Tryggvi Gunnarsson var endurkjörinn í embætti umboðsmanns Alþingis á þingfundi á laugardag. Tryggvi hefur gengt starfinu frá því í nóvember 1998 en skipanatími hans átti að renna út um næstu áramót. Hann hefur nú verið kjörinn í starfið til 31. desember 2019.
Tryggvi var einn þeirra þriggja einstaklinga sem skipuðu rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið sem skilaði skýrslu sinni í apríl 2010.
Mikið mætt á umboðsmanni á árinu
Umboðsmaður Alþingis hefur verið töluvert í sviðsljósinu á þessu ári. Í janúar birti hann niðurstöðu frumkvæðisathugunar sinnar á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Stefáns Eiríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, vegna rannsóknar lekamálsins svokallaða. Þar segir hann að ráðherrann, sem þá hafði þegar sagt af sér embættið, hafi gengið langt út fyrir valdsvið sitt í málinu. Hún hafi haft ítrekuð og mikil afskipti af rannsókn lekamálsins, sem snérist um leka þáverandi aðstoðarmanns hennar, Gísla Freys Valdórssonar, á upplýsingum um um hælisleitendur til valinna fjölmiðla. Gísli Freyr hlaut átta mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir lekann í nóvember 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér embætti innanríkisráðherra vegna lekamálsins seint á árinu 2014. Hún baðst afsökunnar á framgöngu sinni í málinu.
Í apríl birti umboðsmaður álit í tilefni af kvörtun starfsmanna Fiskistofu til embættisins vegna ákvörðunar Sigurðar Inga Jóhanssonar sjávarútvegsráðherra um að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu til Akureyrar. Í áliti umboðsmanns segir að yfirlýsingar og bréf Sigurðar Inga til starfsmanna Fiskistofu vegna flutningsins hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.
Hörð gagnrýni á Seðlabankann
Í byrjun sendi umboðsmaður Alþingis svo bréf til Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, bankaráði Seðlabanka Íslands, Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna athugunar sem hann hafði unnið á síðustu árum vegna atriða tengdum athugunum og rannsóknum Seðlabanka Íslands vegna gruns um brot á reglum um gjaldeyrishöft. Í bréfi hans kemur m.a. fram að Seðlabanki Íslands hafði ekki skýra lagaheimild til að flytja verkefni við umsýslu og sölu eigna til einkahlutafélags í eigu bankans. Umrætt einkahlutafélag, Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ), hefur fengið til sín allar þær eignir og kröfur sem Seðlabankanum hefur áskotnast vegna hrunsins. Um er að ræða eignir, meðal annars hlutir í fyrirtækjum og fasteignir, og kröfur upp á hundruði milljarða króna. ESÍ hefur á undanförnum árum selt margar þeirra eigna sem félaginu áskotnaðist. Í bréfinu gagnrýnir umboðsmaður einnig framkvæmd gjaldeyrisreglna seðlabankans.
Bankaráð Seðlabanka Íslands ákvað á grundvelli þeirrar niðurstöður að láta gera athugun á þessum málum. Seðlabankinn svaraði gagnrýni Tryggva með greinargerð sem var birt í dag. Þar segist yfirstjórnin ekki geta séð hvernig bankinn geti komið til móts við athugasemdir umboðsmanns Alþingis um meðferð gjaldeyrismála og segir tilvik og athugasemdir sem umboðsmaður gerði athugasemdir við séu „víða óljós“. Yfirstjórn bankans hafnar því einnig að hafa brotið gegn lögmætisreglu með stofnun eignarhaldsfélagsins ESÍ.
Ekki aukaframlag til frumkvæðisrannsókna
Kjarninn greindi frá því 10. desember að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis teldi það grundvallaratriði að umboðsmanni Alþingis verði gert kleift að starfa faglega og að embættið fái nægilegt fjármagn til að sinna lögbundnum verkefnum sínum með þeim hætti sem hann telur fullnægjandi. Allir nefndarmenn, sem koma úr öllum flokkum sem sæti eiga á Alþingi, skrifuðu undir álitið. Líka þeir sem tilheyra stjórnarflokkunum tveimur. Þrátt fyrir þann einhug náðist ekki samstaða um það í fjárlaganefnd að auka framlög til umboðsmanns um þessar 15 milljónir króna. Hins vegar var fallið frá 13 milljóna króna niðurskurði á framlagi til embættisins.