Settur héraðssaksóknari hefur fellt niður mál á hendur Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, aðallögfræðingi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinum og tveimur öðrum aðilum. Alda Hrönn var sökuð um að hafa misbeitt lögregluvaldi við rannsókn á LÖKE-málinu, en tveir sakborningar í málinu kærðu hana fyrir rangar sakargiftir og brot í starfi í apríl. Við rannsókn LÖKE-málsins var Alda Hrönn yfirlögfræðingur hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Alda Hrönn fór í ótímabundið leyfi í október vegna málsins. Hún segir í yfirlýsingu að það hafi verið afar þungbært að vera borin sökum að tilefnislausu, bæði í kæru og fjölmiðlum og að þurfa að sæta því að vera leyst frá störfum fyrir það eitt að vinna starf sitt. „Það er gott að rannsókninni sé loksins lokið. Ég hef ávallt haldið fram sakleysi mínu af þeim fráleitu ásökunum sem á mig voru bornar og staðfestir niðurstaða setts héraðssaksóknara með ótvíræðum hætti að engin fótur var fyrir þeim.ˮ Í Fréttablaðinu er haft eftir Garðari Steini Ólafssyni, sem er lögmaður eins sakbornings í LÖKE-málinu, að hann ætli að áfrýja þessari niðurstöðu til ríkissaksóknara.
Í yfirlýsingunni segir að settur héraðssaksóknari hafi komist að því að ekkert hafi komið fram við rannsóknina sem styðji þær ásakanir sem á hana voru bornar og voru tilefni rannsóknarinnar. Í niðurstöðunni segir meðal annars: „Eins og mál þetta liggur fyrir er þó ekkert sem bendir til þess að kærða hafi í heimildarleysi rannsakað málið, aflað upplýsinga, dreift nektarmyndum eða borið rangar sakargiftir á kærendur. Enn fremur hafa ekki komið fram neinar upplýsingar sem færa rök að því að kærða hafi veitt fjölmiðlum upplýsingar sem leynt áttu að fara, eða dreift þeim með ólögmætum hætti, líkt og haldið er fram í kæru.
Þvert á móti verður að líta svo á að aðkoma kærðu að málinu hafi verið í samræmi við munnleg fyrirmæli ríkissaksóknara, eins og upplýsingar um þau fyrirmæli liggja fyrir.[...]“Að mati setts héraðssaksóknara hefur því ekkert komið fram við rannsóknina sem bendir til þess að kærða, Alda Hrönn, hafi gerst sek um brot á ákvæðum lögreglulaga nr. 90/1996, ákvæðum laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 eða annarra ákvæða sérrefsilaga eða almennra hegningarlaga sem vísað er til í kærum.“
RÚV greinir frá því að takmarkaðar upplýsingar liggi fyrir um rannsókn LÖKE-málsins svokallaða þar sem skrifleg gögn varðandi hana séu af skornum skammti, bæði hvað varðar rannsóknina sjálfa en einnig samskipti ríkissaksóknara við lögregluna á Suðurnesjum varðandi heimildir og rannsóknarfyrirmæli. Þetta komi fram í greinargerð Lúðvíks Bergvinssonar, setts héraðssaksóknara, í málinu gegn Öldu Hrönn.