Líkurnar á að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur haldi velli komnar niður í 38 prósent
Í lok ágúst voru líkurnar á því að sitjandi ríkisstjórn myndi halda 60 prósent. Þær hafa minnkað hratt en á sama tíma hafa líkurnar á myndun fjögurra flokka stjórnar án Sjálfstæðisflokks aukist umtalsvert.
Líkurnar á því að ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sitji áfram eftir komandi kosningar eru nú 38 prósent, samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar. Þær hafa dregist skarpt saman síðustu vikur en í lok ágúst mældust líkurnar á því að hægt yrði að mynda þessa ríkisstjórn, kennda við forsætisráðherrann Katrínu Jakobsdóttur, 60 prósent.
Líkurnar eru fengnar með því að framkvæma 100 þúsund sýndarkosningar. Í hverri sýndarkosningu er vegið meðaltal þeirra skoðanakannana sem kosningaspáin nær yfir hverju sinni líklegasta niðurstaðan en sýndarniðurstaðan getur verið hærri eða lægri en þetta meðaltal og hversu mikið byggir á sögulegu fráviki skoðanakannana frá úrslitum kosninga.
Fjöldi þingsæta | DVB | DBM | DV | VPSB | VPSC | DBMF |
---|---|---|---|---|---|---|
>=41 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=42 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=41 | 0% | 0% | 0% | 1% | 0% | 0% |
>=40 | 1% | 0% | 0% | 2% | 1% | 0% |
>=39 | 1% | 0% | 0% | 3% | 2% | 0% |
>=38 | 2% | 0% | 0% | 5% | 3% | 1% |
>=37 | 4% | 0% | 0% | 9% | 6% | 1% |
>=36 | 7% | 0% | 0% | 15% | 10% | 2% |
>=35 | 12% | 1% | 0% | 22% | 15% | 5% |
>=34 | 19% | 2% | 0% | 31% | 23% | 8% |
>=33 | 28% | 4% | 0% | 42% | 32% | 12% |
>=32 | 38% | 7% | 0% | 53% | 42% | 19% |
>=31 | 49% | 12% | 1% | 64% | 54% | 27% |
>=30 | 61% | 18% | 1% | 74% | 65% | 37% |
>=29 | 72% | 27% | 3% | 82% | 74% | 48% |
>=28 | 81% | 37% | 5% | 88% | 83% | 59% |
>=27 | 88% | 49% | 9% | 93% | 89% | 69% |
>=26 | 93% | 60% | 15% | 96% | 93% | 78% |
>=25 | 96% | 71% | 23% | 98% | 96% | 86% |
>=24 | 98% | 80% | 34% | 99% | 98% | 91% |
>=23 | 99% | 98% | 46% | 99% | 99% | 95% |
>=22 | 100% | 92% | 59% | 100% | 100% | 97% |
Til að fá þá niðurstöðu sem er hér til umfjöllunar er nýjasta kosningaspáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjördæmum út frá fylgi þeirra í síðustu kosningum.
Hægt er að sjá nýjustu kosningaspánna, sem er frá því í gær, hér að neðan.
Þær kannanir sem liggja til grundvallar nýjustu kosningaspánni eru eftirfarandi:
- Skoðanakönnun MMR í samstarfi við Morgunblaðið 8 – 10. september (vægi 12,5 prósent)
- Netpanell ÍSKOS/Félagsvísindastofnunnar 23. ágúst – 13. september (13,2 prósent)
- Þjóðarpúls Gallup 30. ágúst-12. september (vægi 17,6 prósent)
- Skoðanakönnun Prósent í samstarfi við Fréttablaðið 13– 16. september (26,7 prósent)
- Skoðanakönnun Maskínu í samstarfi við Fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis 8 – 13. september (30,0 prósent)
Sýndarkosningarnarnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa niðurstöðu. Einungis tvö mynstur ná eitt prósent líkum, tveggja flokka stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Fyrri möguleikinn er þó ómögulegur þótt meirihluti fengist, þar sem Samfylkingin hefur útilokað stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokk.
Tvær fjögurra flokka stjórnir líklegri en núverandi stjórn
Tvær fjögurra flokka stjórnir án Sjálfstæðisflokks reiknast nú með meiri líkur á möguleika en sú þriggja flokka stjórn sem nú situr að völdum. Líkurnar á myndun fjögurra flokka ríkisstjórnar sem samanstæði af Samfylkingu, Framsóknarflokki, Vinstri grænum og Pírötum mælast nú 54 prósent. Þær mældust 33 prósent í ágúst.
Þar sem Vinstri græn og Viðreisn mælast með nákvæmlega sama fylgið í nýjustu kosningaspá Kjarnans má ætla að miðjustjórn þar sem flokkur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur tæki sæti flokks Katrínar Jakobsdóttur myndi mælast með sömu líkur, eða 54 prósent.
Fjöldi þingsæta | D | V | P | S | B | C | M | J | F |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
>=22 | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=21 | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=20 | 2% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=19 | 4% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=18 | 7% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=17 | 10% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=16 | 13% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=15 | 15% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=14 | 15% | 1% | 0% | 1% | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=13 | 13% | 1% | 1% | 2% | 2% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=12 | 9% | 2% | 3% | 5% | 4% | 1% | 0% | 0% | 0% |
>=11 | 3% | 5% | 6% | 9% | 8% | 3% | 0% | 0% | 0% |
>=10 | 1% | 8% | 10% | 14% | 13% | 8% | 0% | 0% | 0% |
>=9 | 0% | 13% | 15% | 17% | 17% | 1% | 0% | 1% | 0% |
>=8 | 0% | 17% | 18% | 18% | 17% | 19% | 1% | 3% | 1% |
>=7 | 0% | 18% | 18% | 15% | 15% | 21% | 4% | 7% | 1% |
>=6 | 0% | 15% | 14% | 10% | 11% | 17% | 9% | 13% | 4% |
>=5 | 0% | 10% | 9% | 5% | 7% | 10% | 16% | 19% | 9% |
>=4 | 0% | 6% | 4% | 2% | 3% | 5% | 21% | 21% | 16% |
>=3 | 0% | 2% | 1% | 1% | 1% | 1% | 13% | 12% | 13% |
>=2 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 1% | 3% | 1% | 2% |
>=1 | 0% | 1% | 1% | 0% | 0% | 3% | 12% | 7% | 12% |
>=0 | 0% | 1% | 0% | 0% | 0% | 3% | 20% | 16% | 44% |
Líkurnar á myndun stjórnar eftir Reykjavíkurmódelinu svokallaða, sem samanstæði af Samfylkingu, Vinstri grænum, Pírötum og Viðreisn, eru líka betri en þær sem sitjandi ríkisstjórn hefur á því að halda völdum. Þær mælast nú 42 prósent en voru 44 prósent í ágúst.
Sjálfstæðisflokkur ekki mælst lægri á árinu
Samkvæmt nýjustu kosningaspánni þá er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur allra flokka með 21,9 prósent fylgi, sem er undir kjörfylgi hans í síðustu kosningum og það lægsta sem hann hefur mælst með í kosningaspánni það sem af er ári.
Samfylkingin virðist vera að ná stöðu sinni sem næst stærsti flokkur landsins á ný og fylgi flokksins hefur þokast upp á við síðustu daga. Það mælist nú 13,1 prósent og hefur ekki mælst hærra í spánni frá því að hún var keyrð fyrst í aðdraganda komandi kosninga, en það var í lok apríl. Hún virðist því vera að toppa á réttum tíma, nú þegar vika er í kosningar.
Framsóknarflokkurinn virðist ætla að verða eini stjórnarflokkurinn sem fer út úr kjörtímabilinu með meira fylgi en hann hóf það með. Hann mælist nú með 12,5 prósent stuðning og er 1,8 prósentustigi yfir kjörfylgi.
Píratar hafa sýnt mikinn stöðugleika í fylgi og mælast nú með 11,9 prósent.
Vinstri græn hafa dalað síðustu daga og mælast nú með jafn mikið fylgi og Viðreisn, eða 11,4 prósent.
Sósíalistaflokkurinn mælist með 6,9 prósent, sem myndi skila honum örugglega inn á þing, og Miðflokkurinn með 6,1 prósent, Flokkur fólksins er sá flokkur sem mælist með minnst fylgi þeirra sem eiga raunhæfan möguleika á að ná inn manni, eða 4,5 prósent.
Sýndarkosningarnar sýna að 44 prósent líkur á því að Flokkur fólksins komi ekki manni inn á þing, 20 prósent líkur á að Miðflokkurinn nái ekki manni inn en einungis 16 prósent líkur á að Sósíalistaflokkur Íslands þurfi að bíta í það súra epli. Til samanburðar voru líkurnar á því að Sósíalistaflokkurinn næði ekki inn 29 prósent í síðasta mánuði.
Hvað er kosningaspáin?
Fyrir hverjar kosningar um allan heim birta fjölmiðlar gríðarlegt magn af upplýsingum. Þessar upplýsingar eru oftar en ekki tölfræðilegar, byggðar á skoðanakönnunum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upplifir stjórnmálin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórnmálafræðingar og fjölmiðlar keppast svo við að túlka niðurstöðurnar og veita almenningi enn meiri upplýsingar um stöðuna í heimi stjórnmálanna.
Allar þessar kannanir og allar mögulegar túlkanir á niðurstöðum þeirra kunna að vera ruglandi fyrir hinn almenna neytanda. Einn kannar skoðanir fólks yfir ákveðið tímabil og annar kannar sömu skoðanir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könnunin er nákvæmari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vandinn er að hinn almenni kjósandi hefur ekki forsendur til að meta áreiðanleika hverrar könnunar.
Þar kemur kosningaspáin til sögunnar.
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Niðurstöður spálíkansins eru svo birtar hér á Kjarnanum reglulega í aðdraganda kosninga.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars