Segir vinnubrögð Framsóknarflokksins ekki boðleg

kristjan_thor_vidtal_frame_530.jpg
Auglýsing

Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra segir vinnu­brögð Fram­sókn­ar­flokks­ins vegna upp­bygg­ingu nýs Lands­spít­ala ekki boð­leg. Hann ­gagn­rýndi þau harð­lega í við­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 í morg­un. Krist­ján Þór sagði alveg öruggt að Land­spít­al­inn muni verða við Hring­braut, þar sem ­upp­bygg­ing hans stendur nú yfir. Alþingi hafi tekið þá ákvörðun með lögum árið 2010, sem síðan var aftur stað­fest í lögum árið 2013.  

Í við­tal­inu sagði heil­brigð­is­ráð­herra að hann hefði fyrst heyrt af hug­myndum Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar ­for­sæt­is­ráð­herra um stað­setn­ingu Lands­spít­al­ans á Víf­il­stöðum í Garðabæ á föstu­dag í fjöl­miðl­um. „Fjár­mála­ráð­herra og for­mað­ur­ ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins heyrði það sömu­leiðis í fyrsta skipti á föstu­dag­inn. Þetta eru ekki vinnu­brögð til fyr­ir­myndar bara svo það sé sagt það er ein­fald­lega mín ­skoð­un.“ 

Aðspurður sagði Krist­ján Þór að í þessum orðum fælist bæði hörð gagn­rýni á hann sjálfan og sam­starfs­flokk­inn, Fram­sókn­ar­flokk­inn. „Við eigum bara að vinna með öðrum hætti heldur en þess­um.“  

Auglýsing

Krist­ján Þór segir það ekki boð­legt í sínum huga þegar svona stórt mál sé undir að vinna með þessum hætti. „Við sjáum þess ágæt­lega stað í því ákalli sem að al­menn­ingur í þessu landi er að senda stjórn­málum ekki bara rík­i­s­tjórn­inn­i heldur Alþingi öllu. Átta­tíu og fimm ­þús­und manns eru búin að kalla eft­ir því að við stöndum betur vörð um heil­brigð­is­málin í þessu þjóð­fé­lag­i, þá er það ekki boð­legt í mínum huga að við skulum bera hlut­ina fram svona eins og við erum að gera og ég fría mig sjálfan ekki ábyrgð í þeim efn­um.“

Hörð við­brögð frá for­stjóra Lands­spít­al­ans

Fram kom í þætt­in­um Viku­lok­unum á Rás 1 um helg­ina að Sig­mundur Davíð  ræddi hvorki við Krist­ján Þór né stjórn­endur Lands­spít­al­ans áður en að opin­ber­aði þann vilja sinn á föstu­dag að byggja nýjan Lands­spít­ala við Víf­ils­staði í Garðabæ í stað þess að hann verði byggður við Hring­braut, þar sem spít­al­inn stendur í dag. Þetta sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Lands­spít­al­ans, í þætt­in­um,

Sig­mundur skrif­aði grein á vef­síðu sína á föstu­dag þar sem hann lýsti yfir þeim vilja sínum að stjórn­völd skoði hvort ekki sé best að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði í Garða­bæ. Í Morg­un­blað­inu í sama dag var rætt við bæj­ar­stjór­ann í Garðabæ um mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Bæj­ar­yf­ir­völd þar segj­ast reiðu­búin í sam­starf um bygg­ingu nýs spít­ala þar, og hægt sé að liðka fyrir mál­inu á ýmsan hátt. 

Sig­mundur Davíð sagð­ist í grein sinni vera mjög jákvæður gagn­vart þess­ari hug­mynd. „Að mínu mati ber stjórn­völdum að bregð­ast við þessu til­boði Garða­bæj­ar, taka því fagn­andi og skoða hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Með því væri hægt að byggja spít­al­ann hrað­ar, á hag­kvæm­ari hátt og miklu, miklu bet­ur.“ 

Hann sagði einnig að margt muni vinna með ef spít­al­inn verði byggður á nýjum stað. Ekki bara staða rík­is­sjóðs sem hafi batn­að. „Verð­mæti fast­eigna og lóða í miðbæ Reykja­víkur hefur hækkað gríð­ar­lega frá því að síð­ast var lagt mat á stað­setn­ingu spít­al­ans. Með því að selja hús­næði og lóðir gætu ríki og borg náð tug­millj­arða tekj­um. Þessar tekjur gæti rík­is­sjóður nýtt til að standa straum af umtals­verðum hluta bygg­ing­ar­kostn­aðar nýs spít­ala.“ 

Hægt væri að selja hús­næði og lóðir og nýta fjár­magn strax til að flýta fyrir fram­kvæmdum á nýjum stað þótt spít­al­inn myndi ekki flytja strax. „Einnig gæti ríkið veitt öðru fjár­magni, t.d. arði úr bönk­unum í spít­ala­bygg­ing­una þar til tekjur af sölu eigna við Hring­braut skil­uðu sér.“ Aðrar leiðir komi til greina en hvaða leið sem farin yrði „myndu tugir millj­arða skila sér í rík­is­sjóð við það að færa spít­al­ann. Pen­ingar sem ekki yrðu til ella.“ Þá pen­inga mætti nýta í aðra inn­viða­upp­bygg­ingu, ekki síst á lands­byggð­inn­i. 

Páll brást við skrifum for­sæt­is­ráð­herra með pistli á heima­síðu Lands­spít­al­ans sam­dæg­ur­s þar sem hann sagði m.a. :„Við þessar aðstæður er alger­lega óþol­andi að heyra enn úrtöluraddir um upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Hring­braut. Hér er alvöru­mál á ferð­inni sem snýst um örygg­is­mál allra lands­manna. Eftir 15 ára yfir­legu hefur stað­setn­ing spít­al­ans verið ákveðin og þeir sem kjósa að hleypa þessu máli upp nú þegar fram­kvæmdir eru hafnar og mál­inu hefur verið siglt í höfn verða að gera sér grein fyrir ábyrgð sinn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None