Stjórnvöld skoða að auka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í nýsköpun

sigmundur_bjarni.jpg
Auglýsing

Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið er með til skoð­unar breyt­ingar á fjár­fest­inga­heim­ildum líf­eyr­is­sjóða lands­ins. Á meðal þess sem verið er að skoða eru auknar heim­ildir sjóð­anna til fjár­fest­inga í nýsköpun til að auka fram­leiðni hag­kerf­is­ins. Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016, sem lagt var fram fyrr í þessum mán­uði, og sagt að aukn­ing slíkra heim­ilda gætu reynst nauð­syn­leg­ar.

Líf­eyr­is­sjóðir hafa haft tak­mark­aða heim­ild til að fjár­festa með beinum hætti í nýsköpun og sprota­starf­semi hér­lend­is. Slíkir fjár­fest­ingu fylgir enda meiri áhætta en hefð­bundnum fjár­fest­ingum sjóð­anna,enda mun fleiri nýsköp­un­ar- og sprota­fyr­ir­tæki sem ná ekki að lifa af en þau sem það gera. Hins vegar gæti verið mik­ill ávinn­ingur fólgin í því að fjár­festa í slíkum fyr­ir­tækjum sem ná árangri og festa sig í sessi.

Auk þess skiptir máli að auka fram­leiðni í íslenska hag­kerf­inu og það er fyrst og síð­ast gert með auknum stuðn­ingi við nýsköp­un. Því skiptir máli að stærstu stofn­ana­fjár­festar á Íslandi, líf­eyr­is­sjóðir lands­manna, geti komið að slíkri fjár­fest­ingu.

Auglýsing

Auka þarf fram­leiðni



Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar segir að til skoð­unar sé að auka heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna til fjár­fest­inga í nýsköp­un. Það sé und­ir­staða auk­innar fram­leiðni í hag­kerf­inu og gæti því reynst nauð­syn­legt. „Ef fram fer sem horfir og hægja fer á fólks­fjölgun verður fram­leiðslu­hlut­fallið óhag­stætt, þ.e. líf­eyr­is­þegar verða fleiri en hópur vinn­andi fólks á sama tíma. Þá falla þau verð­mæti sem standa eiga undir líf­eyr­is­greiðslum því aðeins til, að fram­leiðni hag­kerf­is­ins hafi vaxið á fjár­fest­ing­ar­tím­an­um. Þó að þetta vanda­mál sé gjarnan tengt við gegn­um­streym­is­kerfi, þar sem ótt­ast er að skatt­greiðslur fram­tíð­ar­innar nægi ekki til að standa undir sífellt stækk­andi hópi elli­líf­eyr­is­þega, á sjóð­streym­is­kerfið sem þekk­ist hér á landi einnig við þennan vanda að etja. Þar þurfa fjár­fest­ingar fram­tíð­ar­innar að standa undir þessum stækk­andi hópi.“

Síð­asta sumar var tekið skref í átt að auka þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í fjár­mögn­un­ar­um­hverfi minni fyr­ir­tækja. Fyrir þá breyt­ingu, sem tók gildi 1. júlí 2015, máttu líf­eyr­is­sjóðir fjár­festa allt að 20 pró­sent af hreinni eign sinni í óskráðum bréf­um, þar á meðal á mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga. Nú má fjár­festa allt að 5 pró­sent af hreinni eign á mark­aðs­torgi fjár­mála­gern­inga auk 20 pró­sent í óskráðum bréf­um.

Vilja auð­velda skrán­ingu á First North



Þá er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að móta lög­gjöf sem auð­veldar fyr­ir­tækjum sem eru á síð­ari stigum nýsköp­unar að skrá sig á hluta­bréfa­mark­að­inn First North og sækja sér fjár­magn þar. Skrán­ing á First North er mun ódýr­ari en skrán­ing á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar en kostn­aður við skrán­ingu þar getur samt sem áður verið meiri en minni nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki ráða við, sér­stak­lega vegna kostn­aðar við gerð skrán­ing­ar­lýs­ing­ar. Auk þess mega ein­göngu fjár­mála­fyr­ir­tæki hafa umsjón með töku fjár­mála­gern­inga til við­skipta sem tak­markar sam­keppni á þeim mark­aði. Í nágranna­löndum okkar væri ekki gerð sams konar krafa.

Mun ódýrara er að skrá sig á First North markaðinn en aðalmarkað Kauphallarinnar. Það hentar því minni fyrirtækjum mun betur. Mun ódýr­ara er að skrá sig á First North mark­að­inn en aðal­markað Kaup­hall­ar­inn­ar. Það hentar því minni fyr­ir­tækjum mun bet­ur.

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar segir að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi sent bréf til Kaup­hall­ar­innar 2. júlí síð­ast­lið­inn. Það hafi komið fram að ráðu­neytið teldi rétt að færa umhverfi á verð­bréfa­mark­aði hvað þessi atriði varðar nær því sem þekk­ist ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum og það yrði gert með aðstoð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. „Ráðu­neytið mun horfa til þessa við mótun lög­gjafar á næstu miss­erum“.

Þegar hafa þrír rekstr­ar­að­ilar sjóða lokið fjár­mögnun á sjóðum sem ætl­aðir eru til fjár­fest­inga í nýsköp­un­ar- og fjár­fest­inga­fyr­ir­tækj­um. Alls er heild­ar­um­fang þess fjár sem sjóð­irnir þrír (Frum­tak 2, Eyrir Sprotar og Brunn­ur) ætla að fjár­festa fyrir 11,5 millj­arðar króna. Stærð fjár­fest­inga er á bil­inu 50 til 625 millj­ónir króna.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None