Týndu stelpurnar sem urðu vitni að morði

týndu stelpurnar
Auglýsing

Týndu Stelp­urnar er kvik­mynd eftir Lovísu Láru Hall­dórs­dóttur sem var tekin upp síð­ast­liðið sum­ar. Aðal­per­sónur mynd­ar­innar eru stúlkur á fjórt­ánda ald­ursári sem verða vitni að morði. Þegar þær vin­konur fara að skyggn­ast undir yfir­borðið í kjöl­far þess voveif­lega atburðar verður þeim fljótt ljóst að ekki allt sem sýn­ist. 

Lovísa Lára Hall­dórs­dóttir hefur unnið að mörgum verk­efn­um, til að mynda gerði hún stutt­mynd­irn­ar Smá­st­irni og Hrellir sem báðar hafa verið sýndar á kvik­mynda­há­tíðum um heim allan og unnið til verð­launa. Lovísa er að sögn með mörg járn í eld­in­um, til dæmis er hún að skipu­leggja fyrstu íslensku hryll­ings­mynda­há­tíð­ina, Frost­biter sem verður á Akra­nesi helg­ina 24. – 26. nóv­em­ber. Hún vinnur einnig að því að klára sína fyrstu kvik­mynd í fullri lengd; Týndu Stelp­urnar. Kjarn­inn hitti Lovísu og tók hana tali.

Auglýsing


Hver er sögu­þráður kvik­mynd­ar­innar ‘Týndu stelp­urn­ar’?

„Týndu stelp­urnar fjallar um Láru og Telmu sem hafa verið bestu vin­konur síðan þær voru litl­ar. Þær koma af ólíkum heim­ilum og virð­ast vera algjörar and­stæður en eiga það sam­eig­in­legt að vilja sleppa frá örmum fjöl­skyldna sinna. Til að losna frá leið­in­legum hvers­dags­leik­anum stytta stelp­urnar sér stundir með því að njósna um nágranna sína og búa til sög­ur. Þegar stelp­urnar verða vitni að morði fara þær í að rann­saka málið sjálf­ar. Þær vita þó ekki að sú ákvörðun mun ekki aðeins reyna á vin­áttu þeirra heldur einnig stefna lífi þeirra í hætt­u. 



Týndu Stelp­urnar er bíó­mynd sem fjallar um for­vitni, æsku og vin­áttu. Myndin er tekin upp í þannig stíl að allt myndefni er tekið upp af per­són­unum í mynd­inni, og er því frá­brugðin öllu sem hefur áður komið í íslenskt bíó. Myndin er spenn­u/drama en þó með mik­inn húmor og hjarta.“

Að hvaða ald­urs­hópi er kvik­myndin mið­uð?

„Kvik­myndin Týndu stelp­urnar er ekki miðuð að neinum sér­stökum ald­urs­hópi, þó myndin fjalli um tvær ungar stelpu er tek­ist á við mjög alvar­leg mál­efni þannig að hún ein­skor­ast ekki bara við yngra fólk.“

Hvernig gengur fyrir unga lista­menn að fjár­magna íslenskar kvik­myndir í dag?

„Fyrir nýtt kvik­mynda­gerða­fólk er frekar erfitt að fá fjár­magn fyrir íslenskar kvik­myndir því þarf maður að hugsa svo­lítið út fyrir rammann, til dæmis með því að not­ast við hóp­fjár­mögn­un­ar­síður á borð við Karolina­fund.com. Á þeirri síðu er einmitt hægt að styrkja kvik­mynd­ina Týndu Stelp­urnar þar sem enn á eftir að fjár­magna eft­ir­vinnsl­una á henn­i.“





Hægt er að styrkja kvik­mynd­ina Týndu Stelp­urn­ar hér.



Hægt er að nálg­ast upp­lýs­ingar um fyrstu íslensku hryll­ings­mynda­há­tíð­ina, ­Frost­biter, hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk
None