Aftökur án dóms og laga í Aleppo benda til stríðsglæpa

Svona var umhorfs í Aleppo í gær.
Svona var umhorfs í Aleppo í gær.
Auglýsing

Amnesty International segir aug­ljóst að stríðs­glæpir séu framdir í Aleppo, þar sem fregnir herma að tugir óbreyttra borg­ara hafi verið teknir af lífi án dóms og laga af sýr­lenska hern­um. Sam­tökin kalla eftir því að allar stríð­andi fylk­ingar veiti óbreyttum borg­urum í Aleppo vernd hið bráð­asta. 

Fregnir um fjöldamorð á óbreyttum borg­ur­um, meðal ann­ars börn­um, þar sem fólk er strá­drepið með köldu blóði á eigin heim­ili af her­sveitum sýr­lenskra stjórn­valda eru ákaf­lega slá­andi en ekki óvæntar miðað við fram­ferði þeirra hingað til. Slíkar aftökur, án dóms og laga, myndu jafn­gilda stríðs­glæp­um, segir Lynn Maalouf, yfir­maður rann­sókna Amnesty International á svæð­is­skrif­stofu í Beirút, í til­kynn­ingu frá Amnesty. 

„Frá upp­hafi átak­anna hafa her­sveitir sýr­lenskra stjórn­valda, með stuðn­ingi Rússa, ítrekað sýnt fram á full­komið skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum og algjöra lít­ils­virð­ingu gagn­vart óbreyttum borg­ur­um. Raunar hafa óbreyttir borg­arar verið skot­mörk her­sveita, bæði í hern­að­ar­að­gerðum og með víð­tækri beit­ingu á geð­þótta­hand­tök­um, þving­uðum manns­hvörfum ásamt beit­ingu pynd­inga og ann­arrar illrar með­ferð­ar. Hætta er á að her­sveitir stjórn­valda fremji fleiri grimmd­ar­verk eftir því sem þær fær­ast nær því að ná fullu valdi yfir aust­ur­hluta Aleppo. Það veldur miklum ótta hjá þús­undum óbreyttra borg­ara sem eru fastir í borg­inn­i,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Und­an­farna mán­uði hafi heim­ur­inn, þar á meðal örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna, horft frá hlið­ar­lín­unni á dag­lega slátrun óbreyttra borg­ara ásamt því að aust­ur­hluti Aleppo hefur verið jafn­aður við jörðu og breyst í fjölda­gröf. „Að­gerð­ar­leysi heims­ins, sem stendur frammi fyrir því­líkri grimmd, er til skamm­ar. Skortur á ábyrgð á stríðs­glæpum og glæpum gegn mann­kyni hefur gert stríðs­að­ilum kleift, þá sér­stak­lega her­sveitum stjórn­valda, að fremja slíka glæpi í massa­vís.“ 

Í síð­ustu viku greindu Sam­ein­uðu þjóð­irnar frá því að hund­ruð manna og drengja hafa horfið af svæðum sem eru undir stjórn stjórn­valda. Amnesty hefur áður beint athygl­inni að kerf­is­bund­inni og víð­tækri beit­ingu stjórn­valda á þving­uðum manns­hvörf­um, til þess að ráð­ast gegn óbreyttum borg­ur­um. Þetta eru glæpir gegn mann­kyni, segir Amnesty. 

„Am­nesty International kallar eftir því að stríð­andi fylk­ingar tryggi óbreyttum borg­urum örugga leið til að flýja átök­in, aðgengi að mann­úð­ar­að­stoð og að þeir sem ábyrgð bera á stríðs­glæpum og glæpum gegn mann­kyni verði sóttir til saka. Amnesty International hvetur almenn­ing til þess að skrifa undir ákall sam­tak­anna hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None