Kjarninn og Nútíminn hafa sett af stað samfélagsmiðlaherferðina #Kjósum þar sem ungt fólk er hvatt til að nýta atkvæðisrétt sinn í forsetakosningunum næsta laugardag. Til að vekja athygli á herferðinni fékkst landsþekkt fólk til að koma fram í skemmtilegu myndbandi þar sem skilaboðin eru skýr: Hvert atkvæði skiptir máli.
Í nýlegum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að kjörsókn ungs fólks hefur minnkað hraðar á undanförnum árum en meðal þeirra sem eldri eru. Séu niðurstöður íslensku kosningarannsóknarinnar á kosningahegðun Íslendinga í síðustu fjórum Alþingiskosningum skoðaðar, þá sést að yngstu aldurshóparnir draga kjörsóknarhlutfallið niður.
Hvar kýs ég?
Þinn kjörstaður er að öllum líkindum í næsta nágrenni. Hægt er að finna þinn kjörstað og kjördæmi hér á kosning.is. Ef þú kemst ekki á kjörstað á laugardaginn getur þú kosið utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land. Upplýsingar um hvar utankjörfundur er haldinn eru að finna á vef sýslumanna hér.
Færri kjósa í forsetakosningum
Sé meðaltal kjörsóknar í kosningunum 2003, 2007, 2009 og 2013 skoðað sést að aldurshópurinn 18-24 ára skilar sér síst á kjörstað. Að meðaltali svöruðu 82,0 prósent á aldrinum 18 til 24 ára sem tóku þátt í kosningarannsókninni þessi ár að þau hefðu kosið í Alþingiskosningum. Miðað við fólk á 35 til 64 ára þar sem meðalhlutfall þeirra sem sögðust hafa kosið var 91,8 prósent.
Í síðustu forsetakosningum hefur kjörsókn verið mun dræmari en kjörsókn í Alþingiskosningum. Í forsetakosningunum 2012 kusu aðeins 69,3 prósent þeirra sem voru á kjörskrá, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Árið 2004 kusu enn færri eða 62,9 prósent. Til samanburðar kusu 81,5 prósent í Alþingiskosningum 2013 og enn fleiri árið 2009 eða 85,1 prósent kosningabærra manna.
Samstarfsverkefni Kjarnans og Nútímans var sett af stað á samfélagsmiðlum í dag og stendur fram að kosningum með umræðumerkinu #Kjósum. Öllum er frjálst að nota myndbandið og umræðumerkið #Kjósum.