57 íslenskir sjómenn hafa verið til rannsóknar hjá embætti skattrannsóknarstjóra vegna skattalagabrota sem grunur er um að þeir hafi framið á meðan að þeir störfuðu hjá íslenskum útgerðum erlendis. Búið er að kæra meirihluta þeirra til héraðssaksóknara. Hin meintu brot mannanna felast í því að þeir hafi ekki greitt skatt af launum sínum á Ísland á meðan að þeir unnu hjá íslenskum útgerðum í Afríku, þótt þeir hafi átt heimilisfesti hér. Grunur leikur á um að einstök mál snúist um undanskot upp á tugi milljóna króna. Frá þessu er greint í Fréttatímanum í dag.
Mál sjómannanna 57 eru meirihluti þeirra 108 mála sem tengjast Panamaskjölunum svokölluðu sem skattrannsóknarstjóri hefur tekið til rannsóknar. Þau höfðu þó flest verið tekin til rannsóknar áður en að gögn um skattaskjólsviðskipti voru keypt af íslenskum stjórnvöldum í fyrra og áður en að umfjöllun um Panamaskjölin hófst í vor. Rannsóknirnar á mönnunum snúast um hvort að löglegt hafi verið hjá þeim að skrá lögheimili sitt erlendis, meðal annars á Máritaníu, á sama tíma og þeir bjuggu í reynd á Íslandi. Með þeim hætti komust þeir hjá háum skattgreiðslum.
46 mál komin til saksóknara
RÚV greindi frá því um síðustu helgi að skattrannsóknarstjóri hefði vísað 46 skattaundanskotamálum til saksóknara. Í öllum málunum er talið að stórfelld lögbrot hafi verið framin sem varða við hegningarlög. Talið er að hundruðum milljóna króna hafi verið komið undan skatti.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri gekk frá kaupum á gögnum um eiginir Íslendinga í skattaskjólum fyrir 37 milljónir króna sumarið 2015. Í þeim fundust 500 félög sem tengdust Íslendingum. Í frétt RÚV sagði að í hverju máli geti skattaundanskot numið á bilinu einni milljón króna upp í tugi, ef ekki hundruði milljóna króna.
Í Panamaskjölunum sem fjölmiðlar greindu frá í apríl á þessu ári fundust nöfn um 600 Íslendinga. Jafnvel þó það sé ekki ólöglegt að eiga peninga í skattaskjólum er oft ómögulegt að sannreyna skattaupplýsingar félaga sem skráð eru í skattaskjólum.
108 mál hafa verið tekin til formlegarar rannsóknar sem tengdust Panamaskjölunum. Sum höfðu verið áður til rannsóknar. 34 mál voru tekin til formlegrar rannsóknar eftir að skattrannsóknarstjóri keypti skattagögnin í fyrra. Þrjú hafa verið felld niður.
Tekin hefur verið skýrsla af hátt í 200 manns vegna þessara mála og hátt í 100 manns hafa stöðu sakbornings í þessum málum. 46 málum hefur verið vísað til saksóknara þar sem skattrannsóknarstjóri hefur komist að niðurstöðu um að stórfelld brot hafi verið framin.