Gestum íslenskra safna fjölgaði um rúmlega eina íslenska þjóð i fyrra

Ferðamenn
Auglýsing

Gestum íslenskra safna, og skyldrar starf­semi, fjölg­aði um ríf­lega 400 þús­und í fyrra. Gesta­fjöldin var alls um 2,1 milljón á árinu sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni ver­ið. Þetta kemur fram í nýrri frétt frá­ Hag­stofu Íslands.

Þar segir að gestum safna og skyldrar starf­semi hafi fjölg­að á hverju ári frá síð­ustu ald­ar­mótum eftir að hafa staðið í stað á seinni hluta ­síð­asta ára­tugar 20. ald­ar. Rúm­lega 60 pró­sent gest­anna sem heim­sótti söfn á síð­asta ári heim­sóttu slík á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða alls 1,3 millj­ónir manns. 

Næst­flest­ir, um 250 þús­und manns, heim­sóttu söfn og skylda starf­semi á Suð­ur­landi og um 150 þús­und á Vest­fjörð­um. Aðrir lands­hlutar voru með færri gesti.

Auglýsing

Flestir heim­sóttu sögu­söfn og –sýn­ing­ar, eða sex af hverjum tíu. Tveir af hverjum tíu gestum heim­sótti lista­söfn eða sýn­ing­ar.Af vef Hagstofu Íslands.

Tölur Hag­stof­unnar um starf­semi safna og ­skyldrar starf­semi taka til safna, setra, safn­vísa, fiska­safna, dýra­garða og grasa­garða, sem og skyldra sýn­inga opnum almenn­ingi sem veita upp­lýs­ingar um ár­legan fjölda gesta.

Helst ekki í hendur við aukin fjölda ferða­manna

Hin mikla aukn­ing á aðsókn á söfn á sér­ eðli­lega stoð í stór­auknum fjölda ferða­manna. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2015 komu til að mynda 1,1 milljón ferða­manna til Íslands, eða fleiri en komu hing­að allt árið 2014. Miðað við spár má ætla að ferða­menn verði um milljón fleiri í ár en þeir voru á ald­ar­mót­ar­ár­inu 2000, eða rúm­lega fjórum sinnum fleiri.

Árið 2000 voru íslenskir safna­gestir 918 þús­und tals­ins, eða um 43 pró­sent af því sem þeir voru í fyrra. Af þeim tölum má sjá að aukn­ing á fjölda safna­gesta helst ekki alfarið í hendur á auknum fjölda ­ferða­manna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None