Olía heldur áfram að lækka - Tæplega tvö prósent lækkun í dag

bensin_olia_eldsneyti-2.jpg
Auglýsing

Heims­mark­aðs­verð á hrá­olíu hefur lækkað um 1,8 pró­sent í dag og er tunnan nú verð­lögð á 44,4 Banda­ríkja­dali. Sam­kvæmt umfjöllun Wall Street Journal er líkur taldar á því að verð á olíu geti jafn­vel haldið áfram að lækka á næst­unni, ekki síst vegna þess að banni við inn­flutn­ingi á olíu frá Íran til Banda­ríkj­anna verður brátt að öllu leyti afnumið. Lík­legt þykir að það geti aukið enn á offram­boð af olíu, sem síðan getur þrýst verði enn meira niður á við. 

Vandi er þó um gang mála á þessum mörk­uðum að spá, og óvissa um fram­tíð­ar­horfur við­var­andi. Flestar spár gera ráð fyrir að olía muni ekki hækka mikið á næstu tólf mán­uðum og er það meðal ann­ars rakið til mik­ils fram­boðs, og minnk­andi eft­ir­spurnar miðað við það sem áður var talið í stórum hag­kerf­um, meðal ann­ars í Kína. Grein­endur hjá Gold­man Sachs bank­anum spá því að verðið geti farið niður í allt að 20 Banda­ríkja­dali, en til sam­an­burðar má nefna að fyrir rúm­lega ári var verðið 110 Banda­ríkja­dal­ir.

Auglýsing


Lækkun olíu­verðs­ins á und­an­förnu ári hefur komið illa við mörg ríki sem byggja efna­hag sinn á olíu­við­skipt­um, meðal ann­ars Rúss­land, Noreg og Bras­il­íu. 

Lækk­unin kemur sér hins vegar vel fyrir neyt­endur hér á landi, sem borga minna fyrir olí­u­na, og þá hefur lækk­unin haldið aftur af verð­bólgu að mati Seðla­banka Íslands. Bens­ín­lítr­inn hefur lækkað um tæp­lega 55 krónur á und­an­förnum 15 mán­uðum. Í júlí í fyrra kost­aði lítr­inn 251,5 krónur en um þessar mundir er verðið lægst í kringum 195 krón­ur. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None