Síminn og Vodafone selja staka leiki í Meistardeildinni og enska boltanum

diegocosta-e1410703050578.jpg
Auglýsing

Sím­inn og Voda­fone munu í næstu viku opna fyrir svo­kallað Pay-Per-View af knatt­spyrnu­leikjum sem sýndir eru á sjón­varps­stöðum 365 í Sjón­varpi Sím­ans og Voda­fo­ne. Sjón­varpi Fyrsti við­burð­ur­inn verður Meist­ara­deild Evr­ópu í knatt­spyrnu. Hjá Sím­anum verður strax í kjöl­farið hægt að kaupa staka leiki í enska bolt­anum á þennan hátt. Frá­ þessu var greint á bloggi Sím­ans í gær og á bloggi Voda­fo­ne.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans er um sam­starf milli Sím­ans og Voda­fone og 365 að ræða. Fyr­ir­tækin munu kaupa þá leiki sem þau munu sýna í heild­sölu og í boð­i verða þrjú mis­mun­andi verð. Allir leikir í enska bolt­anum verða aðgengi­legir með­ þessum hætti í Sjón­varpi Sím­ans.

Auglýsing

Tók­ust á um sýn­inga­rétt­inn á Enska bolt­anum

Í síð­ustu viku var greint frá því að 365 hefði náð samn­ingum við ensku úrvalds­deild­ina um að sýna áfram frá enska bolt­anum á spor­trásum sínum. Nýi samn­ing­ur­inn tekur gild­i næsta sumar og gildir í þrjú ár. Ekki hefur verið upp­lýst hvað 365 greiddi fyrir nýja samn­ing­inn. Sím­inn bauð einnig í sjón­varps­rétt­inn.

Sam­kvæmt ­upp­lýs­ingum Kjarn­ans verður ekki sýnt frá jafn mörgum leikjum í ensku úr­valds­deild­inni hér­lendis á næstu tíma­bilum og hefur verið gert á und­an­förn­um ár­um. Nú er sýnt frá 380 leikjum á ári en þeim verður fækkað í 200. Ekki verð­ur­ ­sýnt beint frá öllum leikjum sem leiknir eru síð­degis á laug­ar­dögum held­ur verður einn val­inn leikur sýnd­ur. Aðrir leikir verða sýndir í óbeinni dag­skrá ­síðar um dag­inn. Auk þess munu enskir þulir ekki lengur fylgja með leikjum líkt og hefur verið til þessa.

365 stór við­skipta­vinur hjá Sím­anum

Þrátt fyrir að Sím­inn og 365 eigi í sam­keppni víða þá eiga þau einnig í ýmis konar sam­starfi. Sjón­varps­þjón­usta 365 er t.d. útveguð í gegnum kerfi Sím­ans og Sím­inn dreifir einnig sjón­varps­stöðv­um 365 ásamt Voda­fo­ne. Þá er GSM-­þjón­usta 365 á dreifi­kerfi Sím­ans.

365 er því einn af ­stærstu við­skipta­vinum Sím­ans sam­hliða því að vera einn helsti keppi­naut­ur ­fyr­ir­tæk­is­ins á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði.

Sím­inn hefur verið virk­ur þátt­tak­andi á fjöl­miðla­mark­aði frá því að fyr­ir­tækið fékk að sam­einast dótt­ur­fyr­ir­tæk­inu Skjá­Einum fyrr á þessu ári. Síðan þá hefur línu­leg ­sjón­varps­dag­skrá Skjá­sEins verið opnuð og tölu­vert verið fjár­fest í henni, með­al­ ann­ars í þætt­inum The Voice Ísland og með kaupum á sýn­ing­ar­rétt­inum á Evr­ópu­keppn­inn­i í knatt­spyrnu, sem fram fer í Frakk­landi næsta sumar.

Munu sýna frá tón­leikum Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar

Í bloggi Sím­ans í gær kom fram að það verða ekki bara íþrótta­við­burðir sem sýndir verða í Pay Per View í Sjón­varpi Sím­ans. Til stendur að selja aðgang að ein­stökum við­burð­u­m S­in­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands í Eld­borg­ar­sal Hörpu til við­skipta­vina um allt land. 

En ­fjörið og nýj­ung­arnar stoppa ekki þar því einnig eru hafnar til­rauna­út­send­ing­ar ­með næstu kyn­slóð háskerpu­sjón­varps, svo­kallað UHD (Ultra HD) sem margir þekkja ­sem 4K. Þessar til­raunar lofa mjög góðu og munum við bjóða lok­uðum hópi við­skipta­vina að koma inn í til­rauna­út­send­ing­arnar innan nokkura mán­aða. Efn­i ­sem aðgengi­legt er í 4K upp­lausn er alltaf að aukast ásamt því að sjón­varps­tæki ­sem styðja 4K eru orðin algeng­ari á heim­ilum lands­manna og því tíma­bært að ­stíga þetta skref nú.Og að lokum munum við strax eftir helg­ina hefja opn­ar ­próf­anir fyrir við­skipta­vini okkar á nýrri útgáfu af Sjón­varp Sím­ans app­inu sem ­virkar á tölv­um, bæði Windows og OS X en hingað til hefur appið aðeins ver­ið ­fá­an­legt fyrir snjall­síma og spjald­tölvur með Android og iOS stýri­kerf­i,“ seg­ir í blogg­inu.

Í bloggi Voda­fone segir að þjón­ustan sé sam­starfs­verk­efni Voda­fone og 365 og að stefnt sé að því að bjóða enn fleiri við­burði með þessu sniði á næst­unni. Þá sé ýmis­legt annað í þróun hjá Voda­fone Sjón­varpi. Til að mynda hafa próf­anir haf­ist á 4K ofur­há­skerpu­út­send­ingum og hafa þær farið vel af stað. Slíkar útsend­ingar eru tals­vert gagna­frek­ari en hefð­bundnar háskerpu­út­send­ingar og því henta ljós­leið­ara­teng­ingar Voda­fone sér­stak­lega vel fyrir slíka þjón­ust­u."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None