Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líkurnar á að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur haldi velli komnar niður í 38 prósent

Í lok ágúst voru líkurnar á því að sitjandi ríkisstjórn myndi halda 60 prósent. Þær hafa minnkað hratt en á sama tíma hafa líkurnar á myndun fjögurra flokka stjórnar án Sjálfstæðisflokks aukist umtalsvert.

Lík­urnar á því að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sitji áfram eftir kom­andi kosn­ingar eru nú 38 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Bald­urs Héð­ins­son­ar. Þær hafa dreg­ist skarpt saman síð­ustu vikur en í lok ágúst mæld­ust lík­urnar á því að hægt yrði að mynda þessa rík­is­stjórn, kennda við for­sæt­is­ráð­herr­ann Katrínu Jak­obs­dótt­ur, 60 pró­sent.

Lík­urnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Líkur á samsteypustjórnum mismunandi flokkaTil að ná minnsta mögulega meirihluta á Alþingi þarf 32 þingmenn.
Fjöldi þingsæta DVB DBM DV VPSB VPSC DBMF
>=41
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=42
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=41
0%
0%
0%
1%
0%
0%
>=40
1%
0%
0%
2%
1%
0%
>=39
1%
0%
0%
3%
2%
0%
>=38
2%
0%
0%
5%
3%
1%
>=37
4%
0%
0%
9%
6%
1%
>=36
7%
0%
0%
15%
10%
2%
>=35
12%
1%
0%
22%
15%
5%
>=34
19%
2%
0%
31%
23%
8%
>=33
28%
4%
0%
42%
32%
12%
>=32
38%
7%
0%
53%
42%
19%
>=31
49%
12%
1%
64%
54%
27%
>=30
61%
18%
1%
74%
65%
37%
>=29
72%
27%
3%
82%
74%
48%
>=28
81%
37%
5%
88%
83%
59%
>=27
88%
49%
9%
93%
89%
69%
>=26
93%
60%
15%
96%
93%
78%
>=25
96%
71%
23%
98%
96%
86%
>=24
98%
80%
34%
99%
98%
91%
>=23
99%
98%
46%
99%
99%
95%
>=22
100%
92%
59%
100%
100%
97%

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ing­um.

Hægt er að sjá nýj­ustu kosn­inga­spánna, sem er frá því í gær, hér að neð­an. 

Niðurstöður kosningaspárinnar 17. september 2021

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 8 – 10. sept­em­ber (vægi 12,5 pró­sent)
  • Net­pan­ell ÍSKOS/­Fé­lags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 13. sept­em­ber (13,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 17,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Pró­sent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (26,7 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (30,0 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Ein­ungis tvö mynstur ná eitt pró­sent lík­um, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks og stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Auglýsing

Fyrri mögu­leik­inn er þó ómögu­legur þótt meiri­hluti feng­ist, þar sem Sam­fylk­ingin hefur úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk.

Tvær fjög­urra flokka stjórnir lík­legri en núver­andi stjórn

Tvær fjög­urra flokka stjórnir án Sjálf­stæð­is­flokks reikn­ast nú með meiri líkur á mögu­leika en sú þriggja flokka stjórn sem nú situr að völd­um. Lík­urnar á myndun fjög­urra flokka rík­is­stjórnar sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki, Vinstri grænum og Pírötum mæl­ast nú 54 pró­sent. Þær mæld­ust 33 pró­sent í ágúst. 

Þar sem Vinstri græn og Við­reisn mæl­ast með nákvæm­lega sama fylgið í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans má ætla að miðju­stjórn þar sem flokkur Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur tæki sæti flokks Katrínar Jak­obs­dóttur myndi mæl­ast með sömu lík­ur, eða 54 pró­sent.

Líkur á fjölda þingsæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þingsæta D V P S B C M J F
>=22
1%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=21
1%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=20
2%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=19
4%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=18
7%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=17
10%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=16
13%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=15
15%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=14
15%
1%
0%
1%
1%
0%
0%
0%
0%
>=13
13%
1%
1%
2%
2%
0%
0%
0%
0%
>=12
9%
2%
3%
5%
4%
1%
0%
0%
0%
>=11
3%
5%
6%
9%
8%
3%
0%
0%
0%
>=10
1%
8%
10%
14%
13%
8%
0%
0%
0%
>=9
0%
13%
15%
17%
17%
1%
0%
1%
0%
>=8
0%
17%
18%
18%
17%
19%
1%
3%
1%
>=7
0%
18%
18%
15%
15%
21%
4%
7%
1%
>=6
0%
15%
14%
10%
11%
17%
9%
13%
4%
>=5
0%
10%
9%
5%
7%
10%
16%
19%
9%
>=4
0%
6%
4%
2%
3%
5%
21%
21%
16%
>=3
0%
2%
1%
1%
1%
1%
13%
12%
13%
>=2
0%
0%
0%
0%
0%
1%
3%
1%
2%
>=1
0%
1%
1%
0%
0%
3%
12%
7%
12%
>=0
0%
1%
0%
0%
0%
3%
20%
16%
44%

Lík­urnar á myndun stjórnar eftir Reykja­vík­ur­mód­el­inu svo­kall­aða, sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Vinstri græn­um, Pírötum og Við­reisn, eru líka betri en þær sem sitj­andi rík­is­stjórn hefur á því að halda völd­um. Þær mæl­ast nú 42 pró­sent en voru 44 pró­sent í ágúst. 

Sjálf­stæð­is­flokkur ekki mælst lægri á árinu

Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni þá er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 21,9 pró­sent fylgi, sem er undir kjör­fylgi hans í síð­ustu kosn­ingum og það lægsta sem hann hefur mælst með í kosn­inga­spánni það sem af er ári. 

Sam­fylk­ingin virð­ist vera að ná stöðu sinni sem næst stærsti flokkur lands­ins á ný og fylgi flokks­ins hefur þok­ast upp á við síð­ustu daga. Það mælist nú 13,1 pró­sent og hefur ekki mælst hærra í spánni frá því að hún var keyrð fyrst í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga, en það var í lok apr­íl. Hún virð­ist því vera að toppa á réttum tíma, nú þegar vika er í kosn­ing­ar.

Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist ætla að verða eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem fer út úr kjör­tíma­bil­inu með meira fylgi en hann hóf það með. Hann mælist nú með 12,5 pró­sent stuðn­ing og er 1,8 pró­sentu­stigi yfir kjör­fylg­i. 

Píratar hafa sýnt mik­inn stöð­ug­leika í fylgi og mæl­ast nú með 11,9 pró­sent. 

Vinstri græn hafa dalað síð­ustu daga og mæl­ast nú með jafn mikið fylgi og Við­reisn, eða 11,4 pró­sent. 

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 6,9 pró­sent, sem myndi skila honum örugg­lega inn á þing, og Mið­flokk­ur­inn með 6,1 pró­sent, Flokkur fólks­ins er sá flokkur sem mælist með minnst fylgi þeirra sem eiga raun­hæfan mögu­leika á að ná inn manni, eða 4,5 pró­sent. 

Sýnd­ar­kosn­ing­arnar sýna ​​að 44 pró­sent líkur á því að Flokkur fólks­ins komi ekki manni inn á þing, 20 pró­sent líkur á að Mið­flokk­ur­inn nái ekki manni inn en ein­ungis 16 pró­sent líkur á að Sós­í­alista­flokkur Íslands þurfi að bíta í það súra epli. Til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði ekki inn 29 pró­sent í síð­asta mán­uði.

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Auglýsing

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar