Ársreikningaskrá hefur aldrei krafist skipta á félögum sem skila ekki ársreikningi, þrátt fyrir að heimild sé til þess í lögum. Ástæðan er sú að atvinnuvegaráðherra hefur ekki sett nánari fyrirmæli um meðferð slíkra mála í reglugerð, en umrædd reglugerð er forsenda þess að ársreikningaskrá geti beitt ákvæðinu.
Þetta kemur fram í svari Skattsins við fyrirspurn Kjarnans um málið.
Árið 2016 voru viðurlög við því að skila ársreikningum seint eða alls ekki hert umtalsvert með lagabreytingu. Tilgangurinn var að bæta skil en einnig að sporna gegn kennitöluflakki og auka gagnsæi.
Samkvæmt lögunum um ársreikninga á að skila inn slíkum innan átta mánaða frá því að rekstarári lýkur. Það þýðir að flest félög, sem miða við almanaksárið í rekstri sínum, þurfa að skila ársreikningi fyrir lok ágústmánaðar á hverju ári. Geri þau það ekki getur Skatturinn lagt á félögin sekt. Hún er þó afar lág, 600 þúsund krónur, og lítið mál fyrir fyrirtæki sem vilja ekki sýna inn á rekstur sinn að greiða hana.
Félög fengu 14 mánuði
Hin viðurlögin sem lagabreytingin heimilaði eru þyngri. Í lögunum segir að ef „ársreikningi eða samstæðureikningi hefur ekki verið skilað innan [sex] 1) mánaða frá því að frestur … til skila á ársreikningi eða samstæðureikningi er liðinn eða frá því að ársreikningaskrá hefur komist að þeirri niðurstöðu að skýringar eða upplýsingar með ársreikningi eða samstæðureikningi sem lagður hefur verið fram til opinberrar birtingar hafi ekki verið fullnægjandi skal ársreikningaskrá krefjast skipta á búi félagsins.“
Dauð heimild á meðan að ráðherra setur ekki reglugerð
Þrátt fyrir að fimm ár séu síðan að viðurlögin voru innleidd í íslensk lög, og að fyrir liggi að fjölmörg félög hafa ekki skilað ársreikningum innan þess 14 mánaða ramma sem þau þurfa frá lokum rekstrarárs til að forðast upplausn, þá hefur Skatturinn aldrei beitt ákvæðinu.
Samkvæmt svari Skattsins við fyrirspurn Kjarnans um málið er ástæðan sú að í lögunum komi fram að ráðherra eigi að setja „nánari fyrirmæli um meðferð slíkra mála hjá ársreikningaskrá í reglugerð.“
Málefni ársreikningaskrár heyra undir atvinnuvegaráðuneytið. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir stýrir þeim hluta ráðuneytisins sem fer með þau málefni.
Kjarninn spurði Skattinn einnig hvort að gripið væri til sérstakra aðgerða ef fyrirtæki sem teldust til 20 stærstu fyrirtækja landsins hefðu ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2019, þegar nokkrar daga væru til þess að skila ætti ársreikningi 2020. Í svari stofnunarinnar segir að ársreikningaskrá Skattsins birti auglýsingar í fjölmiðlum og sendir áminningar á þjónustuvef allra félaga sem eru skilaskyld til ársreikningaskrár um að skiladagur nálgist. „Ekki er gerður greinarmunur á stærð félaga í tengslum við þessa upplýsingagjöf.“
Risavaxið fyrirtæki grunað um efnahagsbrot skilar ekki ársreikningum
Ástæða þess að Kjarninn spurðist fyrir um málið er að eitt stærsta fyrirtæki landsins, Samherji Holding, hefur ekki skilað ársreikningi vegna ársins 2019 þrátt fyrir að hafa átt að gera það á síðasta ári. Samkvæmt lögum um ársreikningaskrá hefði heimild skattayfirvalda til að slíta félaginu vegna vanskila á ársreikningi að hafa virkjast í lok febrúar síðastliðins.
Eigið fé Samherja Holding var rúmlega 58 milljarðar króna í lok árs 2018, samkvæmt síðasta ársreikningi sem félagið hefur birt. Félagið heldur utan um þorra erlendrar starfsemi Samherjasamstæðunnar, en umfangsmikil rannsókn hófst á henni á árinu 2019, eftir opinberun fjölmiðla á starfsháttum Samherja í Namibíu. Grunur er um mútugreiðslur, skattasniðgöngu og peningaþvætti. Málið er til rannsóknar hérlendis hjá bæði embætti héraðssaksóknara og skattayfirvöldum auk þess sem ákært hefur verið í því í Namibíu.
Kjarninn óskaði skýringum frá forsvarsmönnum Samherja Holding um ástæður þess að fyrirtækið hefði ekki skilað inn ársreikningnum, líkt og lög gera ráð fyrir, í upphafi árs. Í svari þeirra sagði að enn væri unnið að gerð reikningsins, og að sú vinna hefði tafist af ýmsum ástæðum. „Ársreikningi 2019 fyrir Samherja Holding ehf. verður skilað þegar hann er tilbúinn, sem verður innan ekki langs tíma.“
Í júní hafði reikningnum enn ekki verið skilað og því sendi Kjarninn aðra fyrirspurn um málið til Samherja Holding. Henni var ekki svarað.