Ólympíuleikar fatlaðra að hefjast þrátt fyrir brot á ólympíska vopnahléinu

Þrátt fyrir að Rússland hafi brotið friðarsáttmála Ólympíuleikanna kemur það ekki í veg fyrir setningu Ólympíuleika fatlaðra í Peking í Kína í dag. Það var hins vegar ákveðið á síðustu stundu að Rússneskir keppendur fengju ekki að taka þátt í leikunum.

Hér má líta úkraínsku keppendurna á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í byrjun febrúar áður en ósköpin dundu á.
Hér má líta úkraínsku keppendurna á opnunarhátíð Ólympíuleikanna í byrjun febrúar áður en ósköpin dundu á.
Auglýsing

Ólymp­íu­frið­ur­inn hefur verið hluti Ólymp­íu­leik­anna frá því þeir voru stofn­aðir í Forn-Grikk­landi, þegar þátt­tak­endur þeirra hétu því að halda vopna­hlé á meðan á leik­unum stóð til þess að tryggja öryggi þeirra sem á leik­unum kepptu sem og áhorf­enda.

Ólymp­íu­frið­ur­inn var form­lega tek­inn upp að nýju árið 1992 og kveður á um að vopna­hlé skuli ríkja á meðan á Ólymp­íu­leikum stend­ur, nánar til tekið frá því viku áður en Ólymp­íu­leikar eru settir og þar til vika er liðin frá því að Ólymp­íu­leikum fatl­aðra lýk­ur. Er þetta gert til þess að tryggja að þátt­tak­endur geti ferð­ast til og frá og tekið þátt í Ólymp­l­íu­leik­unum án þess að ótt­ast um öryggi sitt. Ólympíska vopna­hléð var ein­róma sam­þykkt, þar á meðal af Rúss­landi, fyrir Vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna í Pek­ing á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í des­em­ber.

Auglýsing

Ólymp­íu­leikar fatl­aðra verða settir í Pek­ing í Kína í dag, en eins og alkunn­ugt er orðið réðst Rúss­land inn í Úkra­ínu hinn 24. febr­úar síð­ast­lið­inn og braut þar með hið ólympíska vopna­hlé. Hefur því jafn­vel verið velt upp að meðal ástæðna þess að Rússar hafi þó ekki lagt til atlögu enn fyrr hafi verið til þess að styggja ekki banda­menn sína í Kína með því að rjúfa Ólymp­íu­frið­inn á meðan á meg­in­hluta Vetr­ar­ólymp­íu­leik­anna stóð í Pek­ing, en þeim lauk form­lega 20. febr­ú­ar.

Við­snún­ingur á síð­ustu stundu

Framan af var talið að rúss­neskir kepp­endur fengju engu að síður að taka þátt í Ólymp­íu­leikum fatl­aðra, sem hefj­ast eins og áður segir í dag, föstu­dag­inn 4. mars. Alþjóða­ólymp­íu­nefnd fatl­aðra taldi sig ekki hafa ann­arra kosta völ en að leyfa þeim að keppa og til­kynnti það mið­viku­dag­inn 2. mars, en lét loks undan miklum þrýst­ingi frá aþjóða­sam­fé­lag­inu, sem og öðrum keppn­is­þjóðum Ólymp­íu­leik­anna, og til­kynnti í gær, 3. mars, að kepp­endum frá Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi yrði meinuð þátt­taka á Ólymp­íu­leikum fatl­aðra.

Er ákvörðun Alþjóða­ólymp­íu­nefndar fatl­aðra í takt við við­brögð íþrótta­hreyf­ing­ar­innar allr­ar, sem keppst hefur við að for­dæma inn­rás Rúss­lands í Úkra­ínu. Þannig hefur rúss­neskum félags- og lands­liðum verið meinuð þátt­taka af alþjóða­sam­tökum flestra íþrótta, meðal ann­ars knatt­spyrnu, körfu­bolta og frjáls­í­þrótta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar