helgi-og-bogi.png
Auglýsing

Í öðrum þætti af Ferð til fjár trufl­aði Helgi Selj­an, annar umsjón­ar­manna þátt­anna, Boga Ágústs­son eina ferð­ina enn við að lesa upp kvöld­frétt­ir. „Fyr­ir­gefðu Bogi, við­skipta­jöfn­uð­ur,“ sagði Helgi með spurn­ar­tón. Bogi var þá að greina frá nýjum upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum um greiðslu­jöfnuð við útlönd á fjórða árs­fjórð­ungi.

„Við­skipta­jöfn­uður mælir mun­inn á verð­mæti inn- og útflutn­ings. Ef við flytjum út fyrir tíu millj­arða og inn fyrir níu millj­arða þá er við­skipta­jöfn­uð­ur­inn hag­stæður um einn millj­arð króna,“ sagði Bogi. „Þetta er mæli­tæki til þess að fylgj­ast streymi pen­inga inn og út úr land­inu. Við­skipta­jöfn­uð­ur­inn tekur til­lit til bæði einka­að­ila og opin­bera aðila.“

Auglýsing

Eins og hann benti Helga á, þá þarf við­skipta­halli ekki endi­lega að vera slæm­ur. „Það getur verið merki um að ein­hver sé að fjár­festa í ein­hverju, sem síðan mun leiða til meiri útflutn­ings. Þá jafn­ast við­skipta­hall­inn út,“ sagði Bogi.

Auk þess að mæla mun á verð­mæti inn- og útflutn­ings þá tekur við­skipta­jöfn­uður til­lit til greiðslna á vöxt­um, arði og lánum milli inn­lendra og erlendra aðila. Kall­ast það jöfn­uður frum­þátta­tekna og saman kall­ast pen­inga­flæðið greiðslu­jöfn­uður.

Skiptir þetta mál?

„Nei, í raun­inni ekki,“ sagði hann síðan þegar Helgi spurði hvort við­skipta­jöfn­uð­ur­inn skipti hann þá engu máli í dag­legu lífi. „En ef við­skipta­hall­inn er við­var­andi þá getur það leitt til þess að krónan veikist, við gætum þurft að taka lán til þess að bæta upp við­skipta­hall­ann og að allt sem við flytjum inn frá útlöndum hækki í verð­i,“ sagði Bogi.

Gengi krón­unnar hefur mikið að segja um verð­mæti útflutn­ings­varn­ings og verð á inn­fluttum vör­um. Sterkara gengi krón­unnar þýðir að minna fæst fyrir útflutn­ing­inn, ódýr­ara er að flytja inn og ýtir þannig sterkara gengi undir við­skipta­halla. Þessi þróun sást vel fyrir efna­hags­hrunið 2008, eins og sjá má á graf­inu hér fyrir neð­an. Súl­urnar sýna við­skipta­jöfn­uð­inn á hverju ári frá 2004, mik­ill við­skipta­halli var á árunum fyrir hrun: verð­mæti útflutn­ings­vara og þjón­ustu var miklu minna en verð­mæti varn­ings sem var fluttur til lands­ins.



Við­skipta­jöfn­uður 2004 - 2014 |Create infograp­hics

 

Með veik­ara gengi, auknu virði útflutn­ings og minni inn­flutn­ingi, þá dróst við­skipta­halli veru­lega saman eftir hrun og var jákvæður árið 2013. Allt útlit er fyrir að það verði einnig afgangur af við­skiptum í ár, en upp­lýs­ingar um við­skipta­jöfnuð á síð­asta árs­fjórð­ungi 2014 hafa ekki verið birtar (og sýnir súlan fyrir 2014 því aðeins við­skipta­jöfn­uð­inn á fyrstu níu mán­uðum árs­ins).

Við­skipta­jöfn­uður 2004 til 2014 (án áhrifa gömlu bank­anna frá   4. árs­fjórð­ungi 2008) |Create infograp­hics



Í fyrsta graf­inu er ekki tekið sér­stakt til­lit til þrota­búa gömlu bank­anna. Vegna þess hve mikil áhrif upp­gjör þeirra getur haft á við­skipta­jöfn­uð­inn, þá birtir Seðla­bank­inn við­skipta­jöfnuð bæði með og án áhrifa gömlu bank­anna. Í graf­inu hér að ofan má sjá þró­un­ina án áhrifa gömlu bank­anna.

Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 29. jan­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnHallgrímur Oddsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None