bogi-og-helgi.png
Auglýsing

Bogi Ágústs­son frétta­maður greindi frá hækkun vísi­tölu neyslu­verðs í síð­asta þætti Ferðar til fjár. Helga Seljan þótti frétta­lest­ur­inn heldur óskýr og bað Boga um að útskýra þetta bet­ur, rétt eins og hann gerði þegar hann stöðv­aði Boga við að lesa upp heldur tor­skyldar fréttir um við­skipta­jöfnuð og gengi krón­unnar.

„Þetta kann að þykja flókið fyrst. Vísi­tala neyslu­verðs er í raun­inni mæl­ing á því hversu mikil verð­bólga er. Í hverjum mán­uði þá athugar Hag­stofan verð á yfir fjögur þús­und vöru­teg­undum og þjón­ustu. Ef að verð hefur hækk­að, þá vegur það inn í vísi­töl­una sem hækk­ar. Ef að vöru­verð hefur lækk­að, til dæmis ef bensín lækkar í verði, þá lækkar vísi­talan sem þýðir minni verð­bólg­u,“ útskýrði Bogi.

Auglýsing


Síð­ast­liðna mán­uði hefur verð­bólga á Íslandi, það er breyt­ing á vísi­tölu neyslu­verðs síð­ast­liðna tólf mán­uði, mælst afar lág. Við síð­ustu mæl­ingu var verð­bólgan 0,8 pró­sent, sem þýðir að almennt hefur verð­lag í land­inu hækkað um 0,8 pró­sent á tólf mán­aða tíma­bili. Eins og fram kom í nýlegri umfjöllun okkar um verð­breyt­ingar á Íslandi 2014, þá var afar mis­jafnt hvernig und­ir­liðir vísi­töl­unn­ar, það eru allar þær vörur og þjón­ustu­liðir sem Hag­stofan mælir í hverjum mán­uði, breytt­ust á árinu. Á meðan sykur og þjón­usta sér­fræði­lækna hækk­uðu um fimmt­ung, þá lækk­aði verð á sjón­varps­tækjum og sveppum tölu­vert.

Hefur áhrif á lánin

Eins og Íslend­ingar þekkja vel, þá hefur vísi­tala neyslu­verðs áhrif á verð­tryggð lán. „Þau eru miðuð við vísi­tölu neyslu­verðs. Ef að vísi­talan hækk­ar, þá hækkar höf­uð­stóll­inn á lán­inu þínu. Ef hún hækkar mik­ið, þá hækkar lán­ið,“ sagði Bogi við Helga.



Hér sést hvernig vísi­tala neyslu­verðs hefur breyst frá jan­úar 2014 til jan­úar 2015. Rauða línan mælir verð­breyt­ingar án hús­næðis en sú gula með hús­næði.



Á seinni mynd­inni má síðan sjá hvernig verð­bólgan, það er tólf mán­aða breyt­ing vísi­töl­unn­ar, hefur breyst frá árs­byrjun 2014. Ef ekki væri fyrir hækkun fast­eigna­verðs og tengdra liða, þá væri verð­hjöðnun en ekki verð­bólga á Íslandi.



Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 5. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnHallgrímur Oddsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None