1. Samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu
Klukkan 6:08 að morgni aðfangadags 2020 sendi lögreglan frá sér upplýsingapóst úr dagbók lögreglu þar sem farið var yfir helstu verkefni hennar á Þorláksmessukvöld og aðfaranótt aðfangadags.
Þriðja atriðið í póstinum vakti strax athygli, og átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þar var greint frá því að klukkan 22:25 á Þorláksmessu hefði lögreglan verið „kölluð til vegna samkvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykjavíkur. Veitingarekstur er í salnum í flokki II og ætti því að vera lokaður á þessum tíma. Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru samankomin í salnum, þar á meðal einn háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Töluverð ölvun var í samkvæminu og voru flestir gestanna með áfengi við hönd. Lögreglumenn veittu athygli að enginn gestanna var með andlitsgrímur fyrir andliti. Lögreglumenn sögðu að nánast hvergi voru fjarlægðartakmörk virt. Lögreglumenn sáu aðeins 3 sprittbrúsa í salnum. Lögreglumenn ræddu við ábyrgðarmenn skemmtunarinnar og þeim kynnt að skýrsla yrði rituð. Þá var gestum vísað út. Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp andlitsgrímu. Gestirnir kvöddust margir með faðmlögum og einhverjir með kossum. Einn gestanna var ósáttur með afskipti lögreglu og líkti okkur við nasista.“
2. „Háttvirti ráðherrann“ var Bjarni Benediktsson
Um tíuleytið á aðfangadagsmorgun fóru að birtast fréttir, á Vísi og vef Fréttablaðsins, um að ráðherrann í samkvæminu hefði verið Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra.
Eins og lesa má í fréttum kom lögreglan og leysti samkomuna upp. Og réttilega. Þarna hafði of margt fólk safnast saman.
Ég hafði verið í húsinu í um fimmtán mínútur og á þeim tíma fjölgaði gestunum. Rétt viðbrögð hefðu verið að yfirgefa listasafnið strax þegar ég áttaði mig á að fjöldinn rúmaðist ekki innan takmarkana. Það gerði ég ekki og ég biðst innilega afsökunar á þeim mistökum.“
3. Ásmundarsalur biðst afsökunar
Í stöðuuppfærslu á Facebook sem birt var skömmu fyrir hádegi á aðfangadag, á síðu Ásmundarsals, sagði: „Eigendur og rekstraraðilar Ásmundarsalar vilja taka fram vegna frétta að salurinn er listasafn og verslun með leyfi til að hafa opið til klukkan 23 á Þorláksmessu. Einnig er salurinn með veitingaleyfi. Ekki var um einkasamkvæmi að ræða í gær heldur var sölusýningin „Gleðileg jól” opin fyrir gesti og gangandi.
Þegar klukkan var farin að ganga 22:30 dreif að fólk sem var að koma úr miðbænum og við gerðum mistök með að hafa ekki stjórn á fjöldanum sem kom inn. Flestir gestanna voru okkur kunnugir, fastakúnnar, listunnendur og vinir sem hafa undanfarin ár gert það að hefð að leggja leið sína til okkar á Þorláksmessu.
Við misstum yfirsýn og biðjumst afsökunar á því.“
4. Krafa um afsögn
Mikil reiði greip um sig víða, enda höfðu verið við lýði stífar takmarkanir vegna þriðju bylgju kórónuveirunnar. Þegar einn þeirra ráðherra sem setti reglur um þær takmarkanir fór ekki eftir þeim sjálfum fannst mörgum hljóð og mynd ekki fara saman. Að reglurnar giltu ekki um þá sem settu þær.
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði strax á aðfangadag að það væri „bara mjög slæmt þegar forystumenn þjóðarinnar fara ekki eftir þessum reglum[...]Ef það er rétt sem þar kemur fram þá er þetta klárlega brot á sóttvarnarreglum og mér finnst það miður að þetta hafi gerst.“ Logi Einarson, formaður Samfylkingarinnar, sagði það sína skoðun að Bjarni hlyti „að íhuga það alvarlega að segja af sér. Ef hann er ekki að gera það þá hljóta samstarfsflokkarnir tveir að pressa á hann vegna þess að ég trúi varla að hann hafi stuðning allra annarra ráðherra eða meirihluta Alþingis.“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði hegðun Bjarna óforsvaranlega og að uppákoman væri „afsagnarsök“.
Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landsspítalanum sem hefur meðal annars skrifa um COVID-19 inn á vísindavef Háskóla Íslands, skrifaði stöðuuppfærslu á Facebook þar sem sagði:
„Ég vil vera afdráttarlaus, skýr og ótvíræður hérna.
1. Þessi samkoma var fáránlegt, skammarlegt brot á sóttvarnareglum.
2. Þessi samkoma gæti fræðilega hleypt af stað ofurdreifiviðburði COVID-19 hérlendis. Það gæti hreinlega leitt til dauðsfalla. Ég er ekki að ýkja hérna.
3. Skorturinn á sóttvörnum í þessari samkomu, sem var nú þegar að brjóta samkomutakmarkanir, lýsir fáránlegum dómgreindarbresti og virðingarleysi gagnvart alþjóð.
4. Þeir sem skipulögðu þessa samkomu ættu einfaldlega að skammast sín.
5. Téður ráðherra ætti að segja af sér - tafarlaust. Fyrir þátttakendur þessa teitis er þetta skömm en fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands er þetta algjör forsendubrestur. Það er erfitt að lýsa því nákvæmlega hversu mikið dómgreindar- og virðingarleysi er hér á ferðinni.
6. Ég vil biðla til allra sem hafa skoðun á þessu máli að deila henni.“
Á jóladag steig Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fram og tjáði sig um málið. Hún sagði við Vísi að hún hefði rætt við Bjarna daginn áður og tjáð honum óánægju sína með málið. „Svona atvik skaðar traustið á milli flokkanna og gerir samstarfið erfiðara. Sérstaklega vegna þessa að við stöndum í stórræðum þessa dagana, hins vegar er samstaðan innan stjórnarinnar verið góð og ég tel okkur hafa náð miklum árangri í því sem við erum að vinna að. Við munum halda því ótrauð áfram.“ Hún gerði þó ekki kröfu um að Bjarni myndi segja af sér vegna málsins.
5. Lögreglan segir að orðalag hafi verið á skjön við vinnureglur
Á annan í jólum, 26. desember, barst tilkynning fá lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu þar sem sagði að það hefði verið á skjön við vinnureglur hennar að láta upplýsingar um að „háttvirtur ráðherra“ hafi verið í samkvæminu á Þorláksmessu. Á þeim tíma sem tilkynningin barst hafði ekki birst nein frétt í fjölmiðlum landsins þar sem umrætt verklag hafði verið til umfjöllunar.
Persónuvernd taldi ekki ástæðu til að aðhafast vegna dagbókarfærslunnar þar sem almennt njóti opinberar persónur minni friðhelgi en aðrar.
6. Ný lína frá eigendum salarins
Þann 28. desember 2020 sendu eigendur Ásmundarsals, þau Aðalheiður Magnúsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson, yfirlýsingu þar sem þau sögðu að fjöldatakmarkanir hefðu ekki verið brotnar í samkvæminu á Þorláksmessu. Þar sagði að sýningarsalurinn, sem sé á efri hæð Ásmundasalar, væri verslunarrými og falli því undir þær sóttvarnarreglur sem um þau giltu á þessum tíma. Ekki hafi verið um einkasamkvæmi að ræða heldur opna sýningu. „Á neðri hæð Ásmundarsalar er kaffihús með vínveitingaleyfi þar sem 15 manns mega koma saman og viðbótarrýmið Gryfjan sem allt að 10 manns mega vera í. Á efri hæð er aðalsýningarrými verka þar sem allt að 35 manns mega koma saman. Heildarfjöldi í byggingunni getur því verið allt að 60 manns að uppfylltum sóttvarnarreglum. Á Þorláksmessukvöld var Gryfjan lokuð og var því leyfi fyrir 50 manns í húsinu. Eigendur telja ótvírætt að fjöldi gesta hafi ávallt verið undir því viðmiði.“
Þennan sama dag fór Bjarni í viðtal í Kastljósi, sagðist hafa þegið léttvín í Ásmundarsal en hafi „aldrei [verið] staddur í neinu partíi.“ Hann hefði upplifað að hann hefði verið í salnum í korter og stæði við það mat. Bjarni taldi sig ekki hafa brotið sóttvarnalög.
7. Formleg rannsókn fór fram en niðurstaða liggur ekki fyrir
Þrátt fyrir þessa afstöðu ákvað lögreglan að hefja formlega rannsókn á mögulegu sóttvarnarbroti í Ásmundarsal á Þorláksmessu og gerði grein fyrir því í tilkynningu 30. desember. Þar kom fram að rannsóknin myndi meðal annars fela í sér að yfirfara upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna með tilliti til brota á sóttvörnum.
Þeirri rannsókn lauk í janúar og var málið í kjölfar sent ákærusviði lögreglunnar 22. janúar sem átti að taka ákvörðun um hvort sektir yrðu gefnar út eða ekki. Enn þann dag í dag, tæpum einum og hálfum mánuði síðar, liggur ekki fyrir niðurstaða ákærusviðs.
Þann 26. febrúar greindi mbl.is frá því að nefnd sem hefur eftirlit með störfum lögreglu sé að kanna samskipti hennar við fjölmiðla eftir að samkvæmið í Ásmundarsal á Þorláksmessu var leyst upp. Einnig verður kannað hvort samræmi sé milli þess sem komi fram á upptöku og þess sem skrifað var í skýrslu lögreglu.
8. Dómsmálaráðherra hringdi tvívegis í lögreglustjórann
Þann 23. febrúar opinberaði RÚV að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði hringt tvívegis í Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á aðfangadag 2020 í kjölfar þess að lögreglan hafði greint fjölmiðlum frá því að „háttvirkur ráðherra“ hefði verið staddur í samkvæmi í Ásmundarsal kvöldið áður.
Áslaug Arna sagði í við RÚV að samtöl hennar við lögreglustjórann hafi verið vegna spurninga sem hún hafði um verklag og upplýsingagjöf við gerð dagbókarfærslna lögreglu. „Fjölmiðlar spurðu mig hvort hún væri eðlileg. Ég þekkti ekki verklag dagbókarfærslna lögreglunnar og spurði aðeins um það.“
9. Átti ekki samskipti við Bjarna áður en hún hringdi í lögreglustjórann
Vegna þessa var Áslaug Arna boðuð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hún kom fyrir nefndina á mánudag. Hún sagði í áðurnefndu skriflegu svari við fyrirspurn Kjarnans um málið að hún hefði ekki átt samskipti við Bjarna áður en hún átti samskipti við lögreglustjóra, en að hún hafi átt samskipti við Bjarna síðar á aðfangadag.
Í viðtali við RÚV eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var hins vegar haft eftir dómsmálaráðherra að hún hafi vitað að það var Bjarni sem hafði verið í Ásmundarsal á Þorláksmessu áður en hún hringdi.
Halla Bergþóra mætti svo sjálf fyrir nefndina á þriðjudag. Hún hefur ekki viljað tjá sig um símtölin opinberlega. Þegar hún var til viðtals í Silfrinu um síðustu helgi bar hún það fyrir sig að málið væri til meðferðar hjá þingnefnd og vegna þess gæti lögreglustjórinn ekki tjáð sig um það.
10. Vilja skýra hvort samskiptin hafi verið í samræmi við lög og reglur
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, spurði Áslaugu Örnu um málið á Alþingi á þriðjudag. Í fyrirspurn hans kom meðal annars fram að annað símtalið sem hún hafi átt við Höllu Bergþóru hafi verið klukkan hálf fimm á aðfangadag jóla.
Eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á þriðjudag sagði Andrés Ingi Jónsson, nefndarmaður og þingmaður Pírata, að það væri hans tilfinning að ráðherra hafi verið röngu megin línunnar með því að hlutast til um einstök mál. „Það er svona mín tilfinning eftir það að ráðherrann hafi verið röngu megin línunnar þegar kemur að því að vera að hlutast um einstök mál í rannsókn. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða frekar tel ég.“
Jón Þór Ólafsson, formaður nefndarinnar, sagði á miðvikudag að nýjar upplýsingar hefðu komið fram þegar dómsmálaráðherra og lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins komu fyrir nefndina. Hann sagði við RÚV að mögulegt væri að nefndin gerði hlé á sínum störfum til þess að gefa umboðsmanni Alþingis færi á að hefja frumkvæðisathugun á málinu.
RÚV greindi svo frá því á fimmtudag að Halla Bergþóra telji að dómsmálaráðherra hafi ekki „haft afskipti af rannsókn sakamáls“ með símtölum sínum á aðfangadag. Hún svaraði ekki spurningum RÚV um hvort samskiptin við dómsmálaráðherra hefðu verið óeðlileg.
Óli Björn Kárason, samflokksmaður Áslaugar Örnu og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, sagði við Morgunblaðið í gær að Jón Þór og Andrés, þingmenn Pírata í nefndinni, hafi ekki sést fyrir í málinu í „„óstjórnlegri löngun til að koma höggi á pólitískan andstæðing“ og ásakar þá báða um trúnaðarbrest.