Viðreisn mælist í fyrsta sinn stærri en Samfylkingin – Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi

Þingmenn Pírata eru þrír. Ef gengið yrði til kosninga nú yrðu þeir að öllum líkindum mun fleiri.
Þingmenn Pírata eru þrír. Ef gengið yrði til kosninga nú yrðu þeir að öllum líkindum mun fleiri.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni og mælist með 24 pró­senta fylgi. Píratar eru sem fyrr með mest fylgi í kosn­inga­spánni. Þeir mæl­ast með 28,3 pró­sent og standa nán­ast í stað. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með 26,5 pró­sent fylgi þegar kosn­inga­spáin var gerð síð­ast, 14. júní síð­ast­lið­inn.

Við­reisn mælist nú í fyrsta sinn stærri en Sam­fylk­ingin í kosn­inga­spánni. Fram­boðið mælist með 8,2 pró­sent fylgi, um það bil einu og hálfu pró­sentu­stigi meira en það gerði síð­ast. Sam­fylk­ingin hækkar örlítið milli kosn­inga­spáa og mælist nú með 7,8 pró­sent fylgi.

Vinstri græn eru þriðja stærsta stjórn­mála­aflið sem hyggst bjóða fram til Alþingis í kosn­ingum í haust. Flokk­ur­inn mælist með 16,8 pró­sent fylgi, örlítið meira en hann var með síð­ast. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er fjórði stærsti flokk­ur­inn, með 10 pró­senta fylgi.

Auglýsing

Björt fram­tíð mælist enn með minna en fimm pró­sent í kosn­inga­spánni. Flokk­ur­inn er nú með 4,5 pró­sent í kosn­inga­spánni. Ætla má að flokkur þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til að ná kjöri til Alþing­is. Erfitt er hins vegar að fjöl­yrða um slíkt því eitt fram­boð gæti verið að sækja meiri stuðn­ing í eitt kjör­dæmi umfram önn­ur. Enn er ekki farið að kanna stuðn­ing innan hvers kjör­dæmis fyrir sig.

Þá er að segja af Dögun sem mælist með 0,4 pró­sent í kosn­inga­spánni. Önnur fram­boð mæl­ast ekki.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 24. júní. Fyr­ir­liggj­andi kann­anir á fylgi fram­boða til Alþingis voru vigtaðar til að áætla raun­hæfa mynd af fylgi við stjórn­mála­flokka. Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru:

  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. til 22. júní (vægi 32,1%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. til 12. júní (vægi 20,3%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofnun HÍ fyrir Morg­un­blaðið 1. til 2. júní (vægi 14,5%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 28. apríl til 29. maí (vægi 23,1%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 10,0%)

Hvað er Kosn­­­inga­­­spá­in?

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in. Nánar má lesa um kosn­inga­spána hér.

Áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­inga­úr­slit­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None