Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns flokksins. Þetta tilkynnti hún flokksmönnum með bréfi í morgun og birti svo tilkynningu á Facebook-síðu sinni.
Í bréfi Oddnýjar stendur:
„Kæru félagar
Ég vil leggja mig alla fram við að bæta íslenskt samfélag. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til formanns Samfylkingarinnar.
Verkefni okkar er að styrkja stöðu ungs fólks, barnafjölskyldna, aldraðra og öryrkja. Ójöfnuð sem birtist í óréttlátri skattastefnu og aukinni gjaldtöku í heilbrigðis- og menntakerfinu þarf að stöðva strax. Til þess þarf samstillt átak jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingarinnar.
Ég vil vinna af krafti að því að heilbrigðisþjónusta verði ókeypis, að sett verði ný stjórnarskrá, að arðurinn af auðlindum skili sér til okkar allra og lífvænlegu umhverfi til komandi kynslóða. Til þess þarf sterka Samfylkingu.
Þegar baráttumálin snúast um jafnrétti og réttlæti er auðvelt að stækka hópinn og fá hugsjónaeldinn til að brenna í hjörtum jafnaðarmanna.
Ég óska eftir stuðningi þínum og samstarfi."
Tveir höfðu áður boðið sig fram til embættis formanns Samfylkingarinnar sem kosið verður um á landsfundi í júní, þeir Helgi Hjörvar og Magnús Orri Schram. Á fundinum verður raunar kosið um á ný í öll helstu embætti flokksins. Árni Páll Árnason, núverandi formaður Samfylkingarinnar, hefur enn ekki gefið upp hvort hann muni sækjast eftir endurkjöri.
Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, hefur ein tilkynnt að hún bjóði sig fram í embætti varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundinum. Katrín Júlíusdóttir, núverandi varaformaður flokksins, hefur þegar tilkynnt að hún sækist ekki eftir endurkjöri og að hún ætli að hætta í stjórnmálum eftir yfirstandandi kjörtímabil.