194 í sóttkví og 17 í einangrun

Ekkert innanlandssmit af kórónuveirunni greindist í gær. Tæplega 200 manns eru nú í sóttkví vegna nokkurra smita sem staðfest hafa verið síðustu daga.

Mikill fjöldi sýna hefur verið tekinn innlands síðustu sólarhringa.
Mikill fjöldi sýna hefur verið tekinn innlands síðustu sólarhringa.
Auglýsing

Eng­inn greind­ist með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær eftir að fimm höfðu greinst dag­ana á und­an. Tvö virk smit greindust í landamæra­skimunum gær­dags­ins, annað í fyrri skimun en hitt úr þeirri síð­ari.

194 eru í sótt­kví vegna þeirra smita sem greinst hafa síð­ustu daga. Sautján eru með COVID-19 í ein­angr­un. Mik­ill fjöldi sýna hefur verið tek­inn inn­an­lands síð­ustu daga. Í gær voru tekin 785 svokölluð ein­kenna sýni og tæp­lega 1.600 slík voru tekin dag­inn áður.

Auglýsing

Á þriðja tug manna, sem not­uðu tækja­sal World Class í Laug­um, eftir að í ljós kom að sýktur ein­stak­lingur hafði verið innan þess sótt­varna­h­ólfs. Mest mega 50 manns vera í sama sótt­varn­ar­hólfi í einu og not­endur þurfa að skrá sig.

Þá fóru einnig um þrjá­tíu starfs­menn Hag­kaups í Garðabæ í sótt­kví eftir að í ljós kom að starfs­maður sem vann við áfyll­ingu að næt­ur­lagi um helg­ina reynd­ist smit­aður af veirunni.

Að minnsta kosti hluti þeirra smita sem greinst hafa síð­ustu daga má rekja til far­þega sem kom til lands­ins 26. febr­ú­ar. Hann fram­vís­aði nei­kvæðu COVID-­prófi við kom­una til lands­ins og reynd­ist einnig nei­kvæður í fyrri landamæra­skim­un. En í þeirri síð­ari, um fimm dögum síð­ar, fór hann í seinni skimun og greind­ist þá jákvæður og sýktur af hinu breska afbrigði veirunnar sem er meira smit­andi en önnur afbrigði.

Um helg­ina greindust þrír með veiruna inn­an­lands, einn á föstu­dag og tveir á laug­ar­dag. Að minnsta kosti tveir þess­ara þriggja ein­stak­linga voru sýktir af breska afbrigð­inu og bjuggu í sama fjöl­býl­is­húsi og sá sem kom til lands­ins 26. febr­ú­ar. Ekki er talið að fólkið hafi átt í nánum sam­skiptum þannig að grunur bein­ist að því að nágrann­arnir hafi smit­ast í stiga­gang­inum og þá af hand­riði eða öðrum sam­eig­in­legum snertifleti.

Gestir á tón­leikum í Hörpu á föstu­dags­kvöld, sem sýktur ein­stak­lingur sótti, voru meðal þeirra sem boð­aðir voru í skim­un. Þeim hefur verið boðið að mæta í aðra skimun síðar í vik­unni en þekkt er að veiran grein­ist ekki á PCR-­prófi fyrr en nokkrum dögum eftir smit.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent