Óperudagar
í Kópavogi er ný óperuhátíð sem verður haldin dagana 1.til 5. júní 2016 í
Kópavogi. Hún er skipulögð af ungu tónlistarfólki í nánu samstarfi við
Kópavogsbæ en markmiðið er að breyta Kópavogsbæ í óperu og leiksvið í nokkra
daga. Gestum og gangandi verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á sem flestum
stöðum þar sem flytjendur og áhorfendur munu eiga í fjörugu samtali við
óperuformið. S taðsetning viðburða verða á ýmsum stöðum, í Salnum, í Leikfélagi
Kópavogs við Funalind, í Smáralind og víðsvegar um bæinn.
Óperudagar í Kópavogi eru unnir í samstarfi við Menningarhúsin í Kópavogi með Örnu Schram í fararbroddi. Kópavogsbær er aðalbakhjarl Óperudaga og hátíðin er styrkt af Lista og menningarsjóði bæjarins. L istrænn stjórnandi Óperudaga er Guja Sandholt og verkefnastjóri er Jóhanna Kristín Jónsdóttir. Hönnun vefsíðu var í höndum Jóns Inga Stefánssonar. Kjarninn ræddi við Guju og Jöhönnu.
Hvernig fara Óperudagar í Kópavogi fram?
„Fjöldi ungs listafólks kemur að hátíðinni sem verður sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og mikil áhersla verður lögð á samfélagslega nánd og þátttöku. F jölmargir viðburðir verða í boði og eru þeir nær allir ókeypis. Aðeins þarf að greiða fyrir aðgang að hádegistónleikum hátíðarinnar. Á hátíðinni verður boðið upp á Óperugöngu og Krakkagöngu þar sem gestir verða leiddir um hjarta Kópavogs og munu ýmsar óvæntar óperulegar uppákomur bíða þeirra. Göngurnar hefjast við Garðskálann, kaffihúsið í Gerðarsafni.
Svo má nefna að ný íslensk Fótboltaópera eftir Helga R. Ingvarsson verður frumflutt og tvær stuttar óperuuppfærslur líta dagsins ljós. Önnur þeirra er Poppea Remixed þar sem ný og gömul tónlist mætast. Sýningin byggir á óperunni Krýning Poppeu eftir ítalska tónkáldið Monteverdi (15671643) en auk þess spilar hollenska poppdúóið Sommerhus eigin lög í bland. Hin er S elshamurinn sem er ný, íslensk sýning eftir Árna Kristjánsson sem verður flutt í Leikfélagi Kópavogs en hann leikstýrir henni jafnframt. Handritið er skrifað í kringum þekktar óperuaríur og klassísk ljóð sem fá nýtt samhengi á sviðinu.
Einnig má nefna Kaffikantötuna eftir J.S.Bach sem fyrirtæki geta pantað í kaffipásur til að brjóta upp daginn fyrir starfsmenn og/eða viðskiptavini. Frekari upplýsingar um hana má nálgast á heimasíðunni.
Fyrir utan skipulagða viðburði munu ýmsar uppákomur eiga sér stað sem munu gleðja gesti og gangandi. Listafólkið heimsækir skóla og hjúkrunarheimili og þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt. Þá verður boðið upp á kammertónleika í heimahúsum og fimm vandaðir hádegistónleikar verða haldnir í Salnum og Leikfélagi Kópavogs og eru gestir hvattir til að tryggja sér miða á þá viðburði."
Hverjir standa á bakvið hátíðina?
„Auk ofangreindra aðila taka um 40 ungir listamenn þátt í hátíðinni Markmiðið er að búa til hátíð með sterkum samfélagslegum undirtóni og um leið skapa ný atvinnutækifæri fyrir söngvara, tónlistarmenn og aðra sem vinna náið með óperusöngvurum og í músíkleikhúsi. Margir söngvaranna starfa nú þegar á sínu sviði erlendis og kynna sig nú til leiks á Íslandi. Má þar til dæmis nefna Aron Axel Cortes, barítón, Magnús Hall Jónsson, tenór, Rannveigu Káradóttur, sópran, Elísabetu Einarsdóttur, sópran, Ragnheiði Lilju Óladóttur, sópran Önnu Völu Ólafsdóttur, alt og Pétur Oddberg Heimisson, bassbarítón. Nokkrir langt komnir söngnemar koma einnig fram sem hyggja á framhaldsnám erlendis er fram líða stundir. Forsprakkar hópsins hafa af þessu tilefni stofnað ný félagasamtök sem nefnast Óperukollektífið PERA en vonir standa til um að þau samtök muni í framtíðinni koma að fleiri metnaðarfullum viðburðum á ýmsum stöðum.
Kópavogsbær er aðalbakhjarl hátíðarinnar en auk hafa nokkur fyrirtæki og stofnanir séð sér fært um að leggja okkur lið. Má þar helst nefna Salinn í Kópavogi, Þýska sendiráðið á Íslandi, Herramenn Rakarastofu, Smáralind, GA Smíðajárn og Svansprent. Von okkar er sú að fleiri fyrirtæki taki við sér í aðdraganda hátíðarinnar og styðji við verkefnið með því að til dæmis að panta tónlistarflutning eða með því að bjóða starfsfólki eða viðskiptavinum á hádegistónleika."
Hverskonar ópera er FótboltaÓperan?
„FótboltaÓperan er glænýtt „popup“ verk eftir Helga R. Ingvarsson sem hægt er að flytja hvar sem er. Hugmyndin að óperunni kviknaði vegna Evrópumótsins í fótbolta og þeim mikla fótboltaáhuga sem ríkir nú í samfélaginu. Verkið er stutt og skemmtilegt þar sem tvö ástríðufull form eru látin mætast. Við sjáum oft útrás sterkra tilfinninga á báðum sviðum, í óperuforminu en einnig meðal áheyrenda sem missa sig yfir spennandi leik. Flutningur er í höndum sex einsöngvara, fimmtán barna úr Skólakór Kársness og slagverksleikara.
Mikill listrænn metnaður einkennir Óperudaga í Kópavogi og má segja að þetta sé tilraun til að færa óperuformið nær almenningi með skemmtilegum og skapandi hætti. Það er von okkar sem stöndum að hátíðinni að um árlegan viðburð verði að ræða og áheyrendur sem alla jafna velja að sækja aðra listviðburði en óperuuppfærslur sjái þarna eitthvað nýtt, lifandi og nærandi í dagsins önn.
Allar nánari upplýsingar um óperudaga í Kópavogi má finna á vefsíðu ÓK, www.operudagar.is og Fésbókarsíðunni Óperudagar í Kópavogi. Söfnun hefur verið sett af stað á Karolina Fund og óskum við eftir fleiri styrktaraðilum til að standa undir þessu viðamikla verkefnisem Óperudagar í Kópavogi eru."