Nýju Tarantino-myndinni lekið á netið áður en hún er frumsýnd

Hateful eight
Auglýsing

Nýjasta stór­mynd leik­stjór­ans Quentin Tar­antino, The Hateful Eight, verður frum­sýnd í kvik­mynda­húsum í Banda­ríkj­unum á morg­un, föstu­dag. ­Þrátt fyrir það er þegar búið að leka mynd­inni í góðum gæðum á inter­netið og hægt er að horfa á hana eða nið­ur­hala á flestum ólög­legum streymi- eða ­nið­ur­hals­síðum netheima.

Það er vert að velta fyrir sér hvernig það getur gerst að kvik­mynd­ir ­leka áður en þær eru einu sinni frum­sýnd­ar? Hvaðan kemur ein­takið af mynd­inni sem hlaðið er upp á net­ið? Svarið er ein­falt: það er verð­launa­há­tíð­ar­tíð.

Auglýsing



Í aðdrag­anda stærstu verð­launa­há­tíða kvik­mynda­heims­ins (BAFTA, Golden Globe og auð­vitað Ósk­ars­ins) þá senda kvik­mynda­verin þær mynd­ir ­sem þau telja lík­leg­ust til afreka til fjölda aðila sem hafa áhrif á val á til­nefn­ingum til ofan­greindra verð­launa. Á und­an­förnum árum hafa þess­ar út­send­ingar án und­an­tekn­inga leitt til þess að allar helstu kvik­mynd­ir und­an­far­ins árs, og jafn­vel myndir sem enn á eftir að frum­sýna, verða ­skyndi­lega aðgengi­legar á net­inu í góðum gæð­um.  

Á síðu Business Insider er greint frá því að The Hateful Eight hafi fyrst verið deilt á net­inu af hóp sem kallar sig Hive-CM8, en seg­ir að The Hollywood Reporter telji sig hafa borið kennsl á þann sem átti ein­tak­ið ­sem lak. Sá er for­stjóri kvik­mynda­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins Alcon Enterta­in­ment, og heitir Andrew Kosove.

Sam­kvæmt frá­sögn Business Insider liggur ekk­ert fyrir hvort ­Kosove sé ábyrgur fyrir lek­anum né að hann hafi í raun gert nokkuð rang­t. Raunar er talið að hann sé sak­laust fórn­ar­lamb í mál­inu. Hann sagði við Hollywood Reporter að hann hefði aldrei séð diskinn með mynd­inni og aldrei ­fengið hann í hend­ur. Kosove sagði að fyr­ir­tæki sitt ætl­aði ekki bara að vinna ­náið með banda­rísku alrík­is­lög­regl­unni (FBI) við rann­sókn máls­ins, heldur að fram­kvæma sína eigin inn­an­hús­rann­sókn lík­a. 

Rann­sókn FBI bein­ist að því að ein­hver hafi kom­ist yfir ein­tak af DVD-diski með mynd Tar­antino sem ætluð var Kosove áður en hún skil­aði sér á áfanga­stað. Hvort sá sem hafi stolið henni sé ­starfs­maður Alcon, dreif­ing­ar­að­ila mynd­ar­innar The Wein­stein Company eða bara ein­hver allt annar liggur enn ekki fyr­ir. Ljóst er þó að skað­inn er skeður og fjár­hags­legt tjón fram­leið­enda mynd­ar­innar verður gríð­ar­legt.

Það var í raun ekki flókið ferli að rekja hvaða ein­taki hefði verið lek­ið. Þegar ein­tök af kvik­myndum sem von­ast er til að hljóti náð ­fyrir val­nefndum stærstu verð­launa­há­tíð­anna þá er hvert ein­tak merkt með­ ­sér­stöku vatns­merki. Þannig er sam­stundis hægt að átta sig á hvaða ein­taki var ­lek­ið. Hóp­arnir sem stunda það að stela kvik­myndum sem þessum eru hins veg­ar orðnir nokkuð sjó­aðir í að fjar­lægja þessi vatns­merki. Í þessu til­felli hef­ur þeim ekki tek­ist að gera það nægj­an­lega vel.

Yfir­vof­andi rann­sókn FBI virð­ist ekki ætla að hræða Hive-CM8 frá því að halda ótrauður áfram starf­semi sinni. Hóp­ur­inn seg­ist vera með und­ir­ höndum um 40 myndir sem hann eigi eftir að leka út á net­ið. Fyrst verði þær ­myndir sem mest eft­ir­vænt­ing hefur verið eft­ir, eins og The Hateful Eight, ­lekið út og svo verði hinum mjatlað út.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None