Rúmlega 60 prósent líkur á því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur haldi meirihluta
Kjarninn birtir líkur flokka á því að koma manni inn á þing og spá um hvaða ríkisstjórnir eru líklegastar. Líkurnar eru fengnar með því að framkvæma 100 þúsund sýndarkosningar.
Líkurnar á því að ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sitji áfram eftir komandi kosningar eru 61 prósent, samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Baldurs Héðinssonar stærðfræðings. Þá eru 40 prósent líkur á því að Flokkur fólksins komi ekki manni inn á þing, 29 prósent líkur á að Sósíalistaflokkur Íslands nái ekki manni inn og 14 prósent líkur á að Miðflokkurinn þurfi að bíta í það súra epli.
Líkurnar eru fengnar með því að framkvæma 100 þúsund sýndarkosningar. Í hverri sýndarkosningu er vegið meðaltal þeirra skoðanakannana sem kosningaspáin nær yfir hverju sinni líklegasta niðurstaðan en sýndarniðurstaðan getur verið hærri eða lægri en þetta meðaltal og hversu mikið byggir á sögulegu fráviki skoðanakannana frá úrslitum kosninga.
Fjöldi þingsæta | DVB | DBM | DV | VPSB | VPSC | DBMF |
---|---|---|---|---|---|---|
>=41 | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=42 | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=41 | 2% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=40 | 3% | 0% | 0% | 1% | 0% | 0% |
>=39 | 6% | 0% | 0% | 1% | 0% | 0% |
>=38 | 10% | 1% | 0% | 2% | 1% | 1% |
>=37 | 15% | 1% | 0% | 4% | 1% | 2% |
>=36 | 22% | 2% | 1% | 7% | 3% | 3% |
>=35 | 30% | 4% | 2% | 11% | 5% | 5% |
>=34 | 40% | 7% | 3% | 17% | 8% | 9% |
>=33 | 51% | 12% | 6% | 25% | 12% | 13% |
>=32 | 61% | 18% | 10% | 33% | 18% | 19% |
>=31 | 71% | 25% | 16% | 43% | 26% | 27% |
>=30 | 80% | 35% | 23% | 54% | 35% | 36% |
>=29 | 80% | 45% | 33% | 64% | 45% | 46% |
>=28 | 86% | 56% | 44% | 73% | 55% | 57% |
>=27 | 91% | 66% | 55% | 81% | 65% | 67% |
>=26 | 95% | 75% | 66% | 87% | 74% | 75% |
>=25 | 97% | 83% | 76% | 92% | 82% | 83% |
>=24 | 99% | 89% | 85% | 95% | 88% | 89% |
>=23 | 99% | 93% | 91% | 97% | 92% | 93% |
>=22 | 100% | 96% | 95% | 98% | 95% | 96% |
>=21 | 100% | 98% | 97% | 99% | 97% | 98% |
>=20 | 100% | 99% | 99% | 100% | 98% | 99% |
Til að fá þá niðurstöðu sem er hér til umfjöllunar er nýjasta kosningaspáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjördæmum út frá fylgi þeirra í síðustu kosningum.
Kjarninn birti niðurstöðu fyrstu kosningarspár sinnar fyrir komandi kosningar fyrir nýliðna helgi. Hægt er að sjá niðurstöðu hennar hér að neðan.
Þær kannanir sem liggja til grundvallar nýjustu kosningaspánni eru eftirfarandi:
- Þjóðarpúls Gallup 30. júlí (vægi 38,4 prósent)
- Skoðanakönnun Prósent í samstarfi við Fréttablaðið 15-23. júlí (vægi 23,9 prósent)
- Skoðanakönnun Maskínu í samstarfi við Fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis 13 – 26. júlí (20,3 prósent)
- Skoðanakönnun MMR í samstarfi við Morgunblaðið 24. júní - 6. júlí (vægi 17,4 prósent)
Sýndarkosningarnarnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa niðurstöðu. Sú sem er líklegust er stjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna, en líkur á henni eru þrjú prósent.
Þá er að óbreyttu nánast útilokað að mynda þriggja flokka stjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokks. Sú sem er líklegust er stjórn Vinstri grænna, Samfylkingar og Pírata, en líkurnar á henni eru þrjú prósent.
Líklegustu fjögurra flokka stjórnirnar sem hægt yrði að mynda án aðkomu Sjálfstæðisflokks eru annars vegar ríkisstjórn Vinstri grænna, Pírata, Samfylkingar og Framsóknarflokksins, en 54 prósent líkur eru á því að slík stjórn geti náð meirihluta á þingi. Hins vegar eru 35 prósent líkur á að hægt verði að mynda ríkisstjórn sem byggir á Reykjavíkurmódelinu svokallaða, þar sem Samfylking, Vinstri græn, Píratar og Viðreisn starfa saman í meirihluta.
Líklegasta stjórnin sem stendur er sú sem nú situr, en líkt og áður sagði eru 61 prósent líkur á að þeir flokkar sem standa að henni geti endurnýjað samstarf sitt miðað við niðurstöðu nýjustu kosningarspárinnar.
Sjálfstæðisflokkur stærstur og allt að níu flokkar ná inn
Samkvæmt kosningaspánni þá er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur allra flokka með 23,6 prósent fylgi, sem er undir kjörfylgi hans í síðustu kosningum. Fylgi flokksins hefur verið nokkuð stöðugt frá því í vor, en hæst fór það í 25,8 prósent í apríl og lægst í 23,4 prósent í byrjun júní.
Fjöldi þingsæta | D | V | P | S | B | C | M | J | F |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
>=22 | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=21 | 4% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=20 | 7% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=19 | 9% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=18 | 12% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=17 | 14% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=16 | 14% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=15 | 12% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=14 | 10% | 1% | 1% | 1% | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=13 | 7% | 3% | 2% | 2% | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=12 | 4% | 5% | 4% | 4% | 3% | 0% | 0% | 0% | 0% |
>=11 | 2% | 9% | 8% | 7% | 6% | 1% | 0% | 0% | 0% |
>=10 | 1% | 13% | 12% | 11% | 10% | 2% | 0% | 0% | 0% |
>=9 | 0% | 16% | 16% | 14% | 14% | 6% | 1% | 0% | 0% |
>=8 | 0% | 17% | 17% | 17% | 16% | 11% | 3% | 1% | 1% |
>=7 | 0% | 14% | 15% | 16% | 16% | 16% | 7% | 4% | 2% |
>=6 | 0% | 10% | 11% | 13% | 14% | 20% | 12% | 8% | 5% |
>=5 | 0% | 6% | 7% | 8% | 10% | 19% | 18% | 14% | 10% |
>=4 | 0% | 3% | 4% | 5% | 6% | 13% | 20% | 19% | 16% |
>=3 | 0% | 1% | 1% | 2% | 2% | 5% | 12% | 13% | 12% |
>=2 | 0% | 0% | 0% | 0% | 1% | 1% | 3% | 2% | 2% |
>=1 | 0% | 0% | 1% | 1% | 1% | 3% | 10% | 11% | 13% |
>=0 | 0% | 0% | 0% | 1% | 0% | 3% | 14% | 29% | 40% |
Vinstri græn yrðu næst stærsti flokkur landsins ef kosið yrði í dag, en 13,1 prósent kjósenda segjast styðja flokkinn. Það er umtalsvert undir því sem Vinstri græn fengu í kosningunum 2017 þegar 16,9 prósent kjósenda kusu flokkinn. Eini stjórnarflokkurinn sem mælist yfir kjörfylgi nú um stundir er Framsóknarflokkurinn sem nýtur stuðnings 11,3 prósent kjósenda. Hann fékk 10,7 prósent í síðustu kosningum.
Sá stjórnarandstöðuflokkur sem flestir hyggjast kjósa samkvæmt kosningaspánni eru Píratar sem mælast með 12,6 prósent fylgi og bæta við sig 3,4 prósentustigum frá síðustu kosningum að óbreyttu. Samfylkingin stendur nánast í stað með 12,4 prósent fylgi, sem er nánast alveg það sama og flokkurinn fékk 2017. Viðreisn mælist með 9,8 prósent fylgi sem er meira en flokkurinn fékk 2017 en minna en hann fékk 2016.
Miðflokkurinn mælist með 6,4 prósent stuðning og Sósíalistaflokkur Íslands, sem hefur nú kynnt þrjá af sex framboðslistum sínum og er að bjóða fram til þings í fyrsta sinn, mælist með 5,7 prósent fylgi. Flokkur fólksins rekur lestina hjá þeim níu flokkum sem mælast með eitthvað handbært fylgi, en 4,5 prósent landsmanna segjast ætla að kjósa þann flokk. Miðað við þessa niðurstöðu er ljóst að flokkarnir á þingi yrðu að minnsta kosti átta og mögulega níu ef kosið yrði nú.
Hvað er kosningaspáin?
Fyrir hverjar kosningar um allan heim birta fjölmiðlar gríðarlegt magn af upplýsingum. Þessar upplýsingar eru oftar en ekki tölfræðilegar, byggðar á skoðanakönnunum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upplifir stjórnmálin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórnmálafræðingar og fjölmiðlar keppast svo við að túlka niðurstöðurnar og veita almenningi enn meiri upplýsingar um stöðuna í heimi stjórnmálanna.
Allar þessar kannanir og allar mögulegar túlkanir á niðurstöðum þeirra kunna að vera ruglandi fyrir hinn almenna neytanda. Einn kannar skoðanir fólks yfir ákveðið tímabil og annar kannar sömu skoðanir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könnunin er nákvæmari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vandinn er að hinn almenni kjósandi hefur ekki forsendur til að meta áreiðanleika hverrar könnunar.
Þar kemur kosningaspáin til sögunnar.
Kosningaspálíkan Baldurs Héðinssonar miðar að því að setja upplýsingarnar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyrirliggjandi skoðanakannanir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosninga. Niðurstöður spálíkansins eru svo birtar hér á Kjarnanum reglulega í aðdraganda kosninga.
Lestu meira:
-
11. janúar 2023Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
-
10. janúar 2023Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
-
10. janúar 2023Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
-
8. janúar 2023Lífeyrissjóðir hafa ekki lánað meira verðtryggt á einum mánuði frá því fyrir faraldur
-
8. janúar 2023Sögulegur en dýrkeyptur kosningasigur þingforsetans
-
7. janúar 2023BDSM-félagið fagnar því að loksins eigi að afnema klámbann
-
7. janúar 2023Litlu fjölmiðlarnir með eldspýturnar
-
7. janúar 2023Með hverjum stendur þú?
-
6. janúar 2023Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta
-
6. janúar 2023Guðrún Hafsteinsdóttir segist taka við dómsmálaráðuneytinu í mars