„Á meðan ...“ er myndlistarbók með málverkum Jóns Magnússonar og orðum skáldsins Diddu Jónsdóttur. Málverkin eru gerð eftir fréttamyndum frá stríðshrjáðum löndum. „Að gera undirbúningsvinnuna fyrir þetta verkefni var þungbært en hugmyndin mikilvæg og ég var staðráðinn í að klára verkefnið fyrir börnin. Eftir að hafa skoðað þúsundir ljósmynda urðu 25 fyrir valinu og málverk eftir þeim fara í bókina,“ segir Jón. „Texti Diddu er hrópandi andhverfa þeirra enda hversdagsleiki okkar stundum innantómt hjóm.“
Jón er með BFA Bachelor-gráðu í málverki frá Parsons School of Design París frá árinu 1995 og diploma í nútíma málaralist frá Myndlistarskóla Reykjavíkur frá 2018. Hann hefur haldið einkasýningar og sýnt á samsýningum.
Söfnun fyrir prentun á myndlistarbókinni „Á meðan ...“ er til styrktar starfi Unicef í Úkraínu en hægt er að styðja verkefnið á Karolina Fund.
Hvernig kviknaði hugmyndin?
„Hugmyndin kviknaði þegar ég sá fréttaljósmynd af látnu barni flóttamanna á strönd Grikklands. Ljósmyndin var í öllum fréttum og mér ofbauð. Ég sá rautt og hugsaði með mér: „Hvað get ég gert til að hjálpa?“ Þetta var fyrir 4 árum. Þá ákvað ég að gera bók til styrktar Unicef og málverkin ættu að vera eftir fréttamyndum af börnum frá stríðshrjáðum löndum.
Ég byrjaði á að gúggla „wounded child in Syria“ og það sem birtist mér var ólýsanlega hræðilegt, engar hryllingsmyndir komast nálægt því að birta þann ömurlega raunveruleika sem börn í stríðshrjáðum löndum lifa við,“ segir hann.
Jón segir að það hafi verið þungbært að gera undirbúningsvinnuna fyrir verkefnið. „Ég hef sjálfur barist við andlega áþján en það fölnar miðað við það sem þessi börn hafa gengið í gegnum. Börn eiga fyrst og fremst að leika sér og hlæja, ekki þjást og gráta. Þegar ég byrjaði að mála sá ég að óhugnaðurinn síaðist enn í gegnum málverkin þó mikill munur sé á ljósmynd og málverki. Hvað gat ég gert til að reyna að hugga þau?
Ég ákvað að setja fugla, dýr og leikföng inn á verkin og einhvern veginn settu þau fílter á hörmungarnar og gerðu áhorf mögulegt. Bergsteinn Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Unicef veitti mér aðgang að myndabanka Unicef og eru nokkrar myndir þaðan. Eftir að hafa skoðað þúsundir ljósmynda urðu 25 fyrir valinu og málverk eftir þeim fara í bókina,“ segir hann.