Mynd: Stjórnarráðið

Meiri líkur en minni á því að hægt verði að mynda miðjustjórn sem teygir sig til vinstri

Þrjár gerðir fjögurra flokka stjórna sem innihalda miðju- og vinstriflokka mælast með meiri líkur á að geta orðið til en sitjandi ríkisstjórn hefur á því að sitja áfram. Í lok síðasta mánaðar voru 60 prósent líkur á því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur næði meirihluta. Nú mælast þær 35 prósent.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja; Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks mælist nú 45,5 pró­sent og hefur ekki mælst lægra frá því að kosn­inga­spáin var fyrst keyrð vegna kom­andi kosn­inga, í apríl síð­ast­liðn­um. Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 7,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og veru­legt vafa­mál er hvort rík­is­stjórnin haldi. Lík­urnar á því mæld­ust yfir 60 pró­sent í lok ágúst en mæl­ast nú 35 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni.

Lík­urnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Líkur á samsteypustjórnum mismunandi flokkaTil að ná minnsta mögulega meirihluta á Alþingi þarf 32 þingmenn.
Fjöldi þingsæta DVB DBM DV VPSB VPSC DBMF
>=41
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=42
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=41
0%
0%
0%
1%
0%
0%
>=40
1%
0%
0%
2%
1%
0%
>=39
1%
0%
0%
3%
2%
0%
>=38
2%
0%
0%
6%
3%
0%
>=37
4%
0%
0%
10%
6%
1%
>=36
6%
0%
0%
16%
10%
2%
>=35
11%
1%
0%
23%
15%
4%
>=34
17%
2%
0%
32%
23%
6%
>=33
25%
3%
0%
43%
32%
10%
>=32
35%
5%
0%
54%
43%
16%
>=31
46%
9%
1%
65%
54%
24%
>=30
58%
15%
1%
75%
65%
33%
>=29
69%
22%
3%
83%
75%
43%
>=28
78%
32%
5%
89%
83%
55%
>=27
86%
43%
9%
93%
89%
65%
>=26
92%
54%
15%
96%
94%
75%
>=25
95%
65%
23%
98%
96%
83%
>=24
98%
75%
33%
99%
98%
89%
>=23
99%
83%
44%
100%
99%
94%
>=22
99%
90%
58%
100%
100%
96%

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ing­um.

Hægt er að sjá nýj­ustu kosn­inga­spánna, sem er frá því í gær, hér að neð­an. 

Niðurstöður kosningaspárinnar 20. september 2021

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Net­pan­ell ÍSKOS/­Fé­lags­vís­inda­stofn­unnar 23. ágúst – 17. sept­em­ber (16,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. ágúst-12. sept­em­ber (vægi 19,8 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Pró­sent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (20,1 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (23,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 15 – 17. sept­em­ber (vægi 20,3 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Ein­ungis eitt mynstur nær eitt pró­sent lík­um, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Auglýsing

Sú stjórn er þó póli­tískur ómögu­leiki þar sem Sam­fylk­ingin hefur úti­lokað stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk.

Nokkrar fjög­urra flokka stjórnir mögu­legar

Þrjár fjög­urra flokka stjórnir án Sjálf­stæð­is­flokks reikn­ast nú með meiri líkur á mögu­leika en sú þriggja flokka stjórn sem nú situr að völd­um. Lík­urnar á myndun fjög­urra flokka rík­is­stjórnar sem sam­an­stæði af Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki, Vinstri grænum og Pírötum mæl­ast nú 54 pró­sent. Þær mæld­ust 33 pró­sent í ágúst. 

Líkur á fjölda þingsæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þingsæta D V P S B C M J F
>=22
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=21
1%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=20
2%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=19
4%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=18
6%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=17
10%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=16
13%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=15
15%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
0%
>=14
15%
0%
0%
1%
1%
0%
0%
0%
0%
>=13
13%
1%
1%
3%
2%
0%
0%
0%
0%
>=12
10%
3%
3%
5%
4%
1%
0%
0%
0%
>=11
6%
5%
6%
9%
7%
3%
0%
0%
0%
>=10
3%
9%
11%
14%
12%
6%
0%
0%
0%
>=9
1%
14%
16%
17%
16%
12%
0%
1%
0%
>=8
0%
18%
18%
18%
18%
18%
1%
3%
0%
>=7
0%
18%
17%
15%
16%
21%
4%
9%
1%
>=6
0%
14%
13%
10%
12%
18%
9%
15%
4%
>=5
0%
9%
8%
5%
7%
12%
16%
20%
9%
>=4
0%
5%
4%
2%
4%
6%
21%
21%
17%
>=3
0%
2%
1%
1%
1%
2%
14%
11%
14%
>=2
0%
0%
0%
0%
0%
0%
3%
1%
2%
>=1
0%
1%
1%
0%
0%
1%
12%
6%
12%
>=0
0%
1%
0%
0%
0%
0%
20%
13%
41%

Líkur á miðju­stjórn þar sem Við­reisn tæki sæti Vinstri grænna myndi mæl­ast nú 45 pró­sent og lík­urnar á stjórn skipuð þeim flokkum sem stýra málum í Reykja­vík­ur­borg; Sam­fylk­ingu, Vinstri græn­um, Pírötum og Við­reisn, mælist með 43 pró­sent líkur á því að geta orð­ið.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapað mestu í sept­em­ber

Sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins með 21,6 pró­sent fylgi, en flokk­ur­inn hefur samt sem áður tapað fylgi í hverri ein­ungis kosn­inga­spá sem keyrð hefur verið frá byrjun mán­aðar og lækkað alls um 2,7 pró­sentu­stig.

Sam­fylk­ingin mælist næst stærst með 13 pró­sent fylgi og hefur bætt við sig 1,3 pró­sentu­stigi frá því að kosn­inga­bar­áttan hófst af alvöru um síð­ustu mán­aða­mót. 

Auglýsing

Píratar og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru svo með jafn­mikið fylgi, 12,2 pró­sent, og Vinstri græn eru skammt undan með 11,7 pró­sent. Við­reisn mælist með ell­efu pró­sent slétt og Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 7,3 pró­sent. Í neðstu sæt­unum í deild þeirra flokka sem mæl­ast með mögu­leika á að ná inn sitja Mið­flokk­ur­inn með sex pró­sent og Flokkur fólks­ins með 4,7 pró­sent.

Sýnd­ar­kosn­ing­arnar sýna ​​að 41 pró­sent líkur á því að Flokkur fólks­ins komi ekki manni inn á þing, 20 pró­sent líkur á að Mið­flokk­ur­inn nái ekki manni inn en ein­ungis 13 pró­sent líkur á að Sós­í­alista­flokkur Íslands þurfi að bíta í það súra epli.

Til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn næði ekki inn 29 pró­sent í síð­asta mán­uði. Nú mæl­ast mestar lík­ur, alls 21 pró­sent, á því að sá flokkur nái inn fjórum þing­mönnum og 20 pró­sent líkur eru á því að þeir verði fimm.

Hvað er kosn­­inga­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ing­um. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­leg­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Auglýsing

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­um. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta bet­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­un­ar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unn­ar.

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar