoðunargjald, bifreiðagjald, ábyrgðartrygging og húftrygging, en í breytilegum kostnaði bensín, smurning, olía, hjólbarðar, varahlutir og viðgerðir. Greiðslurnar eru undanþegnar skatti. Samhliða því að greiðslur vegna notkunar á eigin bifreið hafa hríðfallið á undanförnum árum hafa greiðslur vegna bílaleigubíla hækkað mikið, enda var þeim tilmælum beint til þingmanna fyrir nokkrum árum siðan, af skrifstofu Alþingis, að taka frekar bílaleigubíla en að nota eigin bifreiðar. Ástæðan var sú að það var talið spara fjármuni og tryggja meira gagnsæi í akstursgreiðslum. Skrifstofa Alþingis hefur gert samninga við bílaleigufyrirtæki sem eru að finna í rammasamningi Ríkiskaupa, um afslætti af gjaldskrá bílaleigubíla til að ná niður þessum kostnaði enn frekar.
Á árinu 2018, sem var það fyrsta eftir að greiðslur til þingmanna voru gerðar opinberar, stökk kostnaður vegna bílaleigubíla upp í 19,3 milljónir króna samhliða því að kostnaður vegna notkunar eigin bifreiða dróst verulega saman. Í fyrra jókst hann enn frekar og var 21,4 milljónir króna.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars