Í yfirlýsingu frá Borgun, kemur fram að stjórn Borgunar geri alvarlegar athugasemdir við framgöngu Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, í fjölmiðlum. Yfirlýsingin var send út, eftir að Steinþór var í viðtali í Kastljósi RÚV. Segir í yfirlýsingunni að Steinþór hafi „ítrekað farið með dylgjur og óbeinar ásakanir um óheiðarleika og illan ásetning stjórnenda Borgunar“ sem standist enga skoðun.
Steinþór sagðist í viðtalinu við Kastljós í kvöld, ekki ætla að hætta vegna málsins, og að Landsbankinn væri að kanna hvort kæra ætti stjórnendur Borgunar vegna málsins.
Vísar stjórnin í þessu til viðskipta með 31,2 prósent hlut í Borgun, sem seldur var bak við luktar dyr til valinnar fjárfesta, meðal annars stjórnenda Borgunar, undir lok árs 2014. Hluturinn var seldur á 2,2 milljarða króna og heildarvirði félagsins var metið á um sjö milljarða. Í dag er það talið allt að 26 milljarða króna virði.
Yfirlýsingin er orðrétt þessi:
„1. Stjórnendur og aðrir starfsmenn Borgunar keyptu 6,24% hlut í félaginu af Landsbankanum. Tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um sölu Visa Europe og hagnað Borgunar, seldu þessir sömu stjórnendur Borgunar rúman helming af þeim hlut, án nokkurs fyrirvara um sölu Visa Europe. Allt tal um blekkingar verður algerlega fráleitt í þessu ljósi.
2. Steinþór Pálsson er orðinn margsaga um hvort og hvernig Landsbankinn kynnti sér mögulegan valrétt Visa Inc. Eins hvers vegna bankinn gerði fyrirvara í viðskiptum með eign sína í Valitor en ekki í Borgun. Staðreyndin er sú að Landsbankinn hafði mun betri aðgang að upplýsingum um þennan valrétt en Borgun. Það er ótrúlegt að Landsbankinn, eftir að hafa að eigin sögn kynnt sér gögn um valréttinn vel, hafi samt komist að þeirri niðurstöðu að Borgun, einn allra leyfishafa, hefði ekki rétt til greiðslna, kæmi til sölu Visa Europe.
3. Við sölu á hlut Landsbankans í Borgun árið 2014 höfðu fulltrúar Landsbankans aðgang að öllum upplýsingum sem máli skiptu, að undanskilum upplýsingum um samkeppnisaðila sína.
4. Alvarlegar ásakanir bankastjórans um meint lögbrot annarra í þessu máli má sjálfsagt skoða í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem Landsbankinn er kominn í. Stjórnendur Borgunar frábiðja sér með öllu að vera gerðir að blórabögglum í þessu máli.“