Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs, hefur sagt upp störfum hjá lífeyrissjóðnum vegna tveggja félaga sem hann átti og fundust í Panamaskjölunum. Frá þessu greinir Kári sjálfur á vefsíðu lífeyrissjóðsins í dag.
„Fyrir skömmu fékk ég upphringingu frá Kastljósi þar sem mér var tjáð að nafn mitt sé í hinum svokölluðu Panamaskjölum og tengist þar tveimur félögum,“ skrifar Kári Arnór. Annars vegar hafi verið félag stofnað af Kaupþingi í Lúxemborg árið 1999 og hins vegar félag sem MP banki stofnaði fyrir hans hönd árið 2004. Fyrra félagið hafi starfað í þrjú ár, en starfsmenn Kaupþings hafi haft fullt og óskorað umboð til að eiga viðskipti fyrir hönd þess. „Sennilega hafa fjárfestingar þess ekki gengið vel. Raunar hef ég engin gögn um viðskipti þessa félags. Kastljós hefur einhver gögn um félagið en vill ekki veita mér aðgang að þeim.“
Hitt félagið var aldrei notað, að sögn Kára. „Það var talið fram á framtölum á verðmæti stofnkostnaðar og afskrifað þremur árum síðar, sem tapað fé. Ég hafði því engan ávinning af þessum félögum og þau tengjast engum skattaundanskotum.“
Kári segir að honum hafi eflaust borið að tilkynna um tilvist þessara félaga til yfirmanna sinna, hann telji víst að svo hafi ekki verið gert og að því leyti hafi hann ekki uppfyllt starfskyldur sínar.
„Það voru mörg gylliboð í gangi hér á Íslandi á áratugnum fyrir bankahrunið. Á þessu má sjá að ég hef ekki verið ónæmur fyrir slíku þótt í þessum tilfellum væru það ekki ferðir til fjár. Ég er ekki stoltur af því að hafa látið glepjast af slíkum boðum. Ég vil þó taka fram að með því er ég ekki afsaka sjálfan mig enda við engan annan að sakast í þessu efni. Ég ber sjálfur ábyrgð á mínum gjörðum.“
Þótt deila megi um alvarleika þessara hluta, segir Kári, metur hann það sem svo að umræðan í samfélaginu sé þannig að ekki sé boðlegt að maður sem er forstöðumaður aðila sem varslar lífeyrissparnað fyrir almenning hafi tengst slíkum félögum. „Skiptir þá engu máli þótt langt sé um liðið, hvort þetta var löglegt eða ólöglegt eða hvort viðkomandi hafi hagnast á slíkum viðskiptum eða ekki. Í ljósi þessa hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs. Það er að mínu mati eina leiðin sem mér er fær til að axla ábyrgð, enda tengist vinnuveitandi minn ekki á neinn hátt þessum málum.“
Kári segist leiður yfir málinu og biður fjölskyldu, vini, samstarfsfólk og kollega afsökunar „á þeim óþægindum sem þau munu eflaust verða fyrir vegna umræðu um þennan dómgreindarbrest minn.“