Bankasýslan segir rétt að hefja söluferli á hlut í Landsbankanum

Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins telur að þau skil­yrði sem stofn­unin setur fyrir því að hefja sölu­ferli á eign­ar­hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum séu til stað­ar. Hún hefur sent frá sér stöðu­skýrslu um sölu­ferlið og mun í kjöl­farið óska eftir yfir­lýs­ingum um áhuga af hálfu aðila sem vilja starfa með stofn­un­inni sem ráð­gjafar í fyr­ir­hug­uðu sölu­ferli. Ef Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tekur ákvörðun um að hefja sölu­ferlið vorið 2016 býst Banka­sýslan við því að hægt verði að ljúka sölu á allt að 28,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á síð­ari hluta árs­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Banka­sýsl­unni.

Hægt er að lesa stöðu­skýrsl­una hér.

Banka­sýslan hefur sett sér fjögur efna­hags­leg við­mið um hvenær sé rétt að hefja sölu­ferli á eign­ar­hlutum rík­is­ins. Þau eru:

Auglýsing

  • Að íslenskt efna­hags­líf hafi styrkst og náð stöð­ug­leika.

  • Að virð­is­mat á fjár­mála­fyr­ir­tækjum sé ásætt­an­legt.

  • Að fjár­festar hafi áhuga og bol­magn á fjár­fest­ingu í eign­ar­hlut.

  • Að rekst­ur, afkoma, fjár­hags­skipan og stjórn­ar­hættir við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækis bendi til þess að fjár­mála­fyr­ir­tækið geti talist álit­legur fjár­fest­ing­ar­kost­ur.

Banka­sýslan verður ekki lögð niður

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í vik­unn­i að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði ekki uppi áform að svo komnu máli að leggja frum­varp um nið­ur­lagn­ingu Banka­sýslu rík­is­ins fram að nýju. Bjarni lagði frum­varp sem fól slíka nið­ur­lagn­ingu í sér 1. apríl 2015 og sam­kvæmt frum­varpi til fjár­laga þessa árs sem lagt var fram í sept­em­ber í fyrra var ekki gert ráð fyrir neinum fjár­munum í rekstur Banka­sýsl­unn­ar. 

Þegar fjár­lög voru afgreidd í des­em­ber var hins vegar búið að þre­falda þá upp­hæð stofnun fær á í ár frá því sem rann til hennar úr rík­is­sjóði árið 2015. Í stað þess að loka Banka­sýsl­unni verður hún ein áhrifa­mesta stofnun lands­ins í nán­ustu fram­tíð. Hún heldur á hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um, er að und­ir­búa sölu á tæp­lega 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum sem fyr­ir­huguð er í ár, og mun taka á móti Íslands­banka þegar kröfu­hafar Glitnis afhenda rík­inu hann á næstu miss­er­um.

Heim­ild til þess að selja hlut af hluta rík­is­ins í Lands­bank­anum hefur verið í lögum frá árinu 2011. Í fjar­laga­frum­varpi árs­ins 2016 kemur fram að ríkið geri ráð fyrir því að um 71 millj­arður króna fáist fyrir 30 pró­senta hlut og að ágóð­inn verði greiddur inn á skulda­bréf sem voru gefin út til að fjár­magna fallnar fjár­mála­stofn­anir árið 2008. 

Til við­bótar hef­ur ­Bjarni Bene­dikts­son ítrekað sagt að það sé ekki fram­tíð­ar­lausn að ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka. Því má búast við að ríkið muni selja Íslands­banka þegar það eign­ast hann. Auk þess hefur opin­ber­lega verið greint frá áhuga íslenskra líf­eyr­is­sjóða og erlendra aðila á því að kaupa Arion banka, en Banka­sýsla rík­is­ins heldur á þrettán pró­sent hlut rík­is­ins í hon­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None