Oddný Harðardóttir býður sig fram til formanns Samfylkingar

oddny_hardardottir2012.jpg
Auglýsing

Oddný Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns flokks­ins. Þetta til­kynnti hún flokks­mönnum með bréfi í morgun og birti svo til­kynn­ingu á Face­book-­síðu sinn­i. 

Í bréfi Odd­nýjar stend­ur:

Kæru félagar

Ég vil leggja mig alla fram við að bæta íslenskt sam­fé­lag. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til for­manns Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Verk­efni okkar er að styrkja stöðu ungs fólks, barna­fjöl­skyldna, aldr­aðra og öryrkja. Ójöfnuð sem birt­ist í órétt­látri skatta­stefnu og auk­inni gjald­töku í heil­brigð­is- og mennta­kerf­inu þarf að stöðva strax. Til þess þarf sam­stillt átak jafn­að­ar­manna og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.

Ég vil vinna af krafti að því að heil­brigð­is­þjón­usta verði ókeypis, að sett verði ný stjórn­ar­skrá, að arð­ur­inn af auð­lindum skili sér til okkar allra og líf­væn­legu umhverfi til kom­andi kyn­slóða. Til þess þarf sterka Sam­fylk­ingu.

Þegar bar­áttu­málin snú­ast um jafn­rétti og rétt­læti er auð­velt að stækka hóp­inn og fá hug­sjóna­eld­inn til að brenna í hjörtum jafn­að­ar­manna.

Ég óska eftir stuðn­ingi þínum og sam­starf­i."



Auglýsing


Tveir höfðu áður boðið sig fram til emb­ættis for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar sem kosið verður um á lands­fundi í júní, þeir Helgi Hjörvar og Magnús Orri Schram. Á fund­inum verður raunar kosið um á ný í öll helstu emb­ætti flokks­ins. Árni Páll Árna­son, núver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur enn ekki gefið upp hvort hann muni sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur ein til­kynnt að hún bjóði sig fram í emb­ætti vara­for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar á lands­fund­in­um. Katrín Júl­í­us­dótt­ir, núver­andi vara­for­maður flokks­ins, hefur þegar til­kynnt að hún sæk­ist ekki eftir end­ur­kjöri og að hún ætli að hætta í stjórn­málum eftir yfir­stand­andi kjör­tíma­bil. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None