Allir helstu lánveitendur búnir að hækka íbúðalánavexti eftir ákvörðun Seðlabankans

Fjórðungur heimila landsins eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum, og bera fullan þunga af vaxtahækkunum Seðlabanka Íslands. Afborganir af 50 milljón króna láni hafa hækkað um 69 prósent frá því maí í fyrra og 39 prósent á rúmu hálfu ári.

Þeir sem eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum hafa þurft að eyða miklu hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæðiskostnað undanfarna mánuði en áður.
Þeir sem eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum hafa þurft að eyða miklu hærra hlutfalli af ráðstöfunartekjum sínum í húsnæðiskostnað undanfarna mánuði en áður.
Auglýsing

Arion banki varð á mið­vik­dag síð­astur stóru bank­anna þriggja að hækka íbúða­vexti sína í kjöl­far ákvörð­unar Seðla­banka Íslands að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig þann 24. nóv­em­ber, upp í sex pró­sent. Það var tíunda skiptið í röð sem Seðla­bank­inn hækk­aði vexti á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra áður en vaxta­hækk­un­ar­ferlið hófst.

Vextir Arion banka á óverð­tryggðum lánum á breyti­legum vöxtum hækka um 0,25 pró­sentu­stig og verða 7,84 pró­sent. Íslands­banki og Lands­bank­inn höfðu þegar til­kynnt um sömu hækkun en grunn­vextir þeirra á íbúð­ar­lán­um. Hjá Lands­bank­an­um, sem er með lægstu vext­ina af stóru bönk­unum þrem­ur, eru þeir 7,5 pró­sent. 

Stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána óverð­tryggð á breyti­legum vöxtum hafa líka hækkað síðan vexti. Hjá Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna hækka þeir um 0,35 pró­sentu­stig og verða 6,91 pró­sent frá 1. febr­úar næst­kom­andi. Gildi var nýbúið að til­kynna um vaxta­hækkun þegar Seðla­bank­inn ákvað að hækka stýri­vexti, og við það fóru vextir á óverð­tryggðum grunn­lánum með breyti­lega vexti í 6,9 pró­sent. Sú breyt­ing tók gildi 12. des­em­ber. Lífs­verk var sömu­leiðis búið að hækka sína vexti upp í 7,05 pró­sent en sú hækkun tekur gildi um ára­mót. Brú ákvað að breyta sínum vöxtum í lok nóv­em­ber þannig að óverð­tryggðir breyti­legir vextir á grunn­lánum fóru upp í 6,9 pró­sent. 

Fjörð­ungur heim­ila undir

Í svörum sem Seðla­banki Íslands tók saman vegna spurn­inga Þor­bjargar Sig­ríðar Gunn­laugs­dótt­ur, þing­manns Við­reisn­ar, og Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kemur fram að um fjórð­ungur allra íbúða­lána séu óverð­tryggð á breyti­legum vöxt­um. Sá hópur tekur því á sig þessar vaxta­hækk­anir af fullum þunga. 

Auglýsing
Í nýj­ustu birtu mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS), sem birt var í dag kemur fram að greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána væri 63.600 krónur fyrir hverjar tíu millj­ónir króna sem teknar eru að láni. Það þýðir að fyrir þann sem er með 50 milljón króna lán er greiðslu­byrðin á mán­uði 318.000 krón­ur. Í maí í fyrra, þegar stýri­vextir voru í sögu­legu lág­marki, var greiðslu­byrði af láni upp á sömu upp­hæð 188.500 krón­ur. Hún hefur því hækkað um 129.500 krónur á einu og hálfu ári, eða um 69 pró­sent. Það er aukin greiðslu­byrði upp á rúm­lega 1,5 millj­ónir króna á ári.

Ef horft er styttra aftur í tím­ann, til maí 2022, hefur greiðslu­byrðin af ofan­greindu láni hækkað um 89.500 krónur á mán­uði, eða um 39 pró­sent. 

Í svör­unum sem Þor­björg Sig­ríður fékk frá Seðla­bank­anum kemur einnig fram að 4.451 heim­ili séu með óverð­tryggð lán á föstum vöxtum sem komi til end­ur­skoð­unar næsta árið. Fjöldi heim­ila lýkur líka fast­vaxta­tíma­bili sínu á árinu 2024 en alls koma 340 millj­arðar króna í óverð­tryggðum íbúða­lánum til vaxta­end­ur­skoð­unar á þessum tveimur árum. Á árinu 2025 koma svo lán upp á 250 millj­arða króna í við­bót til end­ur­skoð­un­ar, en þorri þeirra lána eru óverð­tryggð. 

Því er ljóst að stór hluti heim­ila í land­inu annað hvort býr við veru­­lega auk­inn hús­næð­is­­kostnað eða sér fram á veru­­lega aukn­ing­u. 

Fjár­­­mála­­leg skil­yrði heim­ila versnað

Í nýjasta riti Pen­inga­­mála Seðla­­banka Íslands, sem kom út í lok nóv­em­ber, kom fram að fjár­­­mála­­leg skil­yrði heim­ila lands­ins hafi versn­að. Vaxta­­gjöld heim­ila í hlut­­falli við ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur hafi hækkað frá því í fyrra eftir mikla lækkun í kjöl­far lækk­­unar vaxta í heims­far­aldr­inum Vaxta­­gjöldin eru þó enn undir sög­u­­legu með­­al­tali þrátt fyrir mikla hækkun vaxta í ár enda hafa ráð­­stöf­un­­ar­­tekjur hækkað umtals­vert. 

Í rit­inu segir að áhrif vaxta­hækk­­ana á greiðslu­­byrði skuldugra heim­ila gætir fyrr nú en áður þar sem lið­­lega fjórð­ungur íbúða­lána ber breyt­i­­lega óverð­­tryggða vexti og óverð­­tryggð lán á föstum vöxtum séu að stærstum hluta með fasta vexti til ein­ungis þriggja ára. „Greiðslu­­byrði lán­tak­enda sem festu vexti á fast­­eigna­lánum þegar vextir voru í sög­u­­legu lág­­marki mun því að öðru óbreyttu aukast þegar tíma­bil fastra vaxta rennur út. Á sama tíma hefur hlutur verð­­tryggðra íbúða­lána af nýjum lánum auk­ist þótt verð­­tryggðir vextir hafi einnig hækkað frá fyrri hluta árs í takt við almennt hækk­­andi raun­vext­i.“

Hlut­­deild verð­­tryggðra lána af útistand­and­andi lánum er nú um 56 pró­­sent.

Greiðslu­­byrði þeirra er lægri en óverð­­tryggðra fyrstu árin eftir að lánin eru tek­in, en eykst svo skarpt séu þau látin lifa allan sinn líf­­tíma. Í verð­­bólg­u­á­standi líkt og nú rík­­ir, þar sem verð­­bólgan er 9,6 pró­­sent, leggj­­ast hins­vegar miklar verð­bætur á höf­uð­stól lána. 

Í skýrslu HMS segir að greiðslu­­byrði 50 milljón króna láns til 30 ára á verð­­tryggðum vöxtum sé nú um 192 þús­und krón­­ur, eða um 119.500 krónum lægri en í dæm­inu um óverð­­tryggt lán á breyt­i­­legum vöxtum sem tekið var hér í upp­­hafi.

Kaup­máttur ekki dreg­ist jafn mikið saman í tólf ár

Kjarn­inn greindi frá því um liðna helgi að það hafi gerst í fyrsta sinn frá lok árs 2012 og byrjun árs 2013 á þriðja árs­fjórð­ungi 2022 að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hafi dreg­ist saman tvo árs­fjórð­unga í röð. Þá dróst hann saman um 6,1 pró­sent sem er mesti sam­dráttur sem mælst hefur á þremur mán­uðum frá lokum árs 2010.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekj­ur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uð­i. 

Í töl­unum eru vaxta­­gjöld heim­il­anna dregin frá tekjum við útreikn­ing ráð­­stöf­un­­ar­­tekna. Þannig er í töl­unum tekið til­­lit til áhrifa vaxta­hækk­­ana á heim­il­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar