Karolina Fund: Solar Plexus Pressure Belt™

Solar Plexus Pressure Belt er kvíðastillandi tæknibúnaður hannaður af myndlistarmanninum Sæmundi Þór Helgasyni í samstarfi við tískuhönnuðinn Agötu Mickiewicz.

9. Saemundur Thor Helgason, Solar Plexus Pressure Belt™ 2018.jpg
Auglýsing

Fjár­hags­legt óör­yggi getur valdið gremju og áhyggjum sem hafa áhrif á tauga­kerf­ið. Sólar plexus er þétt þyrp­ing tauga­fruma umlukin stuðn­ingsvef og stað­sett á bak við mag­ann, á celiac slag­æð­inni rétt fyrir neðan þind­ina. Þetta svæði sem er einnig nefnt sem celiac plexus á í mik­il­vægum tengslum við heil­ann. Solar Plexus Pressure Belt™ örvar sólar plex­us­inn með djúp­þrýst­ings­tækni (Deep Touch Pressure) og róar þannig kvíð­inn huga án lyfja­með­ferð­ar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Inn­blást­ur­inn að Solar Plexus Pressure Belt™ kemur frá minni eigin reynslu af streitu og tíðum kvíða­köstum sem ég upp­lifði í kjöl­far alþjóð­legu fjár­málakrepp­unnar 2008. Ára­tug seinna er „kreppu­á­stand­ið“ orðið eðli­legur partur af dag­legu lífi fólks. Tíma­bundin og óör­ugg atvinna, sem var áður talin óæski­leg, er nú orðin óað­skilj­an­legur hluti af virkni og inn­byggðri rök­vísi efna­hags­lífs­ins. Þessar skipu­lags­breyt­ingar hafa bein áhrif á lík­ama fólks og tauga­kerfi þess. Solar Plexus Pressure Belt™ líkir eftir fingri sem þrýstir á sólar plexus svæð­ið, með­ferð­ar­úr­ræði sem ég upp­götv­aði að gæti dregið úr streitu og kvíða. Í kjöl­far upp­götv­un­ar­innar hóf ég rann­sóknir á und­ir­liggj­andi tauga­fræði­legum ferlum og legg nú til nýja vöru, Solar Plexus Pressure Belt™. Beltið er hannað til þess að draga tíma­bundið úr óþæg­indum þar til þróað hefur verið nýtt efna­hags­legt kerfi sem veitir öllum íbúum fjár­hags­legt örygg­i.“

Auglýsing

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Verk­efnið er fram­leitt að Félagi borg­ara sem er hags­muna­sam­tök borg­ara og þrýsti­hópur um borg­ara­laun á íslandi. Félagið stofn­aði ég ásamt góðum vinum í októ­ber 2017 í þeim til­gangi að fjár­magna- og fram­leiða verk­efni sem geta stuðlað að vit­und­ar­vakn­ingu à fjár­hags­legu- og menn­ing­ar­legu gildi þeirra vinnu sem fellur utan við­ur­kenndra starfs­greina á borð við tón­smíði, mynd­list, skrif, rann­sókn­ar­störf, verka­hring heima­vinn­andi fólks, hús­mæðra- og feðra, atvinnu­lausra og þeirra ein­stak­linga sem hafa almennt skerta getu til atvinnu. Rekstr­ar­af­gangi af starf­semi félags­ins rennur til BIEN, (Basic Income Earth Network), hnatt­rænu borg­ara­launa­neti sem berst fyrir skil­yrð­is­lausri grunn­fram­færslu allra jarð­ar­búa. Með hjálp Karol­ina Fund viljum við fjár­magna fram­leiðslu á BETA útgáfu af Solar Plexus Pressure Belt™ í tak­mörk­uðu upp­lagi til próf­unar og frek­ari þró­un­ar.Kvíðastillandi beltið.

Þau sem heita á verk­efnið með €30 fá Fruit of the Loom stutt­erma­bol með Solar Plexus Pressure Belt™ merki sem var hannað af Gabríel Mark­an.

Þau sem styrkja verk­efnið um €250 eða meira, fá tak­mark­aða BETA útgáfu af belt­inu ásamt gegn­sæjum búk úr plexí­gleri sem hægt er að hengja beltið á. Þegar beltið er ekki í notkun má líta á það sem lista­verk í tak­mörk­uðu 50 ein­taka upp­lagi þar sem hvert belti er núm­erað og árit­að.

Þau sem heita á verk­efn­ið, styrkja einnig þau góðu störf og mál­stað sem Félag Borg­ara stendur fyrir þ.e.a.s. skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu allra sam­fé­lags­þegna.“

Eitt­hvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

„Neðst á Karol­ina Fund söfn­un­ar­síð­unni má einnig lesa stutta rit­gerð eftir Sophie Hoyle sem fjallar um tengsl geð­heilsu og kapital­isma, þar sem geð­kvillar eru ekki endi­lega ein­stak­lings­bundn­ir, heldur háðir unt­an­að­kom­andi öflum á borð við langvar­andi fjár­hags­legt óör­ygg­i.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið á Karol­ina Fund.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk