Samherji Holding hefur enn ekki skilað ársreikningi vegna ársins 2019

Ársreikningaskrá hefur heimild til að krefjast skipta á búum fyrirtækja sem skila ekki ársreikningum innan 14 mánaða frá því að uppgjörsári lýkur. Eitt stærsta fyrirtæki landsins, Samherji Holding, hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2019.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru tveir af aðaleigendum Samherja Holding.
Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru tveir af aðaleigendum Samherja Holding.
Auglýsing

Eftir rúmar tvær vikur rennur út frestur fyr­ir­tækja á Íslandi til að skila inn árs­reikn­ingi sínum vegna árs­ins 2020 til árs­reikn­inga­skrá­ar. Öllum fyr­ir­tækjum lands­ins ber að skila inn slíkum fyrir lok ágúst­mán­aðar á hverju ári.

Þau fyr­ir­tæki sem gera það ekki geta átt von á því að þurfa að borga stjórn­valds­sekt. Sú sekt er þó ekki há, ein­ungis 600 þús­und krón­ur, sem er upp­hæð sem skiptir litlu sem engu máli í rekstri flestra fyr­ir­tækja. 

Ef fyr­ir­tæki hafa ekki skilað árs­reikn­ingi sex mán­uðum eftir að frestur þeirra til að skila honum inn er lið­inn þá segir í lögum um árs­reikn­inga að árs­reikn­inga­skrá eigi að „krefj­ast skipta á búi félags­ins.“

Eitt stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi, Sam­herji Hold­ing, hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019, þrátt fyrir að næstum ár sé síðan að sá reikn­ingur átti að ber­ast árs­reikn­inga­skrá sam­kvæmt lög­um. Eigið fé Sam­herja Hold­ing var rúm­lega 58 millj­arðar króna í lok árs 2018, sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi sem félagið hefur birt. ­Fé­lagið heldur utan um þorra erlendrar starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, en umfangs­mikil rann­sókn hófst á henni á árinu 2019, eftir opin­berun fjöl­miðla á starfs­háttum Sam­herja í Namib­íu. Grunur er um mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Málið er til rann­sóknar hér­lendis hjá bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum auk þess sem ákært hefur verið í því í Namib­íu.

Kjarn­inn óskaði skýr­ingum frá for­svars­mönnum Sam­herja Hold­ing um ástæður þess að fyr­ir­tækið hefði ekki skilað inn árs­reikn­ingn­um, líkt og lög gera ráð fyr­ir, í upp­hafi árs. Í svari þeirra sagði að enn væri unnið að gerð reikn­ings­ins, og að sú vinna hefði taf­ist af ýmsum ástæð­um. „Árs­reikn­ingi 2019 fyrir Sam­herja Hold­ing ehf. verður skilað þegar hann er til­bú­inn, sem verður innan ekki langs tíma.“

Í júní hafði reikn­ingnum enn ekki verið skilað og því sendi Kjarn­inn aðra fyr­ir­spurn um málið til Sam­herja Hold­ing. Henni var ekki svar­að. 

Sam­herja skipt í tvennt

Á árinu 2018 gerð­ist það að Sam­herja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017. 

Eftir það er þorri inn­­­­­lendrar starf­­­sem­i Sam­herja og starf­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­sem­i og hluti af fjár­­­fest­ing­­ar­­starf­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Hold­ing ehf.

Auglýsing
Samherji Hold­ing er að uppi­stöðu í eigu Þor­steins Más Bald­vins­son­ar, Helgu S. Guð­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, og Krist­jáns Vil­helms­son­ar. Inni í þeim hluta starf­sem­innar eru eign­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­ur­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagi á Ísland­i. Þar eru þó einnig íslenskir hags­mun­ir, meðal ann­ars 34,22 pró­sent hlutur í Eim­skip, sem hefur rúm­lega tvö­fald­ast í virði síð­ast­liðið ár. 

Í byrjun árs 2021 var greint frá því að Bald­vin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, hafi verið falið að leiða útgerð­ar­starf­semi Sam­herja í Evr­ópu, sem fer fram í gegnum Sam­herja Hold­ing. 

Inni í þeim hluta er líka fjár­­­fest­inga­­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­­ur­­fé­lög, Esju Shipp­ing Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­­festi á Kýp­­ur. Þau félög héldu meðal ann­­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­­íu, þar sem sam­­stæðan og stjórn­­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­­ast yfir ódýran kvóta. 

Inn­lendi hlut­inn færður að mestu til barna

Sam­herji greindi frá því að heima­síðu sinni í maí í fyrra að 86,5 pró­sent hlutur í Sam­herja hf., hinum helm­ingi Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, hefði verið færður frá Þor­steini Má, Helgu og Krist­jáns til barna þeirra.  Eftir þá til­færslu eru stærstu hlut­hafar Sam­herja hf. Bald­vin og Katla Þor­­steins­­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 43,0 pró­­sent hlut í Sam­herja og Dagný Linda, Hall­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín Krist­jáns­­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­­sent hluta­fjár. 

Í til­kynn­ingu á vef Sam­herja sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­­skyld­u­­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­­steinn í rekstr­in­­um.“

Árs­reikn­ingi Sam­herja hf. vegna árs­ins 2019 var skilað til árs­reikn­inga­skráar í fyrra­haust.

Sak­sókn­ari með gögnin frá KPMG

KPMG var end­ur­skoð­andi Sam­herja Hold­ing árum sam­an, og raunar Sam­herj­a­sam­stæð­unnar allr­ar. Í fyrra­haust var greint frá því að Sam­herji hefði ákveðið að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki og fara með við­skipti sín til BDO ehf., lítt þekkts end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is. Stundin fjall­aði um þessi vista­skipti í lok októ­ber og byrj­un nóv­em­ber í fyrra. 

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun febr­úar 2021 að KPMG hafi verið gert að láta emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara í té upp­­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þarf fyr­ir­tækið að láta hér­­aðs­sak­­sókn­­ara hafa upp­­lýs­ingar og gögn sem varða eina til­­­tekna skýrslu sem KPMG vann um starf­­semi Sam­herja á árunum 2013 og 2014. 

Hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð sinn um þetta í byrjun des­em­ber. Dóm­­ur­inn féllst á kröfur hér­­aðs­sak­­sókn­­ara um að KPMG yrði skyldað til að láta gögnin af hendi og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­­mönnum félags­­ins yrði söm­u­­leiðis gert skylt að veita emb­ætt­inu þær upp­­lýs­ingar sem þeir búa yfir.

Stjórn­endur Sam­herja voru ekki ánægðir með þessa nið­ur­stöðu og sögðu vinnu­brögð sak­sókn­ara og hér­aðs­dóm­ara í mál­inu vera „ótrú­leg“. 

Fyr­ir­tækið sagði í yfir­lýs­ingu að með úrskurð­inum hafi ekki ein­ungis lög­­bund­inni þagn­­ar­­skyldu verið aflétt af end­­ur­­skoð­endum KPMG, heldur einnig rof­inn trún­­aður lög­­­manna, enda hafi gögn sem emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara fékk með úrskurð­inum ver­ið „í vörslum bæði end­­ur­­skoð­enda og lög­­­manna hjá KPMG og dótt­­ur­­fé­lög­­um.“

Í kjöl­farið kærði KPMG, dótt­ur­fé­lag þess og end­ur­skoð­andi Sam­herja sem starfar hjá KPMG úrskurð­inn til Lands­réttar sem féllst á aðfinnslur þeirra í febr­úar síð­ast­liðn­um, ógilti úrskurð­inn og vís­aði mál­inu aftur heim í hér­að.

Í mars kvað hér­aðs­dóm­ari upp nýjan úrskurð þar sem gagna­öfl­unin var sögð lög­mæt. Sam­herji reyndi á að fara fram á að gögn­unum yrði eytt en því máli var vísað frá fyrr í þessum mán­uði vegna aðild­ar­skorts, enda Sam­herji ekki eig­andi gagn­anna heldur KPMG.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent