Brexit
Auglýsing

Breska rík­is­stjórnin getur ekki virkjað ákvæði um úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu nema með sam­þykki breska þings­ins. Þetta er nið­ur­staða dóm­stóls í Bret­landi. Stjórn­völd hyggj­ast áfrýja nið­ur­stöð­unni, og er nið­ur­stöðu Hæsta­réttar vænst í des­em­ber, að því er breska rík­is­út­varpið BBC greinir frá. 

Ther­esa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan og ráð­herra­völd þýði að þing­menn þurfi ekki að kjósa um mál­ið. Stjórn­völd hafi í raun­inni ekki rétt á öðru en að virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­inn­ar. Hún hefur einnig sagt að hún vilji hefja við­ræður um útgöngu Bret­lands úr ESB fyrir lok mars á næsta ári, en nú hefur sú áætlun nán­ast verið slegin út af borð­inu með nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins. Áætl­anir um úrsögn Bret­lands úr ESB munu því tefj­ast tals­vert, þrátt fyrir að ekki sé víst að þing­menn þori öðru en að fara að nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í sum­ar. 

50. grein Lissa­bon-sátt­mál­ans er greinin sem kveður á um að aðild­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu geti ákveðið að segja sig úr sam­band­inu, með til­kynn­ingu til leið­toga­ráðs ESB. Sam­bandið og aðild­ar­ríkið ganga til samn­inga­við­ræðna og gera samn­ing um það hvernig staðið skuli að úrsögn rík­is­ins og hvernig fram­tíð­ar­tengslum verði hag­að. 

Auglýsing

Ther­esa May vildi senda þessa til­kynn­ingu til leið­toga­ráðs­ins fyrir lok mars á næsta ári, en ef þessi nið­ur­staða heldur fyrir Hæsta­rétti þarf að fara með málið fyrir breska þingið áður en hægt er að senda til­kynn­ing­una til ESB. 

Evr­ópu­sam­bands­ríkin hafa sagt að ekki sé hægt að hefja við­ræður um útgöngu Bret­lands fyrr en búið er að virkja 50. grein­ina með til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None